07.12.1933
Sameinað þing: 11. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 476 í D-deild Alþingistíðinda. (1434)

57. mál, varalögregla

Flm. (Héðinn Valdimarsson):

Eftir að ég hafði haldið ræðu um þetta mál hér á fyrra fundi, stóðu 4 andstæðingar upp og veittust að mér, að nokkru leyti persónulega. Og þó að mér veitist nú aðeins tækifæri til að gera aths., vænti ég þess, að hæstv. forseti taki ekki af mér orðið, þó að hún verði nokkuð löng. Þrír af þessum andstæðingum mínum eru hér ekki viðstaddir.

Hv. þm. Vestm. kom fram með afstöðu, sem ekki er hægt að deila við hann um. Mun svo mikill skoðanamunur okkar. Hann er nazisti, hefir setið fundi með þeim og átt mök við þá úti í Þýzkalandi, eins og Gísli í Ási. Eftir hans skoðunum á ekkert nema aflið og ofbeldið að ráða, og þýða ekki rökræður neitt við slíka menn um réttlæti né sanngirni. Mun ég því ekki svara honum.

Þá er hæstv. dómsmrh., sem er veikur. Ég hét því fram, að stj. hefði enga lagaheimild haft til að setja varalögregluna á stofn. Að vísu var það annar maður, sem stofnaði hana, en hæstv. dómsmrh. vildi verja þær gerðir hans með einhverri gr. í stjórnarskránni. Væri það þá helzt 71. gr., sem til mála gæti komið. Þar segir svo:

„Sérhver vopnfær maður er skyldur að taka sjálfur þátt í vörn landsins, eftir því, sem nákvæmar kann að verða fyrir mælt með lögum“.

Þetta á auðsjáanlega ekki við um varalögregluna, sem ætluð er sem vopn í höndum stj., en ekki til landvarnar. í gr. er líka því aðeins leyft að kveðja saman lið, að heimild sé til þess í l., en um varalögregluna voru ekki einu sinni til bráðabirgðal. Hefði átt að stefna stj. fyrir landsdóm fyrir að eyða þannig fé landsins og koma af stað óþarfa illindum innanlands.

Hæstv. dómsmrh. vildi ekki gefa neinar upplýsingar um vopn lögreglunnar eða um æfingar fánaliðs Heimdallar. Það er haft fyrir satt, að handa varalögreglunni hafi verið keyptar byssur, sem geymdar séu niðri á lögreglustöð. Verður að kalla það langt gengið, ef keypt eru banvæn skotvopn, án þess að dómsmrh. viti, enda eru allar líkur til þess, að ekki sé um ókunnugleik hans að ræða, heldur sé hann aðeins að blekkja þingheim með því að láta ekkert uppi um þetta. En ef byssur hafa verið keyptar, er það ljóst, til hvers á að nota þær.

Skýringarnar, sem fram hafa komið á æfingum fánaliðs Heimdallar, eru ærið kátlegar. Hv. þm. Snæf. hélt því fram, að þeir væru aðallega að æfa höfrungahlaup inni í Kveldúlfsporti, og hæstv. dómsmrh. virtist helzt vilja láta það í veðri vaka, að þeir væru þar við garnahreinsun á sama stað. Sannleikurinn virðist sá, að þessar æfingar standi í nánu sambandi við varalögregluna og að fánalið þetta sé ætlað henni til stuðnings. Fánaliðið eigi síðar að verða varalögregla eins og glæpamannaflokkur nazistanna á Þýzkalandi. Það hefir líka sýnt sig við valið á varalögreglunni, að íhaldsmenn hafa einungis tekið sér handgengna menn.

Þm. Snæf. — (ég vænti að flokksmenn hans svari fyrir hann, ef með þykir þurfa) — hv. þm. Snæf. blæs sig hér mjög upp sem lögfræðingur og er að skýra 1. um varalögreglu. Þó að hann hafi próf í lögfræði, hefir hann ekki betra vit á þessum 1. en við aðrir hér, sem sömdum þessi 1. Skýringar hans voru ekkert annað en lagakrókar. Samkv. 1. gr. ætti að vera hægt, eftir hans skýringu, að setja á fót varalögreglu, þó að engin lögregla væri til. Ef 2 lögregluþjónar á hverja 1000 íbúa er ekki lágmarkið, sem fullnægja verður áður en farið er að stofna varalögreglu, þá eru heldur engin takmörk sett niður á við.

Þm. ber fyrir sig 2. gr. har segir, að ríkissjóður skuli engan kostnað greiða við lögreglu fyrr en kominn sé a. m. k. 1 lögregluþjónn á hverja 700 íbúa. Hann virðist halda, að hægt sé að setja upp varalögreglu, þegar þessu skilyrði sé fullnægt. En ég vil þá benda honum á, að í 6. gr. 1. stendur, að ráðh. geti, þegar sérstaklega stendur á, stofnað til varalögreglu meira en í 1. gr. segir, þ. e. þannig, að lögregluþj. verði fleiri en 2 á hverja 1000 íbúa. Þarna er ekki sagt „meir en segir í 2. gr.“, heldur: „meir en segir í 1. gr.“. Jafnvel eftir bókstaf l. er ekki hægt, eins og líka var margyfirlýst af frsm. í Ed., þegar gengið var frá þessum 1., að stofna til varalögreglu fyrr en bæirnir eru algerlega búnir að koma fyrir sínu fasta lögregluliði. En það er líkt sjálfstæðismönnum, sem gerðu samninga um þetta við Framsókn, að ætla nú strax að svíkja þá.

Það er merkileg yfirlýsing, sem komið hefir frá 1. þm. Reykv. og 1. landsk., að varalögreglan eigi fyrst og fremst að vera pólitísk lögregla, er beitt skyldi gegn þeim, sem íhaldið teldi á hverjum tíma kommúnista. Eftir orðum hv. 1. landsk. að dæma er það allur Alþfl., en eftir orðum hv. 1. þm. Reykv. aðeins nokkur hluti hans. Þá má nærri geta, að vinstri armur Framsóknar yrði talinn þar með. Er þá komið á daginn, að þetta á ekki aðeins að vera uppþotalið, heldur einnig pólitískt lið. Sést þetta líka af vali því, sem bæjarstj. hefir reynt að hafa á lögreglu og varalögreglumönnum. Ef þetta á að vera pólitísk lögregla, þá þarf engan að undra, þótt farið sé þegar að afla henni skotvopna. Sjálfstfl., sem hefir tæpan helming af kjósendum hér, ætlar að hafa hana sem málalið sitt, til þess að geta með vopnum kúgað meiri hl.

Hv. 1. þm. Reykv. fór nokkuð út í aðdraganda varalögreglunnar. Afsakanir hans voru aðallega erjurnar 9. nóv. því er fyrst til að svara, að varalögreglan er miklu eldra mál. Sjálfstfl. hefir lengi haft það sem sitt flokksmál. Þegar hann tók það upp á stefnuskrá sína, var 9. nóv. ekki kominn. Ríkislögreglufrumv. Jóns Magnússonar og eftirmyndir þess eru mönnum enn minnisstæðar. En ef athugaður er nákvæmlega aðdragandi málsins síðastl. haust, sést, að þessu er allt öðruvísi farið en hv. þm. segir. 1 ágúst í fyrra tók bæjarstj. þá ákvörðun að setja upp atvinnubótavinnu með 9 kr. dagkaupi, en síðan skyldi fjölga mönnum í vinnunni í októbermánuði. Verkalýðsfélögin gengu eftir þessari aukningu, þegar komið var fram í okt., en þá var bæjarstj. komin á aðra skoðun, og var ekkert hjá henni að hafa annað en svikin. Þá ákváðu alþýðusamtökin hér að hafa mikla kröfugöngu og sýna, hver væri vilji manna í þessu máli. Var hún haldin á sunnudegi og tóku þátt í henni 4000 manns. Í stað þess nú að fjölga í atvinnubótavinnunni, tók bæjarstjórnaríhaldið þá ákvörðun að lækka kaupið um þriðjung, úr 54 kr. niður í 36 kr. um vikuna. Þeir, sem voru í vinnunni, höfðu flestir ekki nema hálfs mánaðar vinnu á mánuði, sumir ekki nema viku, og vinnuna fengu fæstir nema fjölskyldumenn. Þessari kauplækkun átti þannig að beina gegn kvæntum barnamönnum, þeim hluta verkalýðsins hér, sem veikastur var fyrir. Því gerði nú íhaldsmeirihlutinn þetta? þegar nefnd frá kröfugöngunni kom að máli við Guðmund Ásbjörnsson, sem þá var settur borgarstj., sagði hann, að um þetta lægi fyrir flokkssamþykkt frá sjálfst.mönnum í bæjarstj. En forsrh. sagðist ekki geta látið bæta við mönnum í vinnuna, nema meiri hl. bæjarstj. óskaði þess. Hefir forsrh. sýnt fram á, að það, sem 1. þm. Reykv. sagði, er ekki annað en lygi, að ekki væri hægt að fjölga, af því að fé vantaði.

Hinsvegar hefir forsrh. lýst yfir því, að ekki hefði komið nein ósk frá bæjarstj. um að fá þetta fé. Enda vissum við í stj. verkalýðsfélaganna, að annað vakti fyrir meiri hl. í bæjarstj., sem sé að gerast brautryðjandi að almennri kauplækkun. Um sama leyti komu kauplækkunartilmæli um 20% til flestra verkalýðsfélaganna hér, verkamannafélagsins Dagsbrúnar, Sjómannafel., verkakvennafél., Félags jarniðnaðarmanna o. s. frv.

Það var ráðizt á garðinn þar sem hann var lægstur, þegar byrjað var á því að lækka kaupið í atvinnubótavinnunni. Það þýðir ekki neitt fyrir 1. þm. Reykv. að reyna að ljúga sig frá þessu (JakM: Tóm lygi — Forseti hringir.), því að þetta er sannað.

Nú var það svo, að í verklýsfélögunum var um það deilt, hvaða aðferð skyldi hafa í þessu máli. Uppástungur komu um að hafa almennt verkfall til þess að fjölga í atvinnubótavinnunni. En Alþfl. innan félaganna var á móti því. Hann var aftur á móti því fylgjandi, að ef farið yrði út í þessa kauplækkun, þá væri rétt að gera verkfall þess vegna, því að hann vissi, hvað var í heilanum á 1. þm. Reykv. og öðrum í meiri hl. bæjarstj., og líka, að ef það tækist að lækka kaupið í atvinnubótavinnunni, þá mundu aðrar kauplækkanir koma á eftir. Auk þess var kaupið, sem boðið var, svo hraksmánarlegt, að það hefði verið rétt fyrir menn að fara heldur á bæinn en að hlíta því.

Það var þess vegna fyllsta ástæða til þess að fara út í verkfall það, sem ákveðið var, þegar kauplækkunin var gerð.

Allt hjal 1. þm. Reykv. um lýðræði í þessu sambandi er ekki annað en skrum. Bæjarstj. er að vísu skipuð eftir lýðræðisreglum, en þar eru 4 ár á milli kosninga. Og hún er ekki kosin til að framkvæma það, sem gert var 9. nóv. Í því hafði meiri hl. bæjarstj. meiri hl. kjósenda í Reykjavík á móti sér. Það hljóta 1. þm. Reykv. og samherjar hans í bæjarstj. að hafa fundið dagana á undan og dagana á eftir 9. nóv., að þeir voru ekki margir bæjarmenn, sem afsökuðu gerðir þeirra þá.

Það, sem alþýðusamtökin gerðu í þessu máli, var fyrst og fremst verkfallið, sem ég gat um, sem var réttmætt til mótmæla gegn þeim svívirðingum, sem meiri hl. bæjarstj. hafði í frammi gagnvart verkalýðnum. Þar næst, að einmitt þeir sömu menn, sem þetta gerræði bæjarstj.meirihl. lenti á, hópuðust saman fyrir utan fundarsalinn, til þess að reyna að fá þessa klíku, sem meiri hl. bæjarstj. er, til að fara eftir vilja meiri hl. bæjarmanna í þessu efni, m. ö. o. að fá klíkuna til að lúta lýðræði í bænum. Það hefði ekki verið neinn vandi að fá vilja þessara manna um þetta samþ. við almenna atkvgr. í bænum um málið. Og þetta vita íhaldsmenn allt vel.

Þá er allt það, sem 1. þm. Reykv. sagði um, að ég hefði haft samtök við lögreglustjóra í þessu máli, upplögin ósannindi frá rótum. Ég átti alls ekki tal við hann fyrir fundinn um málið né á fundinum. Og óeirðirnar, sem þar urðu, stöfuðu ekki af því, að lögreglan væri of lítil, heldur miklu fremur af of mikilli lögreglu. Enda sáu menn, að lögreglan var nægileg, á því, að enginn bæjarfulltrúanna, ekki einu sinni 1. þm. Reykv., sem mest átti það skilið, varð fyrir hnjaski. Þeir sluppu allir ómeiddir, þó að þeir kannske hefðu verðskuldað annað. Þeir, sem meiðsli hlutu þarna, voru lögreglumennirnir, og ég hefi aldrei áfellzt þá fyrir framkomu þeirra í þetta sinn, nema einn eða tvo menn. Það, sem lögreglumönnum var fyrirskipað að gera þarna, það gerðu þeir, að ráðast á verkamenn, bæði inni í fundarsalnum og fyrir utan hann. Ég verð að segja það, og þeir mega lá mér minn þátt í þessu máli, sem vilja, en ef ég sé marga menn með bareflum ráðast að óvopnuðum mönnum, sem ekkert hafa gert af sér, og berja þá blóðuga, þá óska ég þess, að þeir menn, sem ráðizt er á að ósekju, geti a. m. k. varið sig gegn slíkum böðlum og tel mér persónulega skylt að hjálpa til þess. Og ef svo á að verða, að einhverjir verði fyrir meiðslum í þeim leik, þá óska ég frekar, að það verði lögreglan heldur en verkamenn, sem ekkert hafa af sér gert. Þetta er náttúrlega ólíkt hugsunarhætti 1. þm. Reykv. og íhaldsmanna, sem yfirleitt hylla þá, sem valdið hafa, án tillits til hvernig því er beitt. 9. nóv. skeður ekkert annað en að fjöldi lögregluþjóna ræðst á mikinn hóp manna, sem voru saklausir og höfðu ekkert gert af sér annað en að Jakob Möller og nokkrir ámóta þokkapiltar töldu rétt að lækka við þá kaup fyrsta allra, vegna þess að þeir voru varnarlausastir og veikastir fyrir. Fyrir það áttu þeir að fá blóðug sár og brotin höfuð og fleira því um líkt.

Það er í þessu sambandi rétt að taka það fram, vegna orða hv. 1. þm. Reykv., að við Alþfl.menn höfum ekki haft neitt samkomulag við kommúnista um þetta mál og munum ekki hafa sameiningu við þá. Að vísu telja kommunistar sig margir sócíalista. Aðrir, sem telja sig sócíalista, eru handbendi Sjálfstfl. En kommúnistaflokkurinn er þannig vaxinn, að hægt er að kalla hann sérkredduflokk eða sértrúarflokk, og framkoma hans og stefna gagna ekki flokki alþýðunnar, Alþfl., heldur klyfur hann. Markmið Alþfl. er aftur á móti að sameina alþýðuna í einn flokk til stéttarbaráttu, og verður sá flokkur því á móti öllum, sem reyna að kljúfa flokkinn, án tillits til þess, hvaða flokkur það er, sem það reynir. Afstaða okkar Alþfl.manna til ofbeldisstefnanna í landinu er þessi:

Við lítum svo a, að lýðræðið veiti alþýðu mesta möguleika til að ná völdum, til þess að bæta hag sinn, með því að hafa fullt félagsfrelsi, fundafrelsi og fullkomlega þingræðislega og réttláta kjördæmaskipun og stjórnarskrá. Þá eru möguleikar fyrir hendi til þess að alþfl. geti náð völdunum í landinu í sínar hendur á þingræðislegan hátt og haldið þeim. Með því er smátt og smátt hægt að koma fram umbótum á lýðræðisgrundvelli, eins og í Danmörku, Noregi og Svíþjóð, að gera þjóðfélagið smátt og smátt að sócíalistísku þjóðfélagi, enda séu skipulögð samtök alþýðunnar ávallt búin til varnar og sóknar. Verði hitt aftur á móti ofan á, að lýðræði verði ekki haft í landinu, en lögin brotin, hvenær sem færi gefst, og verði haldið uppi liði til þess að halda stj. við völd, stjórn, sem gerir ekki annað en að nota hvert tækifæri til að vinna á móti alþýðunni í landinu — verði þetta lið notað sem brimbrjótur fyrir atvinnurekendur í kaupdeilum o.þ.h., þá er augsýnilegt, að ekki er stefnt í lýðræðisátt og barátta á þeim grundvelli er tilgangslaus. Þá verða alþýðusamtökin að fara þá leið, að verja sig gegn þessari kúgun með hvaða vopnum, sem nauðsyn krefur, og þau eru beitt. Það er ekki svo sem við óskum þess, að alþýðan þurfi að verja sig á annan hátt en friðsamlegan, en hinsvegar munum við ekki taka þegjandi neinni kúgun, né leggjast niður fyrir kúgurunum. Íhaldsmenn skulu ekki halda, að við séum hræddir við baráttu fyrir réttindum alþýðunnar á hvaða hátt svo sem hún þarf fram að fara, en við óskum, að hún geti orðið á friðsamlegan hátt eins og í nagrannalöndum okkar. Baráttustefna Alþfl. mun því að mörgu leyti fara eftir viðhorfinu í þjóðfélagi okkar, en baráttunni fyrir sigri flokksins mun ekki verða hætt fyrr en fullum sigri er náð.

Það er enginn vafi á því, að 1. þm. Reykv. var einmitt einn aðalhvatamaðurinn að kauplækkun þeirri, sem átti að gera í fyrrahaust við atvinnubótavinnuna hér í Reykjavík, sem voru fyrstu tildrögin til alls þess, sem menn sérstaklega minnast frá 9. nóv. í fyrra. Hann var sá maður, sem gaf beinlínis tilefni til óeirðanna þá með ráðum sínum og á fundinum. Því að þegar hann fer að svívirða verkalýðinn (JakM: Þetta er haugalygi), í fyrstu ræðu sinni, þá brjótast áheyrendur inn fyrir grindur í fundasal bæjarstjórnar. Það var undir ræðu Jakobs Möllers, sem uppþotið varð. En þegar uppþotið er byrjað — hver er þá hræddari en Jakob Möller? Hver er þá skjálfandi á beinum, sem felur sig úti í horni á bak við Ólaf Friðriksson og lætur hann verja sig, annar en Jakob Möller? Hver flýr svo inn á Hótel Borg til þess manns, sem þar réði húsum og Jakob Möller hafði ofsótt, annar en Jakob Möller? Og hver flýr svo inn á Klepp, af því að hann þorir ekki að láta sjá sig hér í bænum eftir allt athæfi sitt, annar en Jakob Möller? Þetta er sú aumasta saga, sem sögð verður um nokkurn Íslending fyrr eða síðar, ofríkið og varmennskan, aumingjaskapurinn og ragmennskan, og það er næstum því skömm að því að vera landi slíks manns.