29.11.1933
Neðri deild: 22. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 167 í D-deild Alþingistíðinda. (1419)
79. mál, síldarbræðslustöð Útvegsbanka Íslands hf á Öndundarfirði
Finnur Jónsson:
Við jafnaðarmenn getum ekki annað en verið ánægðir með rök þau fyrir ríkisrekstri, sem fram hafa komið í d., því að þau rök gilda almennt. Hv. þm. (G.-K. sagði, að ekki væri meiri trygging fyrir því, að togurunum yrði haldið út, en að Sólbakkaverksmiðjan yrði starfrækt. Það er alveg rétt, en hvað mundi verða uppi á teningnum, ef öllum togurunum yrði lagt upp? Það er alveg rétt, að Sólbakkaverksmiðjan hefir aldrei legið ónotuð, en á hverju ári hefir ríkt um það hin mesta óvissa, eins og hæstv. forsrh. tók fram. Ég vil þá undirstrika það, að þó að kaup færu fram á þessari verksmiðju, þá hljóta till. um síldarbræðsluverksmiðju á Norðurlandi engan skaða af því. Enn má geta þess, að með þessu á ríkið að geta bætt sinn hag með kaupunum. A. m. k. höfðu kaupin á verksmiðju dr. Pauls á Siglufirði þau áhrif, og þar eð hv. þm. G.-K. hefir nú upplýst, að þessi verksmiðja á Önundarfirði sé ekki virt hærra en venjulegur togari, þá á ríkissjóður að græða á þeim kaupum, jafnvel þótt verksmiðjan væri keypt nokkuð hærra verði. Hinsvegar var ríkisverksmiðjan á Siglufirði allt of dýr, og var ætlazt til þess, að ákveðið krónutal rynni árlega í fyrningarsjóð, og var því sú upphæð of hátt ákveðin, en eftir því sem ríkið eignast fleiri ódýrar verksmiðjur, því lægra getur hið óhæfilega háa fyrningargjald orðið að tiltölu, og þannig verður hægt að greiða útgerðarmönnum og sjómönnum hærra verð fyrir síldina. Í þessu sambandi má og benda á það, að mjög hentugt er að hafa þessa verksmiðju í gangi, svo að hægt sé að flytja skipin þangað, þegar fullt er í hinum ríkisverksmiðjunum; t. d. væri það ekki sízt þægilegt að geta sent stærstu línuveiðarana til Flateyrar til þess að forða ofþrengslum í verksmiðjunni á Siglufirði. Þetta finnst mér allt mæla með því, að verksmiðjurnar verði sameinaðar undir eina stjórn. Þó að í upphafi hafi verið gert ráð fyrir því, að útgerðarmenn tækju síðar við þessum verksmiðjum sjálfir, þá er þetta nú miklu fjær öllum sanni en áður virtist vera, að þessi iðjugrein geti verið á valdi einstaklinga; það er of stórt verkefni fyrir nokkurn eða nokkra einstaka menn, og hlýtur hví að vera í höndum ríkisins. Hitt er annað mál, að ríkið getur stuðlað að því að hjálpa útveginum á fót aftur og stækka hann, með því að byggja sjálft verksmiðjur og kaupa þær. Það vantar enn mikið á, að þessi iðja sé rekin svo sem vera ber, a. m. k. samanborið við Norðmenn. Forstjórar síldarverksmiðju ríkisins á Siglufirði hafa bent á það, að af öllum fyrirtækjum Norðmanna eru það síldarbræðsluverksmiðjurnar, sem bera sig einna bezt, og slíkt ætti að vera hægðarleikur einnig hér á landi. Ég vil minna á það, að nú á síðustu tímum hafa komið fram sífellt fleiri kröfur um það, að ríkið taki sér fyrir hendur að efla þennan mikilsverða og þýðingarmikla atvinnuveg. Það væri æskilegt, að hæstv. dómsmrh. vildi á þessu stigi málsins gefa þær skýrslur um afkomu ríkisverksmiðjanna á Siglufirði, sem hann lofaði við umr. um verksmiðjuna á Norðurlandi. Það eru mjög ákveðin meðmæli frá ýmsum smærri útgerðarmönnum, þess efnis, að verksmiðjan á Sólbakka verði opnuð almenningi til afnota, og vonandi sér þessi hv. d. sér fært að afgr. málið sem fyrst.