29.11.1933
Sameinað þing: 6. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 413 í D-deild Alþingistíðinda. (1398)

57. mál, varalögregla

Ólafur Thors:

Ég skal eingöngu halda mér við það, sem fram hefir komið í umr. síðan ég talaði síðast. Það mun vera rétt hjá hv. 2. þm. Reykv., að ég hafi áætlað kostnaðinn við varalögregluna minni en ætla má, að hann verði. Mér láðist að geta um ýmiskonar aukakostnað, sem búast ma við, að nemi 15–30 þús. kr. á ári. En þær tölur, sem hv. þm. bar sér í munn um lögreglukostnaðinn, eru vitanlega eingöngu öfgar og villukenningar.

Ræða hv. 1. þm. S.-M. var alveg utan við það málefni, sem fyrir liggur. Hún hné eingöngu að því, hvort nokkur þörf væri á varalögreglu í Rvík. En það atriði er hér alls ekki til umr. eða úrskurðar, heldur hitt, hvort Alþingi á að samþ. þál.till., sem bannar stj. að stofna til varalögreglu í kaupstöðum landsins, hvernig sem á stendur.

Það er vitanlega alveg rétt, sem hv. 4. landsk. sagði, að það er ekki hægt með þál. að banna stj. að stofna til varalögreglu, og þess vegna er ekki heldur hægt að samþ. þessa till., því að í lögum um lögreglumenn er svo að orði komizt í 6. gr. — með leyfi hæstv. forseta:

„Þegar sérstaklega stendur á og ráðherra telur nauðsynlegt öryggi bæjar, að lögregluliðið sé aukið meira en segir í 1. gr., getur hann, að fengnum tillögum bæjarstjórnar, bætt við varalögreglumönnum“.

Lögin segja það tvímælalaust, að ef ráðh. telur nauðsyn til þess, að fengnum till. hlutaðeigandi bæjarstj., að stofna til varalögreglu, þá er honum það heimilt. En í tillögugr. segir aftur á móti: „Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að stofna hvergi til varalögreglu í kaupstöðum landsins“. Tillagan bannar það, sem lögin heimila, og felur í sér, að það eigi að fella úr gildi lögin. Ef slík till. verður samþ., og það verður skoðað sem afnám þeirrar heimildar, sem felst í 6. gr. 1., þá tel ég það beinlínis brot á þingsköpum og gildandi venjum um meðferð mála á Alþingi, ef með einfaldri þál. á að afnema lög. Þetta er það atriði, sem hér á um að ræða, en ekki hitt, sem hv. 1. þm. S.-M. talaði mest um, hvort þörf væri á varalögreglu í Rvík, eftir að búið væri að fullnægja að öðru leyti skilyrðum laganna um lögreglumenn um skipun hinnar föstu bæjarlögreglu. Ég ætla ekkert að ræða um það, hvort nú sé búið að fullnægja þessum skilyrðum hér í bænum; en þegar búið er að fullnægja þeim, þá álit ég, að það sé alls ekki hægt að banna ráðh. að stofna til varalögreglu þar. Ég tók svo eftir, að hv. 4. landsk. vildi skilja þetta á sama hátt og ég, og hygg, að hann sé mér sammála um það.

Hitt var náttúrlega ekki nema eðlilegt, að mann með slíka fortið og hv. 4. landsk. í ráðstöfunum um meðferð ríkisfjár taki það ákaflega sárt, ef það hefir hent einhverja aðra en hann sjálfan að eyða fé úr ríkissjóði. En ég verð nú að segja eins og er, að ég veit ekki, hversu margir af hv. þm. taka þesskonar umvöndun í alvöru frá honum.