04.12.1933
Sameinað þing: 8. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 451 í D-deild Alþingistíðinda. (1418)

57. mál, varalögregla

Jón Þorláksson:

Þegar þetta mál var hér fyrst til umr. fyrir nokkrum dögum, gaf sig fram hv. 1. þm. S.-M. með upplýsingar í málinu. Ég hafði gert ráð fyrir, að til þess mundi koma, að þetta þjóðfélag þyrfti að verja tilveru sína og skipulag gegn þeim flokki manna í landinu, sem hafa það að yfirlýstri stefnuskrá að kollvarpa þjóðskipulaginu með valdi, en það eru kommúnistar, eins og allir vita. Hv. 1. þm. S.-M. kom svo og fór að gefa upplýsingar viðvíkjandi þessu máli, og þær voru á þá leið, að það þyrfti ekkert að óttast kommúnista, þeir væru svo skiptir, það væri mismunandi lýður, þeir væru innanhúss, og þeir væru svo fáir, sem væru í áhlaupadeildinni, að það væri engin hætta á því, að nein af þessum áformum, sem ég gat um, kæmu til framkvæmda.

Ég hefi verið að hugsa um það síðan, hvernig ég eigi að líta á upplýsingar hv. 1. þm. S.-M. Ég sé það í blöðunum, eins og aðrir, að foringjar Alþfl. á Austfjörðum halda því fram, að það sé jafnnáið samband á milli kommúnista og hv. 1. þm. S.-M. eins og á milli forstjóra einhvers fyrirtækis og einkaritara hans. Þessi hv. þm. er berum orðum kallaður í blöðum Alþfl. á Austfjörðum einkaritari Kommúnistaflokksins. Það gæti þess vegna verið um það að ræða, að svo mikið væri hæft í þessu, að hér lægju í raun og veru fyrir upplýsingar frá fyrstu hendi, sama sem frá Kommúnistaflokknum sjálfum. Svo gæti líka verið, að hv. þm. stæði utan þessa flokks, og þá væri þetta frekar eins og hugboð ókunnugs manns.

Ég hefi komizt að þeirri niðurstöðu, að það sé þýðingarlaust að gera þetta upp við sig, hvort hv. 1. þm. S.-M. er að gefa þessar upplýsingar fyrir Kommúnistaflokksins hönd, eða það séu aðeins getgátur, því að í hvorugu tilfellinu er hægt að byggja neitt á þessum upplýsingum. Það er ljóst, að ef á að skoða þetta sem upplýsingar frá Kommúnistaflokknum, þá má ekki byggja á því, að flokkurinn gefi upp réttar upplýsingar um þetta atriði. Flokkur, sem hefir það að yfirlýstu stefnuskráratriði að beita þjóðfélagið ofbeldi, fremur ekki þá heimsku að gefa upplýsingar um, hver áhlaupastyrkur hans sé. Segi hann eitthvað um það, má frekar hyggja á því, að þær séu rangar heldur en réttar. En ef þetta hinsvegar hafa verið getgátur utanflokksmanns, þá er ekkert upp úr því leggjandi, eins og ég veit, að hv. 1. þm. S.-M. skilur vel. Ég held þess vegna, að bezt sé að taka ekkert mark á því, sem hann sagði um það, að kommúnistar væru svo fáliðaðir af áhlaupamönnum, að þess væri alls ekki að vænta, að flokkurinn færðist það í fang að framkvæma sína eigin stefnuskrá.

Þessu næst játaði hv. 1. þm. S.-M. og viðurkenndi rétt að vera hjá mér, að ef til slíkra áhlaupa kæmi, þá væri fasta lögreglan ónóg, hvort sem hún væri 48 eða 60 manns. Svo viðurkenndi hv. þm. eins og allir aðrir, og því verður ekki á móti mælt, að hér eru það margir staðir, sem eru svo þýðingarmiklir fyrir þjóðfélagið, að þá verður að verja, ef til uppreisnar kæmi, og að liðið, sem er svo fámennt, að ekki kæmu nema 4 eða 5 menn á hvern stað, getur ekki haldið þeim á móti neinum árasum. En þá kom hv. þm. með það, að þá yrði varalögregluliðið ekki nóg heldur. En hann hugsar sem svo: Þá leggst eitthvað til, þá kemur eitthvert lið, sem nægir til þess að kveða áhlaupið niður. Þetta var nattúrlega ekki annað en hjal þess óforsjála manns, sem hlýtur að viðurkenna, að hér er hætta fyrir dyrum, en hefir tekið það í sig að vilja ekki gera ráðstafanir, sem einar megna til þess að bægja hættunni frá, og endar svo í orðamælgi úrræðaleysingjans, sem endar alltaf á því: Ja, þá leggst eitthvað til. — Nei, í þessu efni er hvorki að treysta á hjálp forsjónarinnar, ef þjóðfélagið vill ekki hjálpa sér sjálft, né heldur að upp rísi einhverjir bardagaskarar af engu, þegar út í bardaga er komið. Það viðurkenna allir, sem nokkra þekkingu hafa á lögreglumálum, að það er vonlaust að treysta því, að það komi einhverjir hópar af óæfðum mönnum, sem séu eða verði nokkurs megnugir, þegar út í bardaga er komið. Enda höfum við ágætt dæmi um það frá 9. nóv. í fyrra. Það er enginn efi á því, að af þeim hundruðum eða þúsundum manna, sem á bardagann horfðu, vildi enginn eiga það á hættu að limlestast, enginn sá sér fært að hreyfa hönd eða fót í bardaganum. Enda er það viðurkennt, að slíkt er ófært fyrir menn, sem enga æfingu hafa í þeim hlutum, eða skortir forustu til þess að leggja út í slíkt.

Hv. 1. þm. S.-M. hefir með þessu bent sjálfur á þau rökþrot, sem hann endaði í, og gefið okkur, sem höldum fram nauðsyn varalögreglunnar, allan þann stuðning, sem við getum óskað eftir.

Þá hélt hv. þm. Seyðf. langa og hvellmikla ræðu. Hv. þm. Snæf. hefir að vísu svarað honum skörulega, svo það er aðeins örfátt, sem ég þarf þar við að bæta. Hv. þm. Seyðf. byrjaði með því að telja upp a. m. k. 10 mikilvæg málefni í nútíð og framtíð, sem unnt væri að framkvæma fyrir það fé, sem varalögreglan hefir kostað.

Mér þótti sem hv. þm. Seyðf. hefði gleymt því góða og gamla máltæki, að erfitt er að gera tvo tengdasyni að einni dótturinni, því að hann vildi a. m. k. gera 10 tengdasyni að þessari einu dottur. En það skilja allir, að er orðabelgingur og ekkert annað, slík upptalning. En það, sem svo var eftir að leggja á metaskalarnar, ekki á móti öllum þessum 10 liðum, heldur á móti einhverjnm einum, er, hvers virði friðurinn er, sem fæst með því, að þjóðfélagið kosti því, sem þarf á hverjum tíma, til þess að halda uppi friði.

Satt að segja erum við Íslendingar orðnir svo vanir friði í okkar þjóðfélagi, að það er kannske ekki eins ljóst fyrir okkur eins og mörgum öðrum, hversu mikils virði það er fyrir þjóðfélagið að halda uppi friði.

Ef litið er aftur í söguna, þá hafa þó verið þeir tímar hér, að allt logaði upp í ófriði í landinu, og það er a. m. k. hægt að hugsa sér einhvern samanburð á afleiðingum hans og því, sem hefði mátt fá, ef varið hefði verið tilsvarandi orku og fór í ófriðinn til farsælla og þjóðnýtra starfa.

Ég ætla aðeins að bera upp eina spurningu fyrir hv. þm. Seyðf. Hann kannast við eins og aðrir, að á árunum 1200 til 1260 geisaði stöðugur ófriður og flokkadráttur hér á landi og endaði með því, að þjóðin glataði Sjálfstæði sínu, og upp úr heim samningi, sem um það var gerður, gægðist óskráð hótun konungsmanna um það, að það yrði hætt að sigla til landsins, ef landsmenn beygðu sig ekki.

Þessi óskráða hótun kemur fram í skilyrðinu um það, að fá 6 skip á ári til landsins. Hvaða þýðingu heldur svo hv. þm. Seyðf., að það hefði haft fyrir þessa þjóð, ef höfðingjarnir, sem í 60 ár fóru með herflokkum og bardögum um landið, hefðu heitt tilsvarandi orku til þess að manna upp þjóðina til farmennsku og til að eignast þann farkost, sem þurfti til þess að halda uppi siglingum milli Íslands og annara landa? Heldur hv. þm., að við hefðum þurft að óttast þessa óskráðu hótun um að Norðmenn hættu að sigla til landsins, ef við hefðum borið gæfu til þess að halda uppi friði í landinu og vinna að friðsamlegum störfum í staðinn fyrir að halda uppi ófriði? Og heldur hv. þm., að einokunin hefði nokkurntíma skollið á, hefðum við verið eins miklir farmenn eins og við að öðru leyti teljum okkur vera mikla manndómsmenn? Nei, þá og jafnan síðan hefir skortur á friði orðið þessari þjóð dýr, og nú er komið að því aftur, að svona róstur vofa yfir. Það er reynt til þess að kollvarpa því friðsamlega starfi, sem unnizt hefir í þessu þjóðfélagi á undanförnu endurreisnartímabili.

Hv. þm. Seyðf. heldur því fram, að það borgi sig ekki að halda uppi friði. Ég hefi bent á dæmi úr okkar eigin sögu, ef vera mætti, að það skýrði fyrir hv. þm., hvers virði friðurinn er, og einnig má minnast á það, að önnur ríki telja það fullkomlega svara kostnaði að halda uppi friði hjá sér, þar sem útgjöldin til þess að halda uppi friði innanlands og við nágranna sína eru með hæstu gjaldaliðum hjá mörgum þjóðum. Hér verðum við ekki varir við þann kostnað, nema ef telja skyldi kostnað af landhelgisgæzlu. Ég gæti farið líka leið og hv. þm. Seyðf. og talið upp ótal starfssvið, sem alveg féllu um koll, ef ekki væri offrað því lítilræði, sem þarf til þess að halda uppi friði í landinu. Hv. þm. komst að þeirri miður gáfulegu niðurstöðu, að sá friður, sem þjóðfélaginu væri tryggður með sterku lögregluvaldi, væri sama eðlis og hinn vopnaði friður stórveldanna, það ástand, þegar stórþjóðirnar vígbúast hver í kapp við aðra til þess að ógna nágrannaþjóðunum frá árásum. En samlíkingin er ekki rétt. Það dettur engum í hug, ef þjóðfélagið á annað borð kemur sér upp nógu sterku lögregluvaldi til þess að vernda friðinn í landinu, að það leyfi þá nokkrum að efla flokka gegn þessu lögregluvaldi; að sjálfsögðu verða allar slíkar tilraunir kveðnar niður. Hv. þm. viðurkenndi, að tilvísun mín í rússnesku byltinguna hefði verið rétt að því leyti, sem ég vildi nota hana. Kommúnistaflokkurinn hér er hlutfallslega orðinn eins átaksmikill og rússneski kommúnistaflokkurinn var 1917. Reynslan þaðan sýnir, að svo lítill flokkur getur kollvarpað þjóðskipulaginu, ef ríkin hafa ekki fullan vilja til varnar. Það mun vera rétt hjá hv. þm., að í sjálfum rússneska kommúnistaflokknum, sem nú ræður öllu þar í landi og á sínum tíma kollvarpaði þjóðskipulaginu, sé ekki nema 1% rússnesku þjóðarinnar. Meira þarf ekki til. Og þar sem svo er hjá þjóð, þar sem menn eru vanir vopnaburði, þá þarf víst áreiðanlega ekki meira hér hjá okkur, þar sem engir temja sér vopnaburð, ef Alþ. sýnir ekki þann manndóm að búa svo um hnútana, að þjóðskipulagið sé ekki varnarlaust fyrir hvaða ræfli, sem á það vill ráðast.

Hv. þm. Seyðf. hafði sömu sögu að segja og hv. 1. þm. S.-M., að kommúnistar væru svo sundraðir, að þá þyrfti ekki að ottast. En það skein í gegnum ræðu hans, að hann var ekki að flytja ræðu á Alþ., heldur var hann að tala til þeirra kjósenda, sem nú eru á báðum áttum um það, hvort þeir eigi að fylgja Alþfl. eða Kommúnistaflokknum. Öll ræða hv. æm. var tilmæli til þessara kjósenda um að koma í Alþfl., og verður að hafa það til hliðsjónar margendurteknum yfirlýsingum hv. þm. um það, að þeir Alþfl.menn vildu líka granda þjóðskipulaginu, þeir vildu líka, að engin lögregla fyrirfyndist o. s. frv. Þetta eru aðeins biðilsorð til kommúnista hér í bænum og þeirra, sem standa á milli þess flokks og Alþfl. ennþá. Til þeirra mega þeir biðla fyrir mér svo mikið sem þá lýstir. Og mér finnst ekkert fara illa á því, að Alþfl. skipti liði, eins og þeir segja, að kommúnistar geri, og sendi annan arminn í biðilsför til bændanna, eins og gert hefir verið á þessu þingi, en hinn í samskonar erindagerðum til kommúnista. En hvort þeir vaxi af því í augum þjóðarinnar, að biðla samtímis til svo óskyldra meyja, læt ég ósagt. Hv. þm. Seyðf. gerði aths. við þau orð mín, að Sjálfstfl. væri nú forvígisflokkur lýðræðisins hér á landi, og sagði eitthvað á þá leið, að lýðræðishugsjónin hefði ekki komið fram hjá flokknum fyrr en 1931. Þetta er ekki rétt frá skýrt. Það stóð líkt á með það mál eins og lögreglumálið áður en Kommúnistafl. kom til sögunnar; það var ekki sjáanleg þörf til þess að halda uppi liði eða skipuleggja flokka til verndar lýðræðinu meðan enginn gerði sig líklegan til þess að ráðast á það. En 1931 skeði atburður, sem opnaði augu manna fyrir því, að nú var ekki nóg lengur að sitja aðgerðarlaus og láta sem allir væru lýðræðismenn, og þá, þegar þörfin var orðin brýn, tók Sjálfstfl. upp merki lýðræðisins, og ég vona, að hann beri gæfu til þess að halda því hátt enn um langan aldur. Ég hirði ekki um að elta hv. þm. út í þá rökþvælu, sem hann lét sér sæma að flytja hér; ég skal aðeins segja frá niðurstöðu hans. hún var sú, að varalögreglan væri stofnuð til árása á meiri hl. þjóðarinnar. Það þarf ekki annað en að minna á þessa niðurstöðu, til þess að öllum skiljist, að röksemdafærslan, sem leiddi hv. ræðumann að þessari endaleysisútkomu, var eintóm þvæla og vitleysa. Spurningin í þessu máli er sú, hvort þjóðin beri gæfu til þess að eiga á Alþ. fulltrúa, sem ekki eru um of á eftir tímanum. Það má segja, að árasir á þjóðskipulagið sé ekki nýtt fyrirbæri; þeirra hefir orðið vart í stærstu kaupstöðum landsins nú undanfarið, þótt í smáum stíl sé. Vonandi ber þjóðin gæfu til þess að velja sér þá fulltrúa á Alþ., sem þekkja þessa hættu og vita, að byltingarhættan getur blossað upp hér sem annarsstaðar þegar minnst vonum varir, og séu reiðubúnir til þess að gera nógu snemma ráðstafanir til þess að halda öllum þeim öflum, sem vinna gegn þjóðskipulaginu, í skefjum. Ég treysti því, að þeir menn, sem vilja halda núverandi þjóðskipulagi uppi, láti ekkert hindra sig í baráttunni gegn skaðsemdaröflunum. — þrátt fyrir ágreininginn, sem varð í fyrra um frv. um lögreglumenn, sýndi þó allur þorri þm. skilning sinn á nauðsyn þeirrar lagasetningar, og ég vona, að sá skilningur sé enn við lýði. Komi þessi till. til atkv., þá skora ég á hv. þm. að fella hana, bæði till. Alþfl. um að banna stj. að framkvæma l. um lögreglumenn, og viðaukatill. hv. 1. þm. S.-M., sem auk þess að vera engin umbot á aðaltill. er svo illa samin, að hv. þm. ætti að fá íslenzkukennara til þess að leiðrétta helztu málvillurnar áður en hún kemur til atkvæða.