29.11.1933
Neðri deild: 22. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 160 í D-deild Alþingistíðinda. (1413)
79. mál, síldarbræðslustöð Útvegsbanka Íslands hf á Öndundarfirði
Fors.- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):
Tveir hv. þm. hafa látið þess getið í þessu sambandi, að þeir hafi áður fylgt stofnun nýrra verksmiðja eða rekstri verksmiðja, sem annars mundu ekki hafa gengið.
Nú er hér sama máli að gegna, því hér er um að ræða heimild til þess, að stj. geti tryggt, að þessi verksmiðja verði rekin. Og án þess að stj. fái slíka heimild er ekki fyllilega tryggt, eins og komið hefir fram í umr., að þessi verksmiðja verði rekin. Nú hefir saga málsins verið sú á þessu þingi, að allir viðurkenna, að það vanti verksmiðjur, en það þýðir þá um leið, að það má ekki koma fyrir, að neinar af eldri verksmiðjunum liggi ónotaðar. Það skyldi maður því ætla, að væri höfuðatriðið, að tryggja það a. m. k. Nú er Útvegsbankinn ófáanlegur til að reka þessa verksmiðju sjálfur og vafasamt, hvort það er tryggt, að hún verði rekin. Ef þing og ríkisvald getur tryggt það með einhverju móti, þá er það jafnskylt, ef ekki skyldara heldur en að afgr. nýjar verksmiðjuheimildir, sem hafa fengið svo góðar undirtektir hér á þinginu.
Það er víst, að Útvegsbankinn mun ekki reka þessa verksmiðju, jafnvel þó hann gæti ekki leigt hana. Þegar heimildin um að kaupa verksmiðju dr. Pauls á Siglufirði var gefin, þá var ekki hægt að segja, að útilokað væri, að verksmiðjan yrði rekin. En þessi verksmiðja var samt keypt, og það, sem réð mestu, að það var gert, var það, að aðstaðan þótti góð og skipulagið á verksmiðjunni tryggara með þessu móti en öðru. Það jafnar og tryggir aðstöðu allra síldarútgerðarmanna að hafa slíka verksmiðju, sem er ríkiseign, að snúa sér til. Það hefir gengið svo til með þessa Flateyrarverksmiðju, að aldrei hefir verið fullráðið fyrr en á síðustu stundu, hvort hún skyldi rekin.
Á síðasta þingi mun þetta mál hafa verið lagt fyrir sjútvn., og þó stj. hefði enga formlega heimild til þess að leigja verksmiðjuna, þá tjáði n. sig samþykka því, að stj. skyldi heldur taka verksmiðjuna á leigu heldur en að láta hana standa ónotaða. Það kom ekki til fyrir stj. að taka ákvörðun um þetta þá, því verksmiðjan var leigð, þó seint væri. Í þessu tilfelli er ekki um það að ræða að taka nein ný lán erlendis. Að vísu munu myndast nýjar skuldir móti þessari eign, en afborganir geta farið fram á þann hátt, að eitthvað af eftirstöðvum enska lánsins frá 1921 verði flutt í ríkissjóð.
Hv. þm. Borgf. hefir látið í ljós, að fylgi sitt við þessa ráðstöfun hafi miðazt við það, að einstaklingarnir fái þessar stofnanir í hendur svo fljótt sem auðið er, á þann hátt, að þeir ráði verksmiðjunum einir án íhlutunar ríkisvaldsins. Hv. þm. sagði: Þeir, sem bera hitann og þungann, eiga að ráða yfir þessum dýru og stóru framleiðslutækjum. — Ég er sammála honum um það, að þeir, sem bera hitann og þungann af þessum atvinnurekstri, eigi að ráða yfir þessum tækjum, en það eru útgerðarmenn, sjómenn og yfirleitt allir, sem nálægt þessum atvinnurekstri koma. Það er ekki fjármagnið eitt og yfirstjórnin, sem bera hitann og þungann. Hitinn og þunginn er borinn af öllum almenningi, sem leggur lið sitt til þessarar starfsemi og á afkomu sína undir henni. Þess vegna hygg ég, að hagur þeirra, sem bera hitann og þungann og eiga mest undir um afkomu sína, sé bezt tryggður með því, að ríkið eigi þessar dýru stofnanir. Hér er um svo dýr framleiðslutæki að ræða, að einstök félög hafa á seinni árum ekki haft bolmagn eða ekki þorað að ráðast í að kaupa þau. Og þess vegna hefir ríkið lagt lið sitt til. Þetta kemur ekki til að breytast, og ef svo á að vera, að vinna og fjármagn eigi að njóta nokkurnveginn jafnréttis og að sem mest trygging sé fyrir því, að stofnanirnar séu reknar, þá hygg ég, að þessu sé bezt komið í höndum ríkisvaldsins.
Ég verð því sem þm. þessa kjördæmis að mæla með þessari till., og líka af því, að ég lít almennt svo á, að ríkisrekstur sé eðlilegur og gefist þar vel, sem um dýr framleiðslutæki er að ræða og þar sem hægt er að koma á samvinnufélagsskap.