21.11.1933
Neðri deild: 15. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 114 í B-deild Alþingistíðinda. (142)
2. mál, kosningar til Alþingis
Dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):
Mér kemur það ekki á óvart, þó að langar umr. verði um ýms atriði þessa máls og ágreiningur. Svo stendur á, að ágreining öllum hefir verið skotið yfir á þessa 3. umr., svo að það er ekki að furða, þó að miklar umr. spinnist út af málinu. Ég ætla ekki að tala langt mál, en þó verð ég að fara fáeinum orðum um ágreiningsatriðin, og þá helzt þau, sem mest bar á hjá nefnd þeirri, sem hafði með höndum undirbúning frv. Hv. þm. N.-Ísf. vill ekki, að sýslumenn og hreppstjórar séu sjálfkjörnir formenn kjörstjórnar, en hann heldur því fram, að þeir flestir eða allir muni ná kosningu í kjörstjórnirnar, þótt þeir væru ekki sjálfkjörnir til þess. Þar með hefir hann sjálfur slegið öll vopn úr höndum sér, og einu rökin, sem hann hefir fram að færa, eru, að hann heldur, að það sé trygging fyrir óhlutdrægni manns, að hann sé fulltrúi stjórnmálaflokks í kjörstjórninni. Hann vill, að þessir menn séu fulltrúar ákveðins flokks, í stað þess að vera óhlutdrægir formenn nefndanna. Það væri í alla staði óheppilegt, og það er ekki í neins þágu, að gerður sé leikur að því, að þessir menn skoði sig sem umboðsmenn fyrir flokk, í stað þess að vera óvilhallir formenn. Það er líka miklu betra fyrir almenning að vita það fyrirfram, hvaða menn eru formenn kjörstjórna, því að svo getur auðveldlega farið, að þeir verði ekki formenn, þótt þeir nái kosningu, ef ekki er svo ákveðið í lögunum. Það getur orðið sitt á hvað um það, hverjir verði formenn. Hér er því um brtt. að ræða, sem er óhagstæð öllum almenningi. Ég tel, að í flestum tilfellum muni svo fara um kosningar í kjörstjórnir, að þar nái sæti einn maður af hvorum aðalflokk, þar sem kosið er hlutfallskosningu, og svo er einn lögákveðinn, sem ber aðalábyrgðina. Þetta mun reynast langheppilegasta fyrirkomulagið.
Þá hefir og orðið ágreiningur út af kjördeginum. Í frv. er gert ráð fyrir næsta sunnudegi eftir þann dag, sem Alþingi samþykkti 1929 með geysimiklum meiri hl. Hv. þm. getur fallizt á dag eftir miðjan júní, því að hann sér það, að krafa jafnaðarmanna um kjördag að hausti er mjög ósanngjörn, því að það er ekkert vit í því að velja myrkur til þessarar athafnar, þegar völ er á degi þegar bjart er bæði að degi og nóttu. Auk þess er allra veðra von að hausti, og ekki rétt að tefla kjörsókn í slíka tvísýnu.
Enn hefir orðið ágreiningur um landslistann, eða öllu heldur neðri hluta kjörseðilsins, hvort hann skuli vera auður eða ekki. Ég get ekki gert mikið úr þeirri mótbáru hv. þm. N.-Ísf., sem kom fram bæði í undirbúningsnefndinni og við umr., að með því að hafa listanöfnin á kjörseðlinum sé verið að narra kjósendur til þess að krota við þessi listanöfn. Það er auðvitað ekki frekar verið að narra kjósendur í því heldur en verið er að villa þá með því að hafa mörg nöfn á efri hluta seðilsins. Rökrétt afleiðing af þessari kenningu hv. þm. er, að hann ætti að óska þess, að kjörseðillinn sé hafður alveg auður, og að kjósendur skrifi sjálfir nöfn þeirra frambjóðenda, sem þeir vilja kjósa. En það er auðsætt, að slíkt er endileysa, og vitanlega er langauðveldast að setja 1 eða 2 krossa við ákveðin nöfn, og það er ekkert við það að athuga að á seðilinn séu skráð nöfn frambjóðenda og tilfært, hverjir að listunum standi. Allir ættu að vera sammála um, að hér er ekki annað á ferðum en tilraun til þess að koma á fullu samræmi í kosningaraðferðinni, með því að nota kross bæði við kjördæmakjör og landslistakjör. Það er ekki stórvægilegt atriði, sem á milli ber, en ég get ekki skilið, hvers vegna hv. þm. og fleiri vilja ekki létta undir með þeim, sem landslistann kjósa, á sama hátt og þeim, sem kjósa kjördæmaframbjóðendur.
Þá er röðunin á landslistann. Hv. þm. N.-Ísf. telur, að einhverskonar samningur hafi verið gerður í fyrra um það, að ekki mætti gera frekari kröfur í þessum efnum heldur en þær, sem stjskr. heimtar. Ég verð að segja hv. þm. það, að ég veit ekkert um slíkan samning. í stjskr. stendur, að a. m. k. annaðhvort sæti tíu efstu manna á landslistanum skuli skipað frambjóðendum utan Rvíkur. Ég get ekki skilið þetta „að minnsta kosti“ þannig, að það leggi nokkrar hömlur á frekari kröfur á þessu sviði, og þegar ágreiningur varð um þetta í fyrra, var því og haldið fram, að frjálst væri að herða á þessum kröfum, en þá fekkst ekki samkomulag um að breyta þessu ákvæði stjskr. Svona skildi ég ákvæðið, enda væru orðin „að minnsta kosti“ alveg þýðingarlaus, ef þingið væri klafabundið við að láta þetta nægja og mætti ekki gera víðtækari kröfur um frambjóðendur á landslista, og ef það er brot á stjskr., þá er það líka brot á stjskr. að heimta það, að allir frambjóðendur utan Rvíkur skuli vera á landslistanum. Að öðru leyti get ég um þetta vísað til aths. við frv., og ég get ekki horfið frá því, að enginn samningur hafi verið til um þessi atriði, enda var þá jafnframt haldið fram, eins og ég tók fram áðan, að heimilt væri að gera frekari kröfur í kosningalögunum.
Þá má og minna á það, að það gengur ekki í rétta átt, að því er mér virðist, að láta stjórnmálafl. hafa heimild til að ákveða, hverja frambjóðendur skuli hafa á lista, meira en nauðsynlegt er. Það er sannarlega ekki spor í lýðræðisátt, að heimila flokkstjórnum að velja þm. En sú verður afleiðingin af skoðun hv. þm. N.-Ísf„ að ég hygg. Flokksstjórnirnar geta látið í annaðhvort sæti 10 efstu manna listans þá menn, sem eru vissir að komast að af frambjóðendum úti á landi, og með þessu móti ræður flokksstjórnin öllum, sem komast í uppbótarsæti. Þetta er ekki spor í þá átt, sem frv. annars stefnir í, sem sé þá, að láta þá menn eina komast á þing, sem hafa sýnt það, að þeir hafi traust kjósenda úti um land.
Þá vil ég aðeins nefna 117. gr. Skal ég fúslega viðurkenna, að þar hefir n. yfirsézt, eins og hv. þm. N.-Ísf. hefir játað. (VJ: Ég hefi aldrei neitað því). Mér fannst fyrst, að hv. þm. ekki beint viðurkenna það. En það er bezt að viðurkenna það hreint og greinilega, þegar manni verður eitthvað á. Aftur á móti gerði hv. þm. V.-Húnv. meira úr þessari yfirsjón en rétt var. Þetta er nú allt komið til leiðréttingar. Það er ekkert undarlegt, þó að eitthvert ósamræmi geti slæðzt inn í svo stóran lagabálk sem þennan við fyrstu meðferð. En ég vildi óska, að ekki kæmi fram, eftir að Alþ. hefir afgr. þetta kosningalagafrv. sem lög, smugur á því, sem hefði þurft að byrgja. Það er skarpskyggni hv. þm. V.-Húnv. að þakka, að þetta ósamræmi komst til leiðréttingar.
Þá vildi ég segja nokkur orð viðvíkjandi valdi miðstjórnanna. Ég álít yfirleitt, að rétt sé að takmarka það vald eins og fært er. En náttúrlega má ekki ganga svo langt í því, að af því hljótist ringulreið í flokkaskipun, því að þetta frv. og stjskrbreyt., sem eflaust verður samþ., eru svo mikið byggð á flokkaskipulagi. Hinsvegar verð ég að segja, að hingað til hefir það sjaldan eða aldrei komið fyrir, að flokkur hafi beðið tjón við það, að miðstjórn hans hafi ekki haft nægilegt vald til að ákveða framboð. Mun ég því greiða atkv. með till. hv. þm. V.-Húnv. um þetta.
Um brtt. hv. 2. þm. N.-M. er það að segja, að hann er á villigötum, þegar hann talar um óháða kjósendur sem sérstakan flokk. Hann virðist ekki hafa athugað það, að ef hér er um sérstakan flokk að ræða, þá hefir sá flokkur allan sama rétt og aðrir flokkar um framboð samkv. þessu frv. En ef óháðir kjósendur eru ósamstæður hópur með tilliti til stjórnmálastefnu, þá á sá hópur ekki að hafa nein réttindi sem flokkur út af fyrir sig. Það er ekki sagt, að neitt band sé á milli þeirra. Þess vegna er ómögulegt að láta þá fá uppbótarsæti, því að eftir ákvæðum stjskrfrv. getur aðeins samstæður stjórnmálafl. átt kröfurétt til uppbótarsæta.
Að síðustu vil ég nefna till. um aukakjördag, á þskj. 76. Hv. þm. Snæf. hefir að vísu sagt flest, sem segja þarf um það efni. Vil ég þó benda á eitt atriði til viðbótar.
Þar er lagt til (á þskj. 76), að í kjördeildum utan kaupstaða og kauptúna, þeirra, sem samkv. síðasta manntali hafi haft yfir 300 íbúa, sé skylt að halda aukakjörfund daginn fyrir hinn almenna kjördag, ef a. m. k. þriðjungur kjósenda innan kjördeildarinnar sendir undirkjörstjórn skriflega áskorun um það eigi síðar en viku fyrir kjördag.
Ég held, að ef hrepparnir eru búnir að nota sér heimild þá, sem í þessu frv. felst um að hreppum megi skipta í sundur í kjördeildir, þá muni þeir vera teljandi hrepparnir hér á landi, sem þetta ákvæði hefir nokkra þýðingu fyrir. Mun ég af greindum ástæðum greiða atkv. á móti þessari mjög svo þýðingarlitlu og óþörfu brtt.