02.12.1933
Sameinað þing: 7. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 427 í D-deild Alþingistíðinda. (1409)
57. mál, varalögregla
Haraldur Guðmundsson [óyfirl.]:
Þessar umr., sem hér hafa orðið um ríkis- og varalögreglu, eru að ýmsu leyti næsta fróðlegar. Það er viðurkennt af hæstv. ríkisstj., að kostnaðurinn við ríkislögregluna hefir á þessu eina ári orðið fast að 400 þús. kr. Þegar við spáðum þessu, Alþfl.menn, í fyrra, þá var fullyrt, að engin hætta væri á, að kostnaðurinn yrði svipaður því það mikill eins og nú er viðurkennt. En þrátt fyrir það stórfé, sem ríkisstj. hefir lagt út í þessu skyni, þá liggur engin skýrsla fyrir um störf þessarar stofnunar. Það er ekki synd minnsta viðleitni til þess að skýra frá, hvað hefir verið gert fyrir þetta mikla fé. Ástæðan til þess er ofur einföld. Þetta bákn hefir ekki gert nokkurn skapaðan hlut. Þessar 400 þús. kr. hafa verið borgaðar fyrir ekki neitt annað en það, að geta sýnt stórmennsku sína í því að geta komið fram málum á þingi í óþökk meiri hl. landsmanna. Ég er ekki viss um, að allir hv. þm. geri sér grein fyrir, hversu óafsakanlega og gífurlega fjársóun hér er um að ræða. Menn minnast þess, að á síðasta þingi var kreppuhljómur mikill, og ekki hvað sízt í báðum stuðningsflokkum hæstv. stjórnar. Það var neitað um lítilfjörlega fjárveitingu til atvinnubóta og hækkaðir tollar á nauðsynjum þess fólks, sem sízt má við auknum útgjöldum; allt var þetta gert vegna þessa heilaga sparnaðar. En hann er nú orðinn svo í framkvæmdinni, að það hefir verið fleygt út 400 þús. kr. án þess að stj. sýni minnstu viðleitni til að benda á, að fyrir þetta fé hafi fengizt nokkur skapaður hlutur.
Ég vil nú leyfa mér að taka nokkur dæmi, til þess að menn geti gert sér grein fyrir, hversu mikið fé þetta er.
Í gær var Stúdentagarðurinn vígður, mikil bygging og vegleg, og ætluð til þess að skapa væntanlegum og núv. námsmönnum lífvænlegri kjör heldur en þeir hafa hingað til átt við að búa. Háskólinn er af mörgum talinn fjöregg þjóðarinnar. En hvað kostar háskólinn í rekstri árlega? Hann kostar rumlega 1/3 af kostnaðinum við ríkislögregluna, eða 150 þús. kr. Ef þessir peningar hefðu verið sparaðir, þá hefði mátt greiða allan kostnaðinn við rekstur háskólans og byggja allan Studentagarðinn upp af nýju, og þó hefði orðið afgangur. En hæstv. ríkisstj. hefir þótt meira áríðandi að leggja það fram til þessa alóþarfa lögreglubákns.
Atvinnubæturnar, sem loks fengust eftir þrotlaust stríð á síðasta þingi, voru aætlaðar 300 þús. kr. Það er 100 þús. kr. minna en til þessarar atvinnubótavinnu íhaldsins, varalögreglunnar. Á þessu sama þingi var jarðræktarstyrkur til bænda áætlaður 450 þús. kr. Þessi styrkur deilist milli 6800 bænda viðsvegar um land, og er mörgum þeirra ómissandi. Og hann er nokkrum tugum þúsunda hærri allur en kostnaðurinn við varalögregluna. En fleira þarf til löggæzlu en þessa blessaða varalögreglu. Laun allra sýslumanna og bæjarfógeta nema 142 þús. kr. árlega, og er það nálægt þriðjungi kostnaðarins, sem fleygt hefir verið í varalögregluna. Bæti maður nú við skrifstofukostnaði allra þessara manna, og auk þess kostnaði af lögreglumálum Rvíkur, verður talan 365 þús. kr., en samt er sú upphæð um 10% lægri en fúlgan, sem hent var út vegna varalögreglunnar. — Landhelgisgæzlan hefir verið aukin í tíð núv. stj. með því merkilega sparnaðarbragði, að láta eitt skip ganga af þremur, en hafa 4 skipstjóra á launum. Skipin eru látin liggja í höfnum meðan veiðiþjófarnir mata krokinn í landhelginni. Til landhelgismála eru veittar 300 þús. kr. á ári hverju, eða 100 þús. kr. minna en það, sem varalögreglan hefir kostað. Þá vil ég minnast á heilbrigðismál. Einfaldir menn telja það mjög þýðingarmikið atriði og sjálfsagt að leggja eins mikið til þess og hægt er. Enda er yfirleitt farið betur með lækna en aðra embættismenn. Og þó eru laun allra lækna á landinu aðeins 227 þús. kr., eða liðlega helmingur þess, sem varalögreglan kostaði á einu ári. — Sumir telja, að ekki sé nóg að hugsa um heilbrigðina hérna megin, heldur þurfi líka að undirbúa sáluhjálpina, og telja ekki eftir fé í því skyni. Samt eru prestar launaðir svo hraksmánarlega, að þeir geta varla lifað af því. Ríkissjóður leggur árlega til þessara embættismanna 260 þús. kr. Starf allra guðsmanna í landinu er þannig virt 140 þús. kr. minna en eins árs starfsleysi varalögreglunnar. — Ríkisskipin hafa starfað svo í ár, að annað hefir alltaf legið uppi mestan hluta ársins. Það er enginn vafi á því, að þetta þýðir stórtjón fyrir ýmsa landshluta. Ástæðan til þessarar ráðsmennsku er sú, að Alþ. sér sér ekki fært að veita meira en 250 þús. kr. til strandferðanna. En á sama ári er hægt að veita 400 þús. kr. til varalögreglu.
Alþýðufræðsla er af flestum talin undirstaða þess, að upp geti vagið menntuð og Sjálfstæð þjóð. — Allt framlag ríkissjóðs til alþýðufræðslu, laun allra fastra barnakennara og farkennara á landinu ásamt dýrtíðaruppbót er 430 þús. kr. Aðeins 30 þús. kr. meira en varalögreglan kostaði.
Hér hefir mikið verið rætt um þörf hinna ýmsu atvinnuvega; það er t. d. lífsskilyrði fyrir mitt kjördæmi, að þar komist á fót síldarbræðsluverksmiðja, til þess að tryggja atvinnu manna. Ef þessar 400 þús. kr., sem veittar voru varalögreglunni, hefðu runnið til þess að reisa síldarbræðsluverksmiðju á Seyðisfirði, hefði mátt byggja þar verksmiðju, sem hefði getað tekið á móti 1000 málum síldar daglega. Nú er það svo, að fjöldi skipa fer ekki á síld vegna vandræða við að selja síldina, og þau, sem fara, verða oft að bíða upp undir 5 daga eftir afgreiðslu. Svo það er full þörf á nýrri síldarbræðslu. En féð er ekki til, segir stj.
Allir vita, að nú er stórkostlegt atvinnuleysi, og að það verður framvegis, ef atvinnubætur verða ekki auknar stórlega. Fyrir þessar 400 þús. kr. hefði mátt kaupa 1–2 togara og 8–10 mótorbáta, sem hefðu skapað atvinnu nokkrum hundruðum manna. Hv. 1. landsk., sem líka er borgarstjóri í Reykjavík, skrifaði grein um þetta mál í Morgunblaðið 8. nóv. síðastl. Þar tók hann það alveg réttilega fram, að hér í bæ væru ekki til boðlegir mannabústaðir handa olíu því fólki, sem hér væri saman komið. Þessum hv. þm. er svo ríkt í huga það ömurlega ástand, sem hér ríkir í húsnæðismálum, að þegar hann skrifar grein um lögreglumál, getur hann ekki annað en drepið á húsnæðisvandræðin. Ef þessum 400 þús. kr., sem veittar voru til varalögreglu, hefði í þess stað verið varið til byggingar verkamannabústaða, þá hefði mátt byggja yfir 50 verkamannafjölskyldur með svipuðu sniði og gert hefir verið hér fyrir vestan bæinn. Samtímis húsnæðisvandræðum, segir hv. þm. ennfremur í þessari grein, ganga menn hér atvinnulausir svo hundruðum skiptir. Úr þessu hefði einnig mátt bæta, ef feð, sem varalögreglan fékk, hefði runnið til atvinnubóta. Síðasta atvinnuleysisskráningin, sem fór fram 1. nóv., sýndi, að yfir 500 heimilisfeður í bænum eru atvinnulausir, Öllum þessum þurfandi heimilisfeðrum hefði mátt veita atvinnu upp á 800 kr. hverjum, fyrir fé það, sem varalögreglan gleypti, — t. d. við byggingu verkamannabústaða.
Ég hefi tekið þessi dæmi til þess að sýna, hvílikt geypilegt gerræði stj. hefir framið með því að ausa út fé á þessum tíma, þegar segja má, að allt vanti nema varalögreglu. Og þegar stj. svo skýrir þinginu frá þessari ráðstöfun, þá reynir hún ekki svo mikið sem að benda á, að þessi dýra lögregla hafi gert nokkurn skapaðan hlut. Það er öllum kunnugt, að hún hefir ekkert gert annað en að vera storkun framan í stóran hluta þjóðarinnar. Þegar varalögreglan var stofnuð, var það gert án allrar lagaheimildar; það hefir hæstv. dómsmrh. nú viðurkennt. Vitanlega voru l. um lögreglumenn frá síðasta þingi engin heimild til þess. Hún var sett á stofn í lagaleysi og henni hefir verið haldið við í lagaleysi. Ég minnist í því sambandi ræðu, sem hv. þm. Vestm. flutti hér áður í umr. Hann vék þar að hv. 2. þm. Reykv. og fannst, að honum færist ekki að vera að tala um þetta, þar sem hann hefði lýst því yfir, að tæki Alþfl. þátt í stjórnarmyndun, væri tilætlunin að stjórna án löggjafar. Ég þarf ekki að eyða mörgum orðum að þessu. Hv. þm. veit, að hann er að fara þarna með helberan uppspuna, nema þá að hann sé svo trúgjarn, að hann telji allt það satt og rétt, sem stendur í dálkum Morgunblaðsins. Vísis og annara slíkra blaða. En þessi staðhæfing hefir verið margrekin ofan í þessi blöð. Það, sem hv. 2. þm. Reykv. sagði, þar sem hann talaði um moguleika fyrir þátttöku Alþfl. í stjórn, var það, að þar sem íhaldið hefði neitunarvald í Ed., yrði tæpast hægt að koma fram neinum nýjum l. til hagsbóta fyrir verkalýðinn, heldur yrði að nota til fullnustu þær heimildir, sem fælust í núgildandi l., án nýrrar löggjafar. Í bréfi því, sem nú hefir verið birt, er bent á það helzta, sem gera átti: Koma í veg fyrir, að gengið felli, lagfæra kaupgjald við opinbera vinnu, útvega verkamannabústöðunum lán frekar en orðið er, og auka verklegar framkvæmdir eins mikið og fjárl. leyfa, láta t. d. ekki nota heimildina til þess að fella niður 25% af framlagi til verklegra framkvæmda. Það var sem sagt gert ráð fyrir því, að halda sér alveg innan ramma núgildandi l. Hv. þm. Vestm., sem er einn stæltasti stuðningsmaður núv. stj., skal bent á það, hvernig hún hefir farið sínu fram í þessu lögreglumáli algerlega an nokkurrar lagaheimildar. Sú eina afsökun, sem ráðh. getur borið fyrir sig í þessu, er sú, að þetta hafi verið allmiklar atvinnubætur. Það kann að vera nokkuð til í því. En ég fullvissa hæstv. ráðh. um það, að ef hann heldur, að það séu heppilegustu atvinnubæturnar, þá erum við Alþfl.menn á annari skoðun. mér dettur það í hug í þessu sambandi, að víða úti um heim er sú skoðun ríkjandi, að lausn kreppunnar sé að finna í auknum vígbúnaði og ófriði. Mér finnst það vera eitthvað svipaðar hugmyndir, sem vaka fyrir hæstv. ráðh., en ég aftur á móti tel það ekki orka tvímælis, að betra sé, að atvinnubótavinnan sé einskorðuð við störf, sem gagnleg eru þjóðfélaginu. Í sambandi við þessar umr. vil ég beina fyrirspurn til hæstv. ráðh. Hún er sú, hvort hann hafi látið kaupa vopn handa ríkislögreglunni. Og ef svo er, þá hverskonar vopn. Barefli, byssur, táragas eða önnur tæki. Ég vil halda því fram, að slíkt komi borgurunum við. Ég vil ennfremur spyrja hæstv. ráðh., hvort stj. hafi ekki séð ástæðu til þess að hafa eftirlit með verzlunum þeim, sem selja skotfæri, svo að ekki gæti hver keypt skotvopn sem vildi. Hæstv. ráðh. hefir lýst því yfir, að ríkislögreglan í sinni núv. mynd verði bráðlega lögð niður. Ég mun því láta útrætt um ríkislögregluna, og í stað þess víkja að þeirri varalögreglu, sem bæjarstjórn Rvíkur nú ætlar að fara að stofna. Og enn vil ég beina fyrirspurn til hæstv. dómsmrh. Það kann að vera, að eitthvað hafi verið tekið fram um það í umr., en þó hefir aldrei komið fram skýr yfirlýsing um það efni. En fyrirspurnin er sú, hvort hæstv. ráðh. hafi samkv. 1. gr. l. um lögreglumenn fyrirskipað, að lögregluþjónum í Rvík skuli fjölgað upp í 60. Og í öðru lagi, hvort hann ætli, ef svo slysalega skyldi vilja til, að hann sæti áfram í þessum stól, að staðfesta stofnun varalögreglu í Reykjavík, ef ákvæði 1. gr. l. um lögreglumenn hefir ekki verið fullnægt, og fastir lögregluþjónar séu hér aðeins 41. Þessu væri mér þökk á að fá svarað skýrt og skorinort.
Það er eftirtektarvert, að þeir íhaldsmenn, sem talað hafa í þessu máli, tala allir með það fyrir augum, að varalögreglan verði föst stofnun. Þetta gerðu þeir hv. 1. landsk., hv. þm. Vestm. og hæstv. dómsmrh. allir. En til þess er alls ekki ætlazt með heimildinni frá síðasta þingi. Ég ætla, með leyfi hæstv. forseta, að lesa upp 1. málsgr. 6. gr. 1. um lögreglumenn. Hún hljóðar svo:
„Þegar sérstaklega stendur á og ráðh. telur nauðsynlegt öryggi bæjar, að lögregluliðið sé aukið meir en segir í 1. gr., getur hann“ o. s. frv. Það er bert, að heimildina má aðeins nota í því sérstaka tilfelli, að öryggi bæjarins sé í voða, — aðeins undir þeim kringumstæðum má stj. stofna til varalögreglu, og þó ekki nema því skilyrði 1. gr. 1. sé áður fullnægt, að á hverja 1000 íbúa komi 2 fastir lögregluþjónar. Og nú vil ég spyrja hv. þdm., sem allir hafa dvalið hér í bænum undanfarið: Finnst þeim ástand bæjarins vera þannig, að auk 60 manna fastrar lögreglu væri þörf á varalögreglu? Ég mundi sjálfur svara þessu svo, að hennar væri engin þörf. Og ég er sannfærður um, að fleiri þm. eru sömu skoðunar. Ég tel því, að verði haldið áfram með varalögregluna í Rvík, þá sé haldið afram að fremja lögleysur í þessum málum, þá sé verið að brjota 1. og 6. gr. l. um lögreglumenn. Ég vildi alvarlega skora á hæstv. ráðh. að gæta þess, áður en varalögreglan yrði sett á stofn, hvort hann hefði leyfi til þess lögum samkv. Og þessi varalögregla í Rvík er ólögleg, meðan föstu lögregluliði bæjarins hefir ekki verið fjölgað upp í 60 manns.
Ég tók eftir því, þegar rætt var um kostnaðinn við varalögreglusveitina, að hv. þm. G.-K. áætlaði kostnaðinn 60 þús. kr. fyrir 100 manna sveit, þ. e. a. s. 30 þús. fyrir 50 manna sveit. Nú hefir bæjarstjórn ákveðið laun varalögreglumanna 50 kr. á mánuði, það verða 600 kr. á ári fyrir hvern mann, og þá fæ ég út, að launin ein saman séu 30 þús. kr. handa 50 mönnum og 60 þús. kr. handa 100 manna sveit. Hv. þm. G.-K. hlýtur að ganga út frá, að varalögreglan geri ekkert annað en að hirða laun sín. (JakM: Hv. þm. G.-K. hefir síðar leiðrétt þetta og hækkað áætlun sína um 50%). Hv. 1. þm. Reykv. upplýsir, að hv. þm. G.-K. hafi skellt áætlun sinni upp um 50%, og tel ég það skynsamlegt hjá honum, þó að það líka sé varlega áætlað. Ég hefi hugsað mér, að varalögreglan þyrfti húsnæði, búninga og vopn. Hver maður fær 5 kr. í hvert skipti og hann fer til æfinga, og fari hann til starfa, er borgunin 5 kr. fyrsta tímann, og svo 2,50 á tíma eftir það. Ég held, að ekki sé hægt að reikna þennan aukakostnað minni en hann verður hjá lögreglunni í Rvík nú, en þar er hann aætlaður 2000 kr. á mann. Svo bersýnilegt er, að hv. þm. G.-K. má endurskoða áætlun sína og hækka hana um 50-100%, ef nálægt á að fara. Mér þykir leitt, að hv. þm. G.-K. skuli ekki vera hér viðstaddur, en hann á hér góða flokksbræður, og meira að segja albróður, og ættu þeir að geta flutt honum orð mín, ef þurfa þykir. Mér þótti eftirtektarvert, að hv. þm. gerði ráð fyrir því, að lögreglan þyrfti lítið að gera, því að tilvera hennar ein væri nóg til þess að halda ofstopamönnunum í skefjum. Þetta er að vísu ekki ný kenning, en hún er ný hér og sýnir, hvað það er, sem Sjálfstæðisfl. stefnir að með þessu máli. Hann stefnir að vopnuðum friði. Þetta hefir oft verið uppi hjá stórþjóðunum, að með því að hafa nógu stóran hér, þá tryggðu þeir sér frið, þar sem engin önnur þjóð þyrði þá að ráðast á þær. Þetta leiddi til kapphlaups stórveldanna um vígbúnað, sem svo kom öllu í bál og brand. Allir voru vissir um, að þeirra ágæti hér mundi sigra, og á 4 árum voru eyðilögð verðmæti, sem ekki er hugsanlegt, að mæld verði á nokkurn mælikvarða, og hver stoðin eftir aðra hrundi undan skipulagi því, sem yfirstjórnir allra ófriðarþjóðanna vildu þó út af lífinu varðveita. Ég veit það, að eins fer hér uppi. Varalögreglan verður ekki til þess að varðveita friðinn, heldur til þess að granda friðnum. Og nú vil ég beina einni fyrirspurn til hv. þm. G.-K. Ef hv. þm. er trúaður á það, að ríkislögregla og varalögregla geti með tilveru sinni einni afstýrt öllum óeirðum, hvernig stendur þá á því, að í allt sumar hefir 100 manna lið æft sig í hermennsku í Kveldúlfsportinu? Er það sökum þess, hve vel er búið að tryggja friðinn? mér finnst það ekki benda á neinn friðarhug, að slíkt lið er sett upp. Er bröltið í íslenzku nazistunum, hótanir þeirra um barsmíðar þeim til handa, sem mæla á móti þeim, vottur aukins vilja til friðar? í þessu sambandi vil ég spyrja hæstv. dómsmrh., hvort hann hefir fundið ástæðu til að grennslast eftir því, hvort þær sögur væru sannar, að þessi Kveldúlfssveit Heimdallar hafi fengið sér kylfur til þess að æfa sig í notkun þeirra. Ef það er rétt, þá sé ég ekki mikil merki aukins friðar í bænum. Og þetta er engin flugufregn, heldur eru þeir margir, sem telja sig hafa fulla ástæðu til að ætla þetta. Ég skora á hæstv. ráðh. að láta rannsaka þetta, og þar sem svipaðar sögur ganga um lið „hreyfingarinnar“, að hafa það í hyggju líka. (PO: En kommúnistaliðið?) Ég hélt, að ég þyrfti ekki að minna hæstv. dómsmrh. á þá. Ég skil ekki í því, að hann geti gleymt þeim nú eftir ræðu hv. 1. landsk.
Oft hefir verið spurt að því, hvað varalögreglan eigi að gera. Svörin hafa verið öll á einn veg, og þó mjög mismunandi. Allir, sem reynt hafa til þess að svara þessari spurningu, hafa haldið sig að því, hvað hún ætti ekki að gera. Menn hafa gengið á snið við hitt, hvað hún ætti að gera.
Í umr. í fyrra hér á þinginu sögðu fylgismenn varalögreglunnar hver í kapp við annan, að hún ætti ekki að hafa afskipti af kaupdeilum, hún ætti ekki að gerast strækubrjótur eða verja þá, og að síðustu ætti hún ekki að vinna venjuleg lögreglustörf. Ég spurði þá, hvað hún ætti að gera, hvort hún ætti ef til vill að koma í veg fyrir smygl og hafa eftirlit með áfengislöggjöfinni. Ég fékk engin svör um það. En eitt er víst, og það er það, að eitthvað mikið stendur til, og er vert í því sambandi að gefa því gaum, að það eru fleiri lið en varalögreglan ein, sem sprottið hafa upp nú fyrir skemmstu. Skólabræður hv. þm. Snæf., Heimdellingar og nazistar æfa sveitir hver í kapp við annan. Og það er víst, að þessar sveitir eru ekki tilgangslausar.
Mér þótti ræða hv. 1. landsk. taka öllu öðru fram, sem ég hefi heyrt frá þeirri hlið málsins, vegna bersögli og hreinskilni um tilgang varalögreglunnar. Hann sagði hreint og skýrt, hvert væri verkefni varalögreglunnar. Ég leyfi mér að minna á það, sem hann sagði, og bið hv. þm. að leiðrétta, ef ég fer þar skakkt með hans orð. Hann sagðist álíta sjálfur, að þó að lögregluliðið væri aukið í Rvík upp í 60 manns, þá væri full ástæða til þess að hafa varalögreglu engu að síður. Síðustu kosningar hefðu sýnt það, að kommúnistar hefðu fengið 10% af greiddum atkv., og þessi flokkur hefði það markmið að granda núv. þjóðskipulagi. Í Rússlandi hefði þessi flokkur árið 1918 ekki haft nema 10% af þjóðinni, og enn í dag væri hann ekki stærri, og þó hefðu kommunistar í Rússlandi getað gert byltingu.
Hv. þm. hált áfram að sýna fram á þörfina fyrir varalögreglu og sagði, að ef til upphlaups kæmi, þá þyrfti að setja vörð við pósthusið, símastöðina, bankana og ýmsar stærri verzlanir. Ef þetta upphlaup stæði fleiri daga, þá myndi ekki veita af 100 manna sveit til þess að annast þetta allt, auk þess sem líklega þyrfti ekki síður að hafa lífvörð um borgarstjóra og fleiri mektarmenn bæjarins. Í lok ræðu sinnar gat hv. þm. þess, að hv. 2. þm. Reykv. og hv. 1. þm. S.-M. mundu gera ráð fyrir, að þeir flytu ofan á, þar sem þeir væru kommúnistum svo nákomnir. Þessi ræða hv. þm. gefur mér tilefni til ýmissa hugleiðinga. Mig langar til að athuga nokkru nánar söguspeki hans.
Ég hygg, að fylgi kommúnista á Rússlandi þegar byltingin brauzt út hafi ekki verið 10%, heldur aðeins 1%; en það skiptir ekki ýkjamiklu máli, hvort þeir höfðu 10% eða 1% fylgi. Hitt er meira um vert, að mér skildist, að hv. þm. vildi með þessu sýna fram á, að byltingin hefði verið gerð í Rússlandi af því að þar hefði ekki verið til nein varalögregla, eða a. m. k. ekki nógu sterk, og nú væri sjálfsagt að reisa skorður við því hér nógu snemma.
Ég held, að það hafi alls ekki skort lögreglulið eða hér á Rússlandi í byltingunni, þvert á móti. Mér liggur nær að halda, að ekkert ríki hafi haft jafnmikið lið til þess að vernda keisarann eins og á Rússlandi. Rússneska keisaraveldið hafði standandi milljónaher bæði á landamærunum og inni í landinu. Einmitt þessi hér stuðlaði að byltingunni, sem var bein afleiðing af ástandinu þar í landi. Allir flokkar höfðu reynt sig á því að stjórna ríkinu og ekki tekizt. Þá er það, að kommúnistar taka völdin, að yfirlýstu gjaldþroti allra hinna flokkanna. Hitt er aftur rétt, að kommúnistar hafa síðan haldið valdi sínu með öflugum herafla, en það, sem ég vildi syna fram á, var það, að varalögregla, jafnvel hversu fjölmenn sem er, getur ekki spornað við byltingu, heldur þvert á móti getur skapað henni grundvöll.
Ef hér í bæ kæmi til alvarlegs upphlaups, þá er það bersýnilegt, að 100 manna sveit er gagnslaus með öllu. Ég vona, að ekki þurfi til slíks að koma, enda bendir ekkert til þess eins og nú standa sakir. Íslendingar hafa til þessa verið svo lánsamir að sleppa við allt hernaðarbrölt, og allt bendir til þess, að friðsamleg þróun geti hér átt sér stað og haldið áfram, ef ekki verða rammari skorður reistar við af íhaldinu í landinu. En með þessari varalögregiu er þó verið að leggja vopnið upp í hendurnar á byltingamönnunum.
Það er vel hugsanlegt, að sú stjórn komist til valda, sem ekki vill beygja sig fyrir þjóðarvilja og þingmeirihluta. Þá getur þessi stjórn setið með aðstoð varalögreglunnar. Á sama hátt er hugsanlegt, ef t. d. hv. 1. landsk. sæti í stjórn og nazistar hefðu náð tökum á varalögreglunni og væru ekki ánægðir með hann í stjórnarsæti, að þeir steyptu þessum gamla flokksbróður sínum með aðstoð hennar. Ef til vill næðu kommúnistar líka tökum á varalögreglunni — því hefir verið skotið fram, að í henni væri ein starfandi kommúnistasella, ég skal ekki segja, hversu þeim hefir tekizt að rauðlita hana, en ég hygg, að prósenttalan sé a. m. k. eins há og í Rússlandi —, og þá er illa farið röksemdum hv. 1. landsk.
Ég er hv. þm. ekki sammála um það, að kommúnistahættan sé mikil eða yfirvofandi í okkar þjóðfélagi. Ég neita því samt ekki, að hann og hans flokksmenn hafi aukið gengi þeirra allmikið með ýmsum miður heppilegum ráðstöfunum. T. d. má taka till. bæjarstj. um launalækkun í atvinnubótavinnunni síðastl. haust og þær ráðstafanir á ríkisfé, að ausa út 400 þús. krónum til ríkislögreglu á sama tíma, sem þúsundir manna ganga atvinnulausar og hafa ekki neitt á að lifa. Með þessum og öðrum svipuðum ráðstöfunum hafa þeir aukið kommúnistum fylgi í landinu, enda er þeim ef til vill ekki svo illa við kommunista eins og þeir láta í veðri vaka, því að þeir vita, að þeir veikja aðstöðu okkar jafnaðarmanna með því að ýta undir þá. Líf tveggja þm. hv. sjálfstæðismanna er því að þakka, að kommúnistar stilltu upp í þeim kjördæmum og tókst að fella frambjóðanda Alþfl. Auk þess liggja kommúnistar í deilum innbyrðis, eftir því sem ég hefi heyrt úr herbúðum þeirra, út af því, hvort við Alþfl.menn séum höfuðstöð auðvaldsins innan verkalýðsstéttarinnar eða höfuðstöð auðvaldsins yfirleitt, svo að þeirra vegna þarf ekki, að minnsta kosti í bráð, að setja upp öfluga varalögreglu, enda mun það heldur ekki vera meining hv. l. landsk. né flm. ríkislögreglunnar.
Það er vitanlegt, að þegar þessir menn tala um kommúnista, þá eiga þeir einnig við Alþfl.menn. (JónÞ: Ekki ég). Hv. 1. landsk. sagði þó í ræðu sinni, að við og jafnvel sumir í Framsfl. værum nákomnir kommúnistum.
Það er hér eins og í Þýzkalandi; þar sagðist Hitler ætla að berja á kommunistum. En hvað kom á daginn? Hann hefir engu síður stefnt árásum sínum gegn jafnaðarmönnum par í landi. Með ofurlítilli viðbót mætti orða meiningu hv. 1. landsk. réttilega: varalögreglunni er stefnt gegn þeim, sem íhaldið kallar kommúnista, en það eru fyrst og fremst Alþfl.menn og þvínæst kommunistar. Henni á fyrst og fremst að beina gegn samtökum verkamanna, og þá verður skiljanlegt, að ekki nægir að hafa eina sveit vopnaða, heldur verður að vopna aðra og enn þá þriðju. Þegar þessi orðabreyt. er athuguð, þá verður ræða hv. þm. skiljanleg, sem ella væri gersamlega óskiljanleg.
Hv. þm. lauk ræðu sinni með því að segja, að það væri ljótt af hv. 4. landsk. að drótta því að sér, að hann væri ekki heill lýðræðismaður, því ef einhver væri sannur lýðræðismaður hér á þessu. landi,
þá væri það hann og hans flokksmenn. Ég vil ekki beinlínis bera brigður á, að þetta geti verið rétt, en ekki var samt lýðræðisáhuginn ofarlega á bandi hjá honum eða hans flokki fram til ársins 1931. Fram til þess tíma vildu þeir ekki afnema hið rangláta kjördæmaskipulag. Þeir vildu ekki, að fátæklingar, sem hefðu þegið sveitarstyrk, né heldur 21 árs karlar og konur fengju að njóta kosningarréttar. En svo eftir kosningarnar 1931, þegar hann og hans flokkur varð fyrir barðinu á kjördæmaskipuninni, þá kom andi lýðræðisins yfir hann og allan flokkinn. En þó að hann og hans flokkur, af eiginhagsmunum, hafi getað orðið Alþfl. samferða í þessu máli, þá er ég hræddur um, að lýðræðið standi ekki djúpt í þeim flokki, þar sem ekki eru liðin nema 2 ár síðan hann var umskorinn í þessu efni.
Hv. þm. sagði, að við jafnaðarmenn vildum breyta þjóðskipulaginu. Ég sé ekki betur en að menning þjóðarinnar tortimist gersamlega, ef því verði ekki breytt. Hv. þm. veit, að slíkar breyt. eiga sér líka mánaðarlega stað og hafa átt sér stað um áratugi. Og þegar ástandið er nú orðið þannig, að samtímis því, sem milljónir manna svelta, eru geymslur fullar af allskonar matvælum, meðan þessir menn lifa í allsleysi, eru til nokkrar þúsundir manna, sem ekki vita aura sinna tal, þá skil ég ekki þá menn, sem ekki vilja afnema þetta þjóðskipulag, því að þetta misrétti stafar af þjóðfélagsbyggingunni, en ekki frá einstökum mönnum. Þetta ástand kemur til af því, að skipulagið er byggt upp á samkeppni einstaklinganna. Fáir menn hafa eignarrétt yfir braskvöru og fjárplógstækjum á meðan allur þorri fólksins hefir hvorki í sig eða á og hefir ekki einu sinni eignarrétt yfir sjálfu sér. Við jafnaðarmenn vonum, að takast megi að sýna meiri hl. þjóðarinnar fram á, að breyt. á þessu sé nauðsynleg. Við höfum tré á því, að hægt sé að koma þessu fram á þingræðislegan hátt, a. m. k. með þeim þjóðum, sem engan hér hafa. En með þeim þjóðum, þar sem herveldi er mikið, ma alltaf buast við því, að herinn verði notaður af óhlutvöndum stjórnum til þess að misþyrma meiri hlutanum. Við erum enn svo lánsamir að hafa ekki eignazt hér, svo að hér ætti slíkt ekki að koma til greina, hér ætti að mega takast að breyta þjóðskipulaginu án blóðsúthellinga.
Ef hv. 1. landsk. er sá lýðræðismaður, sem hann segist vera, þá á hann að beygja sig fyrir vilja meiri hl. þjóðarinnar. En hann og hans flokkur óttast, að sú stund fari að nálgast, að jafnaðarmenn komist í meiri hl., og þess vegna á að hafa varalögreglu til taks til þess að hefta ras viðburðanna á þessum framþróunargrundvelli. Það er barnaskapur að ætla sér að hefta rás viðburðanna, og eini árangurinn af varalögreglu yrði því sá, að byltingin kæmi á þann hátt, sem við viljum sízt.
Ég mun greiða atkv. á móti dagskrártill. hv. þm. G.-K. Það er fullkomin ástæða til þess, að þingið segi til um það, hvort það alitur, að varalögreglunni eigi að halda við eða ekki.
Síðari liður dagskrártill. er fjarri öllum sanni. Lögin um ríkislögreglu eru aðeins heimildarlög, og er ætlazt til, að þing segi til um það, hvernig stjórnin eigi að nota þessa heimild.
Ég tel brtt. á þskj. 231 óþarfa, en ef það er líklegra til samkomulags um till. okkar Alþfl.manna, þá mun ég greiða atkv. með henni.