21.11.1933
Neðri deild: 15. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 118 í B-deild Alþingistíðinda. (143)

2. mál, kosningar til Alþingis

Bergur Jónsson [óyfirl.]:

Ég ætla nú ekki að fara almennt út í brtt. þær, sem hér liggja fyrir, en læt frsm. og flm. um það. En það er ein sérstök till., sem ég hefi ástæðu til að ræða um, vegna þess að ég hefi flutt hana með öðrum, og á hana hefir verið minnzt hér í d.

Það er kunnugt, að á undanförnum árum hefir verið allmikil krítik um kjördæmaskipunina á landi voru, sérstaklega af andstæðingum Framsfl. Því hefir verið haldið fram, og að mörgu leyti með réttu, að hún skapaði misrétti að því leyti að kosningarréttur manna væri misjafn eftir henni, eftir því hvar á landinu væri, sérstaklega að smærri kjördæmin hefðu gildismeiri atkvæði heldur en hin stærri, vegna þess að smærri kjördæmin hefðu tiltölulega fleiri þm., miðað við kjósendatölu. Auk þess hefir mikið verið blínt á það, að þingflokkar fengju ekki þm. í samræmi við atkvæðatölu þá, sem frambjóðendur flokkanna í heild fá. Þessi kjördæmaskipun, sem nú verður lögleidd, á að bæta úr þessu. En jafnframt þeim göllum, sem verið hafa á kjördæmaskipuninni að undanförnu, hefir annað misrétti einnig átt sér stað, og mun sérstaklega eiga sér stað eftir að sú nýja kjördæmaskipun kemur til greina, og það er munurinn á aðstöðu kjósenda í bæjum og kaupstöðum annarsvegar, og sveitum hinsvegar til að nota kosningarrétt sinn. Kjördæmaskipun sú, sem nú verður lögleidd, hlýtur að gera þennan aðstöðumun meiri en áður, vegna þess að nú hefir verið gengið í þá átt, að gera sem jafnast gildi atkvæðisréttar hvers manns, hvar sem hann er á landinu, án þess að tekið hafi verið tillit til aðstöðunnar til að nota kosningarréttinn. En þetta er ekkert lítið atriði; ég býst ekki við, að þurfi að deila um það. Annarsvegar í þessum samanburði eru menn, sem búa í strjálbýli, sem þurfa kannske yfir fjöll að fara eða alllanga leið á sjó og verða að yfirgefa heimili sín langan tíma til þess að geta notað kosningarrétt sinn. En hinsvegar eru þeir menn, sem í kaupstöðunum er ekið á kjörstaðinn; þeir eru sóttir heim til sín á kostnað flokks þess, sem þeir greiða atkv. sitt. Hv. stjskrn. hefir sama og ekkert tillit tekið til þessa aðstöðumunar. Hún hefir að vísu veitt heimild til að skipta hreppi í 4 kjördeildir. Áður var til heimild til að skipta hreppi í 3 kjördeildir, svo að munurinn er hér ekki mikill. Þess vegna höfum við nokkrir Framsóknarfl.menn í n. borið fram brtt. um að veita íbúum þeirra hreppa á landinu, sem óska þess, rétt til að fá dálítið meiri tíma til þess að nota kosningarrétt sinn heldur en verið hefir, m. ö. o. rétt til þess að geta haldið aukakjörfund daginn fyrir hinn almenna kjördag. Þessi heimild er í raun og veru miklu takmarkaðri en ég ætlaðist til. Hún er svo takmörkuð þessi leið, sem við höfum farið, að hún er aðeins heimild til þessa þar, sem 1/3 hl. hreppsbúa krefst þess. Og kjörfundurinn aukakjörfundardaginn á ekki að standa lengur en 5 klst. Ég held, að þótt þetta fyrirkomulag verði tekið upp, þá verði eins vel um hnútana búið eins og verið hefir í þessu efni. Það er nú ekki svo sem með þessu sé verið að troða þessu skipulagi inn á þá hreppa, sem ekki óska þess, svo að þeir hreppar, sem halda, að af þessu muni stafa einhver hætta, geta þá haft venjulega skipulagið á þessu. Hv. þm. Snæf. minntist á þetta með lítilsvirðandi orðum. Hann sagði, að hvergi mundi vera þörf á þessu, nema ef vera kynni í Barðastrandarsýslu. Það eru a. m. k. þrír hreppar í Barðastrandarsýslu, þar sem full þörf væri á þessari skipulagsbreyt., og ekki er hægt á annan hátt en með henni að ná þeim tilgangi, sem heimildin á að ná. Tveir af þessum hreppum eru margsundurskornir af fjörðum, smáum og stórum, og bæirnir úti á annesjum og innst inni í fjarðabotnum, einn og einn út af fyrir sig, og mjög óvíða stutt á milli þeirra. Hvergi eru skilyrði til kjördeildafjölgunar í þessum hreppum. Hið eina, sem hægt er þarna að gera til þess, að öllum kjósendum í þessum hreppum verði mögulegt að nota kosningarrétt sinn, er það, að hafa kjördagana fleiri en einn.

Þriðji hreppurinn er Flateyjarhreppur. Þar er kjörstaðurinn í kauptúninu. Margir bæir í þeim hreppi eru á eyjum, sem eru dreifðar um Breiðafjörð. Þarna er ekki hægt að koma því við að skipta heppilega í kjördeildir. En heimild til aukakjörfundar mundi bæta mikið aðstöðu íbúa þessa hrepps.

Ég er ekki gagnkunnugur víða á landinu, en ég veit, að samgöngur eru verri í mínu kjördæmi en viða annarsstaðar á landinu. Þrátt fyrir það eru fleiri staðir á landinu, sem mundu óska eftir að mega hafa 2 kjördaga.

Hv. þm. Snæf. sagði, að ekki hefðu komið fram nein tilmæli um heimild til aukakjörfundar. En ég vil aftur á móti segja honum, að þótt þau hafi ekki komið til hans, þá hafa þau samt komið til mín. Sömuleiðis hafa menn utan úr sveitum sagt mér, að þeir hafi heyrt þar almenn tilmæli um þetta. Það sagði mér maður, mjög skilríkur, sem hafði ferðazt um allt Norðausturland, að þetta sé ósk fjölmargra sveitamanna þar, að fá aukakjörfund auk hins venjulega.

Hvað ástæða er nú til þess að láta menn gjalda þess, að þeir eiga heima í strjálbyggðum sveitum og geta ekki eins vel notað kosningarrétt sinn eins og ef væru þeir í kaupstöðum? Sjálfst.menn hafa haldið því fram, sérstaklega töluðu þeir mikið um það í sumar um kosningarnar, að þeir mundu ekki minna fylgi eiga í sveitum en Framsfl. Hvers vegna vill þá hv. þm. Snæf. mótmæla því, að bætt verði aðstaða kjósenda þeirra til þess að komast á kjörfund? Er það ekki af því, að þessi hv. þm., eins og flokksbræður hans, viti það, að fylgi þeirra er ekki í sveitum landsins? Þeir efast um það eins nú eins og fyrir kosningarnar 1931, þegar þeir gerðu bandalag við jafnaðarmenn um snögga breyt. á kjördæmaskipuninni, af því að þeim óaði við því, hve margir bændur mættu á flokksfundi Framsfl.

Ég játa, að Framsfl. hefir ekki eins mikið fylgi nú eins og hann hafði 1931. En höfuðorsök þess er það, að við erum í samvinnu við flokk, sem ekki er vinsæll í sveitum landsins. Það er ekki hægt að finna aðra skýringu en þessa á því, að einn hv. þm. úr Sjálfstfl. stendur upp með svigurmælum og ofsa til þess að mótmæla eins smávægilegri tilraun til að veita bændum betri aðstöðu til að nota kosningarrétt sinn eins og hér er um að ræða. Það er vitanlegt, að tilgangurinn með því, þegar reynt var fyrst að gerbreyta kjördæmaskipuninni hér á landi, var sá að brjóta niður það, sem kallað var sveitavald eða bændavald og sagt var, að kjördæmaskipunin héldi uppi. Og sami hugsunarhátturinn kemur hér fram í orðum þessa hv. þm. Sjálfstfl. (TT: Þetta er kjósendaræða).