21.11.1933
Neðri deild: 15. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 111 í B-deild Alþingistíðinda. (141)
2. mál, kosningar til Alþingis
Vilmundur Jónsson:
Ég þurfti ekki á neinum leiðbeiningum að halda frá hv. þm. Snæf um það, hvernig ég ætti að skilja hv. þm. V.-Húnv. Ég viðurkenni, að hann hefir slampazt á að gera brtt. sína við 117. gr. frv. svo úr garði, að hún fær staðizt, en af orðalaginu hjá honum, er hann mælti fyrir till. sinni, verður ekki annað ráðið en að hann hefði gersamlega misskilið frvgr. Honum virtist skiljast, að hún gerði ráð fyrir hlutfallskosningum í öllum tvímenningskjördæmum, sem enginn fótur er fyrir. Hitt er rétt, að orðalag 2. og 3. málsgr. getur í einstökum undantekningartilfellum leitt til þeirrar „reikningslegu“ villu, að fleiri atkvæði komi til úthlutunar heldur en greidd hafa verið. Fyrir það, að við tókum eftir þessu, viljum við, að þetta verði leiðrétt, en alls ekki fyrir það, að við höfum áður ákveðið og viljum nú snúa frá því, að hlutfallskosning skuli viðhöfð í öllum tvímenningskjördæmum í landinu. Það hafði okkur aldrei dottið í hug. Ég veit, að hv. þm. V.-Húnv. skilur þetta nú, eftir að hafa átt persónulegt viðtal við mig síðan hann hélt ræðu sína. En hafi honum skilizt það áður, þá er óráðvendni um að kenna, hvernig hann hagaði orðum sínum.
Ég læt hér útrætt um þetta atriði, en sný mér að því, er hv. þm. Snæf. sagði um gerð kjörseðilsins. Það atriði hefir verið þaulrætt í nefndinni og eins á fundum innan flokkanna. Ég get þakkað honum fyrir það, að hann vakti athygli á því, að till. okkar meiri hl. n. um gerð kjörseðilsins næði ekki til að samræma öll ákvæði frv. við þá gerð, er við stungum upp á. Að þessu mun þó ekki kveða mikið, enda stæði það til bóta. Nú vil ég launa honum með því að benda honum á, að ákvæði 51. gr. um kjörseðilsgerð minni hl. n. eru ekki heldur í fullu samræmi við önnur ákvæði frv. Þar er sem sé ákveðið, að stærð, þ. e. skákafjölda, neðri hluta kjörseðils skuli miða við áætlaða tölu landslista. En þetta er alls ekki nóg, því að alltaf þarf að hafa a. m. k. eina skák framyfir landslistatöluna. (Dómsmrh.: Það á líka aðeins að miða við þetta). Já, ég veit, að hæstv. stj. áttar sig sjálfsagt á þessu, en hinsvegar þótt mér viðkunnanlegra að taka þetta skýrt fram vegna ákvæðanna í 92. gr. frv., þar sem kjósendum er heimilað að hafa afskipti af því, hvernig frambjóðendur komi til greina við úthlutun í uppbótarsæti, einnig þó að viðkomandi flokkur hafi engan landslista í kjöri.
Þó að undarlegt megi heita, hefir það orðið ágreiningsatriði í n„ hvernig kjörstjórnir skuli skipaðar, og vill minni hl., sjálfstæðismennirnir, gera þá takmörkun á réttu lýðræðisfyrirkomulagi, að sýslum. skuli jafnan sjálfkjörnir í yfirkjörstjórnir, en hreppstjórar í undirkjörstjórnir. Þó er það viðurkennt, bæði af n., sem undirbjó kosningalagafrv., og af stjskrn., að rétt sé að gera hinum ýmsu flokkum sem auðveldast að hafa fulltrúa sína í kjörstjórn. Þess vegna er ákveðið að heimila hlutfallskosningu, ef krafizt verður, og vitanlega til þess að koma í veg fyrir, að kjörstjórnir verði um of einlitar. En ef um eina 2 er að velja, getur auðveldlega farið svo, ef hreppsn. er mjög á einni sveif pólitískt, að báðir komist að af sama flokki, og hreppstjórinn sá þriðji, og þá væri ákvæði um hlutfallskosningu orðið til einskis í því tilfelli. Svipað getur orðið uppi á teningnum um yfirkjörstjórnir. Til stuðnings hinum sjálfkjörnu sýslumönnum og bæjarfógetum hefir verið borið fram, að þeir séu jafnan á staðnum og því gott að ná til þeirra. En vitanlega mundi hver yfirkjörstjórn gæta þess sjálfsagða hlutar að velja sér þann oddvita, er sæti ætti á sem allra hentugustum stað í kjördæminu, enda mjög líklegt, að sýslumaður eða bæjarfógeti mundi jafnan öðlast sæti í kjörstjórn, þótt honum væri ekki gert að sitja þar sjálfkjörinn, og hið sama hreppstjórar í undirkjörstjórnum. Hver sá flokkur, sem á völ á flokksmanni sínum í sýslumanns- eða hreppstjórastöðu í kjörstjórn, mundi ekki setja sig úr færi um að kjósa hann til þess starfa, nema hann væri einhver vandræðaskepna og mætti þá missa sig. Séu slíkir menn hinsvegar mjög eftirsóknarverðir, er ekki nema sjálfsagt, að viðkomandi flokkur eyði atkv. sínum á hann. Það er kunnugt, að sýslumenn og bæjarfógetar eru ekki nógu margir til þess að geta verið oddvitar í hverri yfirkjörstjórn, og ekki veit ég til, að það hafi komið að sök, þó að leikmenn hafi hvað eftir annað verið skipaðir til þessara starfa. Hitt er þó enn fráleitara, að hreppstjórar séu sjálfkjörnir í undirkjörstjórnir, því að miklu hættulegra er að hafa undirkjörstjórnir einlitar, og ekki sízt með tilliti til aðstoðarinnar, sem þeim er gert að veita fötluðum kjósendum. Ég veit dæmi þess, að kjörstjórn hefir verið svo einlit, og sú ótrú á henni þess vegna, að engum blindum kjósanda annars flokksins, sem keppti þar við kosningar, kom til hugar að beiðast aðstoðar hennar. Þeir sátu heldur allir heima. Mér finnst það óprýða frv. að hafa í því þetta ákvæði, og fáránlegt, að þar sem á að kjósa e. t. v. 3—4 samskonar nefndir innan sama hrepps, skuli einn maður í einni nefndinni eiga að vera sjálfkjörinn. Brtt. okkar meiri hl. n. útilokar engan veginn hreppstjórana. Ef þeir eru sem sagt ekki einhverjir vandræðamenn, má alltaf gera ráð fyrir því, að þeir verði kosnir af einhverjum flokki. Það er víðast svo erfitt að fá nægilega marga menn í kjörstjórnir, að sérstaklega hæfir menn þurfa ekki að óttast að verða settir hjá, svo eftirsóknarvert sem þetta starf nú er.
Þá vildi ég minnast á orð hv. þm. Snæf. um skilning hans á ákvæðunum í stjskr. um skipun frambjóðenda á landslista. Hann vildi skilja bókstafinn aðeins svo, að frambjóðendur í Rvík væru útilokaðir frá því að vera nema í öðruhverju sæti hinna efstu 10 á listunum, en hinsvegar fælist hér í engin heimild til að hafa aðra en frambjóðendur á landslista. Eins og ég hefi skýrt frá, var það hin upphafl. krafa okkar Alþýðuflokksmanna, að það yrði með öllu frjálst, hvernig þessu yrði fyrir komið. En andstæðingar okkar báru það fyrir, að þá yrðu Reykvíkingar alstaðar í efstu sætunum. Til þess að koma í veg fyrir það — og aðeins til þess — var komið á samkomulagi um það orðalag, sem nú er á stjskrfrv. um þetta atriði. Að öllu öðru leyti áttu flokkarnir að ráða niðurskipun á landslista sína. Á það var lögð áherzla af andstöðufl. okkar, að stjskrfrv. yrði samþ. ágreiningslaust á síðasta þingi, og við gerðum ekki ágreining, aðeins með tilliti til þessa samkomulags. Ég þarf ekki að eyða að þessu fleiri orðum, en það væri mér kært, og er skylt að ætlast til þess, að einhverjir hv. þm. úr hinum flokkunum standi nú upp og lýsi því yfir, að þetta samkomulag hafi átt sér stað, og hafi verið á þá leið, er ég hefi skýrt frá.