29.11.1933
Sameinað þing: 6. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 421 í D-deild Alþingistíðinda. (1404)

57. mál, varalögregla

Eysteinn Jónsson:

Það hefir ekki í raun og veru komið mjög margt fram, sem ástæða er fyrir mig að svara. En ég ætla hinsvegar að snúa mér að því að mæla fyrir breytingu, sem ég hefi hugsað mér að bera fram við þessa þáltill.

Það hefir komið fram í ræðum manna, að þessi till. sé ekki svo úr garði gerð, að fram komi fyllilega það, sem við er átt. En það, sem vakir fyrir þeim, sem till. eru hlynntir, er sýnilega, að fram komi þingvilji um, að ekki þyki ástæða til að stofna til varalögreglu í kaupstöðum landsins eins og nú standa sakir. Það er upplýst, að þetta á að vera tilgangurinn með þessari till., og því er ég samþykkur, að slík ályktun verði gerð. Í annan stað hefir komið fram nokkur ágreiningur um það, hvernig eigi að skilja ákvæðin í lögunum frá síðasta þingi um lögreglumenn, og hver sé skylda bæjarfélaganna eftir þeim lögum.

Ég hefi nú hugsað mér að bera fram skrifl. brtt. við þá þáltill., sem hér liggur fyrir, og ætla ég að lesa hana upp, með leyfi hæstv. forseta:

„Aftan við tillöguna bætist: eins og nú standa sakir, og aldrei nema áður sé fyrirskipuð og fullnægt hámarksfjölgun lögregluþjóna samkv. 1. gr. laga um lögreglumenn frá 1933“.

Með þessu finnst mér, að ályktunin verði þannig úr garði gerð, að það komi Ijóst fram, hvað hún á að þýða, — að Alþ. vilji lýsa því yfir, að því þyki ekki ástæða til að halda uppi varalögreglu eins og nú standa sakir og ætlist til, að bæirnir inni af hendi sína skyldu, áður en öllum landsmönnum er lögð skylda á herðar í þessu efni.

Þá vil ég víkja nokkrum orðum að ræðu hv. 1. landsk., sem talaði nokkuð um þörf varalögreglu í bænum og nefndi sem dæmi, að hér væri hópur manna, sem vildi kollvarpa þjóðskipulaginu, og mætti búast við árásum af þeirra hálfu hvenær sem væri og þess vegna þyrfti að setja á stofn varalögreglu.

Ég verð að segja það, að mín skoðun á þessu er allt önnur, og hana byggi ég á því, að alltaf þegar þessar kommúnistaóeirðir hafa verið hér, þá hefir komið í ljós, að sú sveit kommúnista, sem leggur sig fram til að berjast, er ákaflega fámenn, og ég lít þannig á þetta mál, að hv. þm. megi ekki láta það villa sig, þó að kommúnistar hafi fengið dálítið af atkv. við kosningarnar síðustu, því að aðeins lítill hluti þeirra manna mundi gefa sig að barsmíðum. Margt af þeim atkv., sem kommúnistar fá, er frá þeim flokki manna, sem kallaðir eru „stofubolsar“ og og aldrei berjast. Ennfremur eru meðal þeirra kjósenda konur, sem ég geri ekki ráð fyrir, að hv. 1. landsk. reikni með í því árasarliði, sem þarf að heita varalögreglu við.

Þá talaði hv. hm. um það, að það væru ýmsir staðir í bænum, sem erfitt væri að missa í hendur kommúnista. Ég skal játa það, að það væru hreinustu vandræði, ef kommúnistar næðu þessum stöðum, sem hann nefndi, á sitt vald. En ég vil aðeins benda á, að ef sett er upp 60 manna lögregla og heimilt er að taka skipshafnir varðskipanna til viðbótar, þá er orðið um að ræða ekki minna en 100 manna sveit, og ef þessir menn fengju betri tæki, er ég ekki í vafa um, að þeir mundu hafa í fullu tré við kommúnista.

Út af því, sem hv. 1. landsk. sagði um tækin, þá átti ég ekki við byssur. Ég átti við vatnsbíl, sem áður hefir verið minnzt á og sem var og er álitinn sérstaklega gott tæki af þeim mönnum, sem bezt vit hafa á löggæzlu hér á landi, og mun einn bíll geta verið á við marga varaliðsmenn.

En ég vil svo beina til hv. 1. landsk., að þó til kommúnistauppþots drægi eða stjórnarbyltingar, þá yrði enginn hörgull á mönnum til þess að ganga á móti kommúnistum, því að það myndi fjöldi sjálfboðaliða gefa sig fram.

En viðvíkjandi brunahættunni og því, að kommúnistar mundu kveikja í benzíngeymunum á Klöpp, verð ég að segja það, ef hv. þm. (JónÞ) ætlar að fjölga svo lögregluliðinu, að hægt sé að skipa mönnum við hvern stað, sem hægt er að kveikja í, þá nægir honum ekki 100 manna varaliðssveit, því að það eru svo margir staðir hér í bænum, sem hægt er að slá eldi í. Það hlyti því að fara út í beinar öfgar að fara eftir því, sem hv. 1. landsk. hugsar sér. Og auk þess geri ég ráð fyrir, að þótt þessi varaliðssveit væri stofnuð, þá væru litlar líkur til þess, að kommúnistar mundu velja þann tíma til þess að kveikja í benzíngeymunum á Klöpp, sem varaliðið væri til staðar, því að það á ekki að kveðja saman nema með höppum og glöppum.

Það, sem er aðalatriðið í þessu máli fyrir mér og ástæðan til þess, að ég tók til máls, er, að mér finnst ekki koma til mála, að stórfé sé veitt úr ríkissjóði til uppihalds lögregluliði, sem að mínum dómi væri alveg óþarft og óheimilt að stofna til, áður en Rvíkurbær hefir lagt fram sína 60 lögreglumenn.