04.12.1933
Sameinað þing: 8. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 461 í D-deild Alþingistíðinda. (1422)
57. mál, varalögregla
Eysteinn Jónsson:
Ég var ekki viðstaddur á laugardaginn vegna lasleika, og veit því ekki, hvaða skeytum hefir þar verið beint til mín. En ég ætla aðallega að athuga ræðu hv. 1. landsk. Röksemdir hans eru ef til vill ekki óskyldar þeim, sem hann vanalega notar, því þær eru á þá leið, að hann slær föstu einhverju atriði, sem er alveg rangt, og byggir síðan á því, an þess að skeyta nokkuð um, þótt undirstaðan sé röng. Það, sem hann byggir á í þessu máli, er, að þeir, sem leyfa sér að andmæla honum, séu kommúnistar. Um það var mestur hluti ræðu hans og á því voru andsvörin byggð. Það væri alveg hliðstætt, ef ég slægi því föstu, að hv. 1. landsk. væri nazisti, og því óþarft að eyða orðum að því, sem hann segir. Þessa aðferð mun ég samt ekki viðhafa, enda gerist þess ekki þörf. Ég þarf ekki að lengja umr. með hugleiðingum um það, hvort ég er kommúnisti eða ekki. Einkenni þeirra er, að þeir vilja rífa niður þjóðskipulagið með ofbeldi og byltingu. Geti hv. þm. ekki vitnað í ræðu eða rit, þar sem ég gerist stuðningsmaður slíkrar stefnu, falla ummæli hans um sjálf sig.
Lögreglan segir hann að sé ætluð til þess að verjast spellvirkjum kommúnista. Þegar hann svo fer að láta í ljós skoðanir sínar um það, hverjir séu kommúnistar, þá telur hann með þeim m. a. mig, hv. Alþfl.menn í d. og yfirleitt alla, sem eru honum andstæðir og mæla á mdti lögreglufirrum hans. Af þessu mætti álykta, að varalögreglan eigi að vera nokkurskonar pólitískur lífvörður sjálfstæðismanna. Með þessu bendi ég bara á, hvert firrur hv. l. landsk. leiða. Hv. 1. landsk. þóttist hafa eftir mér, að lögreglan væri ónóg. Það er rangt, ég sagði, að 60 manna sveit mundi ekki nægja til þess að bæla niður uppreisn. En hitt sagði ég ekki, að þróttur kommúnista væri svo mikill, að lögreglan fengi ekki staðizt þá. Ég vil vara hv. 1. landsk. við að blanda slíku saman. En bezt rök máli mínu til stuðnings komu frá hv. 1. þm. Reykv., flokksbróður hv. 1. landsk., þar sem hann sýndi fram á, hve lítið fylgi ofbeldisstefnan hefði. Alvarlegasta tilfellið var, þegar nokkrir æstir unglingar og jafnaðarmenn létu kommúnista halda sér undir kylfur lögreglunnar 9. nóv. Um þetta allt er ekki á öðru að byggja en þeirri reynslu, sem við höfum af uppþotum, en hún er á þá lund, að þau hafa öll verið smávægileg, nema þá helzt þegar Alþfl. lét flækja sér út í þau eins og 9. nóv. En þegar stofna skal til varalögreglubákns, sem kostar 2–3 hundruð þús. krónur, þá hvílir á þeim, sem þess óska, að sanna, að þörf sé á slíku. Fyrir þeirri þörf tel ég engin veigamikil rök hafa verið færð. Landsmenn eiga heimtingu á að fá greinargerð um þá nauðsyn, sem til þess rekur að skylda þá til þess að láta af hendi fé sitt til uppihalds þessari varalögreglu.
Það hefir sýnt sig, að viðbótartill. mín er mjög nauðsynleg. Hér hafa komið fram lögskýringar, sem ganga í þá átt, að það sé ekki heimtað, að búið sé að uppfylla skilyrði 1. gr. laga um lögreglumenn áður en varalögregla er stofnuð. Þó veit hver sá, sem að afgreiðslu þessara laga stoð, að slíkt er skýlaus skylda, áður en menn utan bæjanna eru látnir greiða til varalögreglunnar. Þessi skilyrði voru einmitt sett í lögin til þess að koma í veg fyrir, að lögreglukostnaðurinn kæmi að óverðskulduðu niður á sveitafólki. En það hefir samt alltaf verið meiningin hjá íhaldinu, að láta óviðkomandi fólk bera þennan herkostnað fyrir Reykvíkinga, og hafa þeir nú fengið hv. hm. Snæf. til þess að skýra lögin á þann hátt, að Reykjavíkurbær geti skotið sér undan að fjölga lögreglumönnum skv. ákvæðum laga um lögreglumenn. En trúi því ekki, að nokkur fulltrúi fyrir sveitakjördæmi geti undan því skorazt að fylgja brtt. minni, sem á að koma í veg fyrir, að Reykjavík verði leyst undan þessari skyldu. Ég trúi því mjög vel, að hv. 1. landsk. telur viðbótartill. mína sízt til bóta, þar eð með henni verður ákveðið, að hann og flokksbræður hans geti ekki rangfært lögin og skotið sér undan að uppfylla skyldur þær, sem í þeim eru ákveðnar, eins og þeir hafa ætlað sér og hann virðist hafa átt frumkvæði að.