02.12.1933
Neðri deild: 24. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 173 í D-deild Alþingistíðinda. (1439)
79. mál, síldarbræðslustöð Útvegsbanka Íslands hf á Öndundarfirði
Pétur Ottesen:
Ég verð að segja, að það er harla hart í svona máli, þar sem tilmæli hafa komið frá einum nm. — og annar er fjarverandi — um að fresta umr. um einn dag, að sú ósk skuli ekki vera tekin til greina. En máske ber að rekja þessa neitun til þeirrar óskapa tilhneigingar, sem menn virðast hafa nú um að koma öllu undir ríkisrekstur. Það er eins og menn fari á allskonar víxlgangi í málum nú, og það jafnvel þeir menn, er maður skyldi sízt ætla, að svo gerðu. Þessa er eigi langt að minnast, þar sem er síðasta mál, ölbruggið. Þar féllu sumir þeir menn fra, á þeirri freistingarinnar stund, sem maður vissi ekki betur en hefðu helgað huga sinn því að berjast gegn brugginu. En þótt þeir hafi talað fjálglega um þau mál, þá nota þeir nú allra fyrsta tækifærið, sem þeir fá, til þess að renna eins og raggeitur frá sinni fyrri skoðun. Eins er því varið með það mál sem nú er til umr. Þeir, sem hingað til hafa talið það skoðun sína, að heppilegast væri, að sem allra mest af atvinnufyrirtækjunum hvíldi í höndum einstaklinga eða félaga, renna nú frá þessari skoðun sinni og falla nú í faðm þeirra, sem fylgja þjóðnýtingarstefnunni, sem náð hefir yfirtökum sumstaðar úti um heim og teygir nú anga sína hingað, svo holl sem hún þó er! ! eins og dæmin sýna.
Ég skal þá víkja orðum mínum að hæstv. forsrh., ef hann þá er svo nærri, að hann megi mál mitt heyra. þætti mér líklegt, að hann léti sig ekki vanta, þegar þetta ástfóstur hans er til umr. Það er ekkert undarlegt, þó sócíalistarnir fagni þessum nýju samherjum, hæstv. forsrh. og fleirum, og taki þeim opnum örmum, enda létu þeir í ljós einlægt þakklæti til þeirra, er þeir svo skyndilega fengu þennan óvænta reka á fjörur sínar. Það kom í ljós fyrir nokkrum árum, að framsóknarmenn létu hrekja sig af samvinnugrundvelli og yfir í þjóðnýtingu í máli skyldu þessu. Nú munu sócíalistar tæplega hafa átt von á svo víðtækri þátttöku sem raun hefir á orðið í að reyra starfandi atvinnurekstur einstaklinga í þjóðnýtingarfjötra. En þegar það kemur í ljós, verður vitanlega fögnuðurinn þeim mun meiri.
Þetta frv., sem hér liggur fyrir, ber ekki með nokkru móti að samþ. Það er alveg óþarft ég óforsvaranlegt, að ríkið fari að sölsa undir sig fyrirtæki, sem er í fullum gangi. Það var allt annað mál, þegar verið vara að stofnsetja síldarbræðslustöð ríkisins. Þá varð ríkið að hjálpa til að koma því fyrirtæki á fót, og sú heilbrigða hugsun fylgdi frá mörgum, að félagsskapur sjómanna og útgerðarmanna. þegar á fót væri kominn og þess megnugur, keypti verksmiðjuna af ríkinu og ræki hana á samvinnugrundvelli. En hér er stefnt í þveröfuga átt. Útvegsbankinn, sem á þessa verksmiðju, hefir leigt hana prívatfélagi, sem hefir notað hana út í yztu æsar, svo þar hefir aldrei fallið niður starf á þeim tíma, sem síldarverksmjðjur annars eru starfræktar. Og það er ekkert, sem bendir í þá átt nú, að verksmiðjan verði ekki rekin, þó ekkert sé farið að blanda ríkinu þar inn í heldur hið gagnstæða, því það virðist horfa nú vænlegar til með slíkan rekstur yfirleitt en oft áður. Hér er því eingöngu um að ræða að flana í flaustri og fyrirhyggjuleysi með starfandi einstaklingsrekstur yfir í þjóðnýtingu, öllum til tjóns og skaða, nema kannske Útvegsbankanum, sem í skjóli þessarar heimildar gæti ef til vill skrúfað ríkisstjórnina upp í það að kaupa verksmiðjuna fyrir óeðlilega hátt verð, og haft af því einhvern stundarhagnað. Það, sem skilur mig og hæstv. forsrh. ásamt hv. þm. Vestm., sem í þessu máli hefir sogazt inn í þjóðnýtingarhringiðuna, er það, að ég tel, að fyrirtækið sé betur komið hjá einstaklingum eða félögum, en þeir taka ríkisrekstur fram yfir. Ég vil benda hv. þm. á samstæður við þessa skoðun. Eftir þeirra skoðun, sem halda ríkisrekstri fram, ætti þá að vera betra að taka t. d. tóvinnuvélarnar af samvinnufélögunum og láta ríkið reka þær. — Þannig er hæstv. forsrh. horfinn af grundvelli samvinnustefnunnar yfir á grundvöll þjóðnýtingarinnar. Það er því ekkert undarlegt, þótt hv. 1. þm. Reykv. væri að lýsa eftir samvinnustefnunni hér í þinginu, þegar einn af helztu boðberum hennar hefir tekið slíkum sinnaskiptum. Hæstv. ráðh. fór þá að tala um einhver stefnuskipti hjá sjálfstæðismönnum í þessum málum og minntist í því sambandi á kaupin á síldarverksmiðju dr. Pauls á Siglufirði. En það mál horfði allt öðruvísi við; sú verksmiðja var í eigu útlendinga og hafði ekki verið starfrækt í fleiri ár, enda var svo til ætlazt, að sjómenn og útgerðarmenn gætu með tímanum orðið eigendur verksmiðjunnar, keypt hana af ríkissjóði.
Hæstv. ráðh. hélt því fram, að sjómenn og útgerðarmenn væru ekki eins fráhverfir þessum ríkisrekstri og af væri látið, og byggði hann það á því, að þeir ýttu undir það eftir að ríkisbræðslan var sett á stofn, að ríkið keypti af þeim síldina jafnóðum, en vildu ekki bíða eftir því verði, sem endanlega fengist fyrir hana. Þetta er rétt, en af þessu verður alls ekki dregin sú ályktun, að þeir kysu ekki frekar að reka þessa stofnun sjálfir, ef þeim væri ekki fyrirmunað það með því fyrirkomulagi, sem nú er, heldur hitt, að sjómenn og útgerðarmenn vantreysta þeim mönnum, sem veita verksmiðjunni forstöðu, til þess að selja síldina með viðunanlegum kjörum fyrir þá, og kjósa því heldur lágt verð út í hönd. Þeir hafa ekki þorað að eiga undir hinni endanlegu útkomu. Þetta er ekki heldur að ástæðulausu, því að verksmiðjustjórninni hefir farnazt illa í ýmsum greinum og bakað barði útgerðarmönnum og ríkinu stórtjón. Þar hefir hver höndin verið upp á móti annari, jafnvel svo, að tveir meðstjórnendur hafa sent kæru á aðalmanninn í stjórninni. Má af þessu sjá, hvílíkt öryggi sjómönnum er búið með þessu háttalagi, og hve veigalítil þessi rökleiðsla hæstv. ráðh. er fyrir því, að sjómenn og útgerðarmenn séu ánaegðir með viðskipti sin við verksmiðjuna, eða ríkisrekstur í þessari grein.
Ég hefði viljað svara hv. þm. Vestm. nokkrum orðum, en ég sé, að hann hefir af einhverjum ástæðum horfið úr deildinni. En ég verð þó að endurtaka það, að ég get ekki annað en furðað mig á því að sjá hann vera kominn í slagtog með sósíalistum um það að hneppa atvinnurekstur landsmanna í þjóðnýtingarfjötra. (BÁ: Á hv. þm. ekki við „nationalsósíalista?). Ég skal ekkert segja um það, til hvers ráðs þeir menn grípa, sem nú styðja sósíalistana í því að koma á ríkisrekstri í þessari verksmiðju, þegar þeir sjá að sér, sem vonandi verður einhverntíma; það getur vel skeð, að þeir reyni að bera það fyrir sig, að þeir hafa staðið á grundvelli þessa eða hins afbrigðis af hinum eiginlega sósíalisma, en það dugir ekkert, heldur hitt, að þeir hverfi nú þegar frá, villu síns vegar og standi fast á þeim grundvelli, sem bezt hefir reynzt hingað til og framfarir allra alda hafa byggzt á, sem er framtak einstaklingsins.
Ég get látið þetta nægja, en vil endurtaka það, að ég hefi bent á, að það getur orðið afleiðingaríkt að hverfa frá réttri stefnu í þessu máli. Sú þjóðnýting, sem við hofum hingað til haft af að segja, ætti samkv. fenginni reynslu að vera öllum hv. þm. frekar til aðvörunar en eftirbreytni.