04.12.1933
Sameinað þing: 8. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 465 í D-deild Alþingistíðinda. (1426)

57. mál, varalögregla

Haraldur Guðmundsson [óyfirl.]:

Ég efast ekki um, að hv. 1. þm. Reykv. hafi mælt af heilum hug, þegar hann benti á, að lögreglunnar væri ekki eingöngu þörf gegn kommúnistum, heldur líka gegn hv. 2. þm. Reykv. og þeim, sem hv. 1. landsk. nefnir einkaritara kommúnista. En ég er hræddur um, að þá þurfi að fjölga varalögreglumönnum allmikið. Ég held, að ég muni það rétt, að hv. 2. þm. Reykv. hafi fengið 3500 atkv. við síðustu kosningar; en það er þá meira en 10% af bæjarbúum, sem þessum mönnum stendur stuggur af. Og hvað skyldi þurfa marga á Akureyri og Siglufirði? Úr því að gegn 10% hér þarf 100 manna sveit, þá þarf 80–90 á Akureyri! Annars sný ég mér ekki frekar að hv. 1. þm. Reykv., það mun hv. sessunautur minn, 2. þm. Reykv., gera. En ég vil þó aðeins benda honum á, að það er ekki sama, vilji meiri hl. bæjarstj. og vilji bæjarmanna.

Eftir að friður var á kominn þorði bæjarstjórnaríhaldið ekki að hefja nýjar tilraunir til kauplækkunar. (JakM: þm. var austur á Seyðisfirði). Rétt er það, en ég veit, að aldrei hefði til þessa dregið, ef ekki hefði verið gerð þessi fúlmannlega tilraun, þessi þokkalega tilraun, sem átti að vera nokkurskonar forsöngur að allsherjarlaunalækkun um land allt. Hv. þm. veit vel, að það var meiri hl. bæjarstj., sem ætlaði sér að koma fram kauplækkun. Það mistókst, af því að meiri hl. bæjarmanna var á móti því. (JakM: Ríkisstj. hafði neitað að leggja fram fé á móti bæjarsjóði til atvinnubótavinnu, en bæjarsjóður hafði ekki nóg fé til hennar. Eftir óeirðirnar bauð ríkisstj. fram fé, og það jafnvel meira en áður hafði verið beðið um. Það var þetta, sem gerði það að verkum, að bæjarstj. gat greitt hærra kaup, en alls ekki að hún hefði tekið neinum sinnaskiptum). Ég veit, að þessi ástæða er búin til eftir að allt þetta gerðist. En þar sem þessi hv. þm. hefir aðallega beint orðum sínum til hv. 2. þm. Reykv., ætla ég ekki að svara honum frekar.

Ég ætla þá að fara að mannvirðingum og taka fyrst til athugunar það, sem hæstv. dómsmrh. sagði síðast þegar þetta mál var rætt. Hæstv. dómsmrh. sagði, að ég hefði talað eins og ég væri kominn á kosningafund, en ekki eins og ég væri að ræða um lítilfjörlegt þingmál. Ég hefi hann sið að flytja svipuð mál á sama hátt, hvort heldur er á kosningafundi eða annarsstaðar. Þó að það sé síður hæstv. dómsmrh. og hans flokks að flytja eitt á kosningafundum og annað á Alþ., þá er það sízt lofsvert, og mun ég ekki taka þann sið upp. Um það, hversu lítilfjörlegt þetta er, verður hver að dæma frá eigin brjósti. Ég tel það ekki lítilfjörlegt þingmál, þegar um er að ræða að eyða 400 þús. kr. í lögreglubrölt og vitað er, að það er hin mesta þörf fyrir þetta fé til annara og þarfari hluta, eins og bent hefir verið á. Að hæstv. dómsmrh. finnst þetta lítilfjörleg eyðsla, er augljóst, þar sem hann gerir enga tilraun til þess að benda á, hvað lögreglan hefir afrekað. Það skyldi þó aldrei vera sú ástæða til þess, að ekki sé hægt að benda á neitt slíkt, — að hún hafi ekkert gert.

Hæstv. dómsmrh. segir, að það sé rangt, að allur þorri alþýðu sé á móti stofnun ríkislögreglu, en hann hefir oft rekið sig á það, að flokkur hans hefir barið það í gegn í þinginu, sem hefir átt litlum vinsældum að fagna meðal landsmanna.

Á síðasta Alþ. sýndi ráðh. óvenjulega skaphörku við þetta mál, þar sem hann neitaði hv. 2. þm. Reykv. um að sjá skjöl þau, sem sýndu kostnað ríkislögreglunnar. Hæstv. ráðh. áleit ekki heppilegt, að þessi plögg yrði lýðum ljós, og vissi, að þau mundu ekki auka vinsældir ríkislögreglunnar, og það hefðu þau vissulega ekki heldur gert.

Hæstv. dómsmrh. talaði um, að ósamræmi hefði verið milli fyrri og síðari hluta ræðu minnar, þar sem ég sagði, að í Rússlandi hefði herinn orðið verkfæri í hendi bolsivismans til að koma byltingunni á, og svo aftur, að tilgangur íhaldsins með stofnun ríkislögreglu væri að koma í veg fyrir byltingu. Í þessu er ekkert ósamræmi. Ég fullyrði, að það hefir ekki verið tilgangur keisarastjórnarinnar rússnesku, þegar herinn var settur upp, að hann yrði til þess að gera byltingu, og mér dettur heldur ekki í hug, að tilgangur stj. hér með því að hrófla upp ríkislögreglu sé sa, að koma á stað byltingu. En það gæti farið þannig, og þá er engu hægt að spá um, hvernig vopnin kynnu að snúast í þeirra höndum, þó að menn sjái nú ekki drauga um hábjartan dag, eins og hv. 1. landsk.

Mér þótti dálítið undarlegt, að hæstv. dómsmrh. skyldi ekki kannast við lið Heimdellinga, sem æfir í Kveldúlfsporti. En svo minnist ég þess, að í Morgunblaðinu var sagt frá því, að fánalið Sjálfstfl. hefið farið heim til þm. Snæf. eftir kosningarnar síðustu og hyllt hann vel og skörulega, og hrópað húrra fyrir Ólafi Thors og Jóni Þorlákssyni, en dómsmrh. hafði einhverra hluta vegna orðið útundan, og þá fór mér að skiljast, hvers vegna minni hans var svona bágborið. (TT: Dómsmrh. var ekki í bænum).

Svo að ég hverfi til alvörunnar aftur, þá er það vitaskuld fyrirsláttur, að hæstv. dómsmrh. kannast ekki við þessa liðsöfnun; hún hefir ekki verið svo lítið auglýst í flokksblöðum hans. Hv. þm. Snæf. kannast líka við þetta lið, þó að hann segi ekki allan sannleika þar um.

Svar hæstv. dómsmrh. við þeirri spurningu, hvort eftirlit væri haft með skotfærasölu og vopna, var heldur bágborið. Hann kvað vera samskonar eftirlit með verzlunum, sem seldu slíkt, og væri við aðrar verzlanir, og hygg ég, að það þýði, að eftirlitið sé ekkert. Þegar litið er til þeirrar skelfingar, sem hefir gripið þá hv. 1. landsk. og hv. 1. þm. Reykv., virðist ekki óeðlilegt, að þetta yrði athngað.

Ekkert vissi hæstv. ráðh. heldur um, hvort lögreglan hefði fengið vopn eða áhöld eða hverskonar áhöld hún ætti að nota; hvort það væru barefli, byssur eða gas, hafði hann ekki hugmynd um. mér þykir það óafsakanlega lítil forvitni hjá hæstv. dómsmrh. sem æðsta yfirmanni þessa fyrirtækis, að hafa ekki kynnt sér þetta betur en fram hefir komið. Annars er ég þess fullviss, að hæstv. ráðh. veit þetta vel. (JakM: Veit hv. þm. þetta ekki sjálfur?). Ég hefi ekki svo öruggar heimildir, að ég geti ekki búizt við, að hv. 1. þm. Reykv. segi mig ljúga því.

Hæstv. ráðh. lauk ræðu sinni með því að minna mig á, að það sæti ekki á mér að vera að skýra lög, þar sem svo lærður maður sem hann væri annarsvegar. Ég get lesið venjulegt mál, þó að hitt sé rétt, að hæstv. dómsmrh. er mér miklu lagnari við að teygja lög og skapa lagakróka. Mér er ekki grunlaust um, að við framkvæmd sumra þeirra laga, sem hann hefir með að gera, sé um hreina og beina lagakróka að ræða.

Þá vil ég víkja nokkrum orðum að hv. þm. Snæf. Hann eyddi miklu af ræðu sinni til að veita mér ákúrur fyrir framkomu mína hér í þinginu og taldi í því sambandi upp ýmsa eiginleika, sem ég ætti að hafa. Ég hygg, að hv. þm. Snæf. standi mér jafnfætis þar, ef ekki skör framar, og í því sambandi vil ég minna á, að sumir sjá betur flísina í auga náungans en bjálkann í sínu eigin auga. Mér virðist þetta snerta málið næsta lítið og sleppi því frekari hugleiðingum um það. En þessi hv. þm. flutti hér kenningu á þinginu, sem mér virðist vera alveg ný. Hann spyr, hvað það komi málinu við, hverju búið sé að eyða í ríkislögreglu. Féð sé eytt og fáist ekki aftur. Ég hefi hingað til skilið svo framkomu sjálfstæðismanna, bæði í ræðu og riti, sem þeir hafi ekki lifað eftir þessari kenningu hv. þm. Ég man ekki betur en þeir hafi átalið mjög fjármalastjórn Framsfl. undanfarin ár, og ég veit ekki betur en mikið af ræðum manna snúist á þann veg, að deila á það, sem þegar hefir verið gert. Það er næsta örðugt að deila um hluti, sem ógerðir eru. Það yrði lítið um eldhúsdag, ef menn forðuðust að tala um afglöpin, sem búið er að gera. Ég býst ekki við, að þessi nýja kenning hv. þm. Snæf. eigi hér heima og að hún hafi fylgi hér á Alþ. Það er vitaskuld jafnsjálfsagt að veita ákúrur fyrir það, sem illa er gert, eins og að meta það, sem vel er gert.

Hv. þm. fullvissaði þingheim um, að ekki væri ástæða til að hræðast lðið í Kveldúlfsporti, og að þar væri ekki verið að æfa hernaðarbrögð, heldur væru þeir þarna að æfa sig í leikfimi og sömuleiðis að aefa fagran limaburð og fallega framkomu, og þar fyrir utan ferðalög um bæinn til þess að hylla foringja sína. Ég skal ekki draga það í efa, að þessar fögru listir séu iðkaðar þar, en ég efast um, að þetta sé það eina, sem æft er þar, og í fullri alvöru segi ég það, að enginn vafi er á því, að nú þegar er það komið á daginn, sem við jafnaðarmenn spáðum, þegar l. um varalögregluna voru samþ., að það yrði til þess, að fleiri færu að draga saman lið í landinu, til þess að vera viðbúnir því, sem kynni að gerast. Það er enginn vafi á því, að sá er tilgangurinn með stofnun þessara liðsflokka, og mér finnst satt að segja of lítil hreinskilni af mönnum að viðurkenna þetta ekki. Hv. þm. Snæf. sagði, að Sjálfstfl. ætti drýgstan þátt í þeirri lýðræðisbaráttu, sem nú er verið að leiða til lykta. Ég skal ekki neita því, að þeir hafa lagt þar góðu máli lið, og vildi ég óska, að á því yrði framhald, þó að ég hinsvegar verði að draga það í efa, að svo verði. Hv. þm. spurði, hvað liði Alþýðuflokksliðinu. Hv. 1. þm. Reykv. var eitthvað að upplýsa um Það áðan. Ég veit ekki, hvort hv. þm. Snæf. nægir það, en ég er fullviss þess, að varalögreglan verður ekki til að varðveita friðinn í landinu, þar sem jafnhliða henni spretta upp margir liðsflokkar.

Hv. þm. Snæf. sagði, að sjálfst.menn væru sönnustu umbotamennirnir. Því væri ekki að neita, að þjóðskipulagið væri gallað, en þeir vildu samt ekki afnema það, heldur væru þeir frjálslyndir umbótamenn. Þetta er fagurlega talað, en hverskonar umbætur eru það, sem hv. hm. hefir í huga, þegar hann talar um umbótavilja Sjálfstfl.? Vitaskuld er það, að menn greinir mjög á um, hvað séu umbætur. Einum virðist þetta og öðrum hjtt, og allir þykjast vera umbotamenn. Hv. þm. lét enga skýringu fylgja þessu. Mér dettur því í hug að minna á umbótastarfsemi, sem Sjálfstfl. hefir haldið uppi og ekki er ólíklegt, að hann haldi áfram með, eins og t. d. þær umbætur á atvinnubótavinnunni að lækka kaup þeirra manna, sem höfðu 100 kr. á mánuði, um þriðjung. Þessi umbótatilraun var gerð 9. nóv. í fyrra, með þeim afleiðingum, sem kunnugt er.

Það má nefna þær umbætur á áfengislöggjöfinni, sem hann og hans flokkur eru mjög fylgjandi. Þeir vilja bæta áfengislöggjöfina með því að flytja whisky og brennivín inn í landið. (TT: Hvað sagði þjóðin?). Það var lítill hluti þjóðarinnar, sem sagði nokkuð um það.

Viðvíkjandi umbótum á fiskveiðalöggjöfinni sagði hv. þm., að sér kæmi í hug, að leyfð yrði togaraveiði í landhelgi á beztu miðunum. Frá hans sjónarmiði eru þetta víst umbætur. Einn hv. þm. vildi láta umbæta kosningalögin og stjskr. þannig, að Reykjavík fengi einn þm.

Ég hefi bent á þessi dæmi til að sýna fram á, að það er ekki nóg, að menn segist vera umbótamenn. Þeir verða líka að gera grein fyrir, hverskonar umbótum þeir óska eftir.

Eins og nú er háttað kjörum manna í þessu þjóðfélagi, þá er það í mörgum tilfellum svo, að þjóðskipulagið er til hagsbóta fyrir einn og óhags fyrir annan. Þess vegna er það, að þegar talað er um umbætur í atvinnumálum, þá verða menn að taka það fram, hvað þeir telja hagsmuni. Ég veit t. d., að hv. 1. landsk. — og ég hygg þessi hv. þm. líka — álítur, að umbæta þurfi mjög skatta- og tollalöggjöfina og að umbæturnar þurfi að smia að því að lækka beina skatta af hátekjum og eignum, en auka tolla. Það er enginn vafi á því, að þetta eru umbætur fyrir þá, sem beinu skattarnir lenda harðast á, en til mikillar bölvunar fyrir þá, sem tollarnir mæða mest á.

Hann teldi það líka hagsbætur fyrir útgerðarmenn, t. d. útgerðarfélagið, sem hann er riðinn við, að kaupið lækkaði og gróðinn yrði meiri fyrir félagið.

Hv. þm. kvaðst vera mjög á móti því að setja allt undir einn stóran og ljótan stjórnarhátt og þótti það lítið lýðræði að mæla slíku bót. Ég veit nú ekki til þess, að ég hafi komið með nokkra tillögu um að setja yfirleitt nokkurn undir stjórnarháttinn, sem hann talaði um. En ég veit, að einmitt athafnamennirnir í hans flokki leggja kapp á að fá sem mest af atvinnurekstrinum undir einn hátt, og þá væntanlega nýjan og strokinn silkihatt. Með þessu á ég við það, að mér skilst, að þessi hv. þm. sé því mjög fylgjandi, að atvinnu- og verzlunarfyrirtæki séu rekin sem mest saman og að það sé betri grundvöllur til góðrar fjárhagsafkomu heldur en dreifð verzlunar- og atvinnufyrirtæki. Hinsvegar lítur hv. þm. svo á, að ef hið opinbera fæst við slíkan atvinnurekstur þá sé slíkt til mestu ógæfu. Ég skil vel þessa skoðun hv. þm. Fyrir hann eru það sjálfsagt umbætur, að fyrirtæki hans sé sem staerst og nái sem beztum tökum á afkomumöguleikum sem flestra vinnuþiggjenda. En þeim, sem byggja vinnu sína á þessum fyrirtækjum, myndi þykja sinn hlutur miklu betri, ef þeir hefðu sjálfir yfir þessum stóru fyrirtækjum að ráða og vinnukjörum sínum, án þess að þurfa að leita þar um til annara.

Hv. þm. lauk ræðu sinni með því, að ég væri ekki svo byltingalega vaxinn, að líklegt væri, að ég færi að stofna til neinna stórræða á því sviði. Í því sambandi vil ég benda honum á ummæli flokksbræðra hans, þeirra hv. 1. landsk. og hv. 1. þm. Reykv., þar sem þeir beina því ákveðið að nafngreindum mönnum hér, að þörf sé á að beita á þá ríkislögreglu engu síður en kommúnista. Þar með er fengin full viðurkenning fyrir því, sem ég hélt fram í síðustu ræðu minni hér, að ríkislögreglunni yrði fyrst og fremst beint gegn öllum þeim, sem Íhaldsflokknum á hverjum tíma þóknast að kalla kommúnista eða hættulega andstæðinga. það er hægt að finna sannanir fyrir því, að ríkislögreglunni er ætlað að vinna í kaupdeilum. Fyrsti flm. þessa máls, Jón heitinn Magnússon, sagði það hispurslaust, að ríkislögreglunnar væri þörf, ekki aðeins í kaupdeilum. Fyrst og fremst í kaupdeilum, og svo þegar eitthvað annað stæði til.

Að endingu ætla ég að víkja örfáum orðum að hv. 1. landsk., sem einnig hafði nokkuð við ræðu mína að athuga. Hann taldi, að erfitt myndi að gifta tvo tengdasyni einni dótturinni, í sambandi við þann samanburð, sem ég gerði hér á því fe, sem eytt hafði verið til varalögreglu, og því, sem hægt hefði verið að nota það til. En þetta ósannar ekkert af því, sem ég hefi sagt. Það, sem um var að ræða, var þetta, hverju af þessum verkefnum taldi stjórnin heppilegast að halda uppi, ríkislögreglu eða þá atvinnubótavinnu eða að leggja fé til einhverra þeirra fyrirtækja, sem ég nefndi í fyrri ræðu minni. Hv. 1. landsk. vildi halda því fram, að eftirtekja af störfum ríkislögreglunnar hefði orðið mikil, því að „hvers virði væri það ekki að hafa frið í landinu“. En mér virtist skjóta nokkuð skökku við hjá honum, þar sem hann syndi enga viðleitni til að benda á, að lögreglan hefði afstýrt neinum ófriði. Það hefir heldur ekki komið til þess, því að 9. nóv. var liðinn, þegar ríkislögreglan var stofnuð, og hefir aldrei þurft til hennar að grípa, enda hefir ekki síðan verið gerð nein svipuð tilraun til þess að niðast á verkalýðnum, Hv. þm. talaði um, hvort ekki hefði verið betra, að allri þeirri orku, sem á Sturlungaöldinni var eytt í mannvíg og flokkadeilur, hefði verið varið til að smíða skipastól og sigla til Noregs o. s. frv. Ég sé ekki betur en að með stofnun varalögreglunnar se, eftir því sem fram hefir komið, einmitt verið að stofna til svipaðra flokkadeilna eins og voru á Sturlungaöldinni. Fyrst er varalögreglan stofnuð, svo eftir sögn hv. 1. þm. Reykv. flokkslið Dagsbrúnar, síðan fánaliðið, og kommúnistar hafa sitt lið og nazistar einnig sitt. það er alveg víst, að allur þessi liðsöfnuður er ekki stofnaður til þess eingöngu að æfa fagran limaburð. Finnst mönnum svo friðvænlegra eftir en áður, þegar þær stéttir, sem mest eiga í höggi hver við aðra, hafa komið sér upp liðsflokkum, til þess að þeir, vitanlega hver um sig, verji hagsmuni sinnar stéttar ?

Hv. 1. landsk. varpaði fram þeirri spurningu, hvað önnur ríki legðu mikið af mörkum til þess að vernda friðinn, og lét hann svo um mælt í því sambandi, að við íslendingar værum ekki hátt á blaði um þetta í samanburði við aðrar þjóðir. Kann þetta rétt að vera, en við það er þó að athuga, að herliði erlendra þjóða er a. m. k. svona í orði kveðnu haldið uppi vegna erlends óvinar, en neinu slíku er ekki til að dreifa hér, enda er það sannleikurinn, að þessi mikli vígbúnaður þjóðanna hefir siður en svo orðið til að varðveita friðinn þeirra á millj, heldur þvert á móti leitt til hins ægilegasta ófriðar, sem sögur fara af.

Þá vildi hv. 1. landsk. halda því fram, að ég hefði biðlað til tveggja aðilja í ræðu minni, til þeirra, sem kalla mætti, að væru á landamærunum á milli kommúnista og alþýðuflokksmanna, og til ungfrú eða maddömu „framsóknar“, eftir því, hvernig menn vilja haga titlinum. Í sambandi við biðilsfarir okkar alþýðuflokksmanna til „framsóknar“, sem íhaldsmönnum verður jafnan svo tíðrætt um nú í seinni tíð, vildi ég mega benda á það, að þetta er ekki rétt orðað hjá hv. 1. landsk. Samkv. íslenzkri málvenju mundi eiga að kalla okkur alþýðuflokksmenn hjónadjöful, því að við viljum einmitt komast upp á milli íhaldsmanna og „framsóknar“, sem undanfarið hafa lifað saman í hinni innilegustu sambúð, og rekkja enn saman með óþreyttu ástríki. Ótti hv. íhaldsmanna fyrir því, að okkur alþýðuflokksmönnum takist að komast upp á milli þeirra og maddömu „framsóknar“, veldur því, hvað þeir leggja okkur þetta illa út. Annars skildist mér á hæstv. dómsmrh., að það væri afráðið, að hann sæti áfram sem rekkjunautur hæstv. forsrh. í stj., enda hefir hæstv. dómsmrh. verið óvenju broshýr í seinni tíð, sem verður einmitt vel skiljanlegt út frá þessu, því að allir vita, að hæstv. dómsmrh. hefði fallið það illa að þurfa að fara og yfirgefa holuna sína hjá maddomu „framsókn“.

Hv. 1. landsk. upplýsti það ennfremur, að það hefði verið eðlilegt, að hv. íhaldsmenn sneru sér ekki að lýðræðismálunum fyrr en eftir kosningarnar 1931, af því að su takmörkun á lýðræðinu, sem fólst í hinni gömlu kjördæmaskipun, lenti ekki á þeirra flokki fyrr en eftir 1931. Lýsir þetta flokki hv. 1. landsk. alveg ágætlega, að flokkurinn skyldi ekki sjá ástæðu til breyt. á kjördæmaskipuninni fyrr en hann varð sjálfur fyrir barðinu á henni, og er gott að hafa þetta til samanburðar við okkur alþýðuflokksmenn, sem ávallt höfum barizt fyrir auknu réttlæti í þessum málum, eins og raunar öllum öðrum málum.

Ég vil að lokum leyfa mér að beina fyrirspurn til hæstv. forsrh. hér stendnr svo á, að við búum ekki við þingræðisstj. í landinu, heldur við konungsstj., og vildi ég mega grennslast eftir því, hvað liður skeytasendingum til konungs og viðræðum milli flokkanna um væntanlega stjórnarmyndun, og hvort ekki megi vænta þess, að hægt verði að koma upp þingræðistj. í landinu. Sjálfstfl. hefir 20 þm., og hefir hann lýst yfir hví, að hann sé reiðubúinn til stjórnarmyndunar með hæstv. forsrh., svo að ekki virðist standa á neinu nema hæstv. forsrh. sjálfum, því að ef hann aðeins vill leggja fram sinn stuðning við hina nýju stj., hefir stj. þar með fengið 21 þm. á bak við sig, sem útilokar það, að hægt sér að samþ. vantraust á stj. Vil ég fá að vita það hjá hæstv. forsrh., hvað þessum málum er komið og hvert horfir í þessum efnum. Stofnun þessa herliðs er á valdi stj., og enda þótt alltaf sé ástæða til að óttast misbeitingu á liðinu af hendi stj., er þó ekki sízt ástæða til að óttast misbeitingu í höndum stj., sem ekki stendur oðrum reikningsskap gerða sinna en konungi einum.