07.12.1933
Sameinað þing: 11. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 485 í D-deild Alþingistíðinda. (1440)
57. mál, varalögregla
Gísli Sveinsson:
Herra forseti! Ég hefi nú hálfpartinn gleymt því, hvar staðar var numið síðast í þessari botnleysu, þegar ég kvaddi mér hljóðs á dögunum. En það mun ekki gera mikið til, því að nú hefir þetta verið rifjað upp. En ég ætlaði þá og geri það nú, að lýsa yfir undrun minni við hæstv. forseta yfir því, að hann hefir leyft sér að láta þetta mál verða til tafar þingstörfum með því að eyða miklu af dýrmætum tíma þingsins til umr. um það. Ég er undrandi yfir þessu atferli hæstv. forseta, af því líka, að honum er kunnugt um, að þetta þing átti að vera stutt og vinna að allt öðru en þessu. Í annan stað er það líka furðulegt, að alþýðufulltrúarnir úr jafnaðarmannaflokknum, sem hafa talað hér, hafa borið mjög fyrir brjósti kostnaðinn við varalögregluhaldið, en skeyta ekki um það, þótt þeir stofni hér með málþófi og tilgangslausu skrafi til kostnaðar, sem nemur þús. og gæti, ef haldið væri áfram á sömu götu, numið tugum þús. Þetta mál átti ekkert erindi inn á þing og verður ekki afgr. þaðan.
Má víst geta sér þess til, að þm. Alþfl., sem komu með þetta mál inn á þingið, ætli að gera þetta að árlegu umtalsefni á þessum stað, líklega til að halda afmæli varalögreglunnar í nóv. hað má gera ráð fyrir þinghaldi næst á þeim tíma. Ég vænti, að þeir séu að byrja á að halda afmæli varalögreglunnar á þennan hátt í tilefni af 9. nóv. þeir hafa farið laglega af stað nú, eins og þjóðinni er orðið kunnugt. En ég vil benda þeim á annan dag og annan tíma til þess að halda afmælisdag góðkunningja síns, sem þeir hafa verið að skemmta hér með ræðuhöldum sínum. Þessi kunningi þeirra heldur afmæli sitt 11. desember. Það er sem sé sagt, að skrattinn eigi afmæli 11. desember. Ég vil leyfa mér að færa þeim þennan dag, ef þeir kynnu að sleppa af 9. nóv.
Það hefir verið sagt, að það, sem jafnaðarmenn hafa haft í frammi hér út af þessu varalögreglumáli, sé skrípaleikur frá upphafi til enda, og einnig framferði þeirra 9. nóv. Þetta er bæði rétt og rangt. Það er gefið, að sumt af þessu er skrípaleikur. En tildrögin til atburðanna, sem gerðust hér 9. nóv. í fyrra, eru líka sorgarleikur að því leyti, að fulltrúa Alþfl. henti sú ógæfa að stofna til lögbrota. Þeir höfðu virkilega ekki ætlað sér það og voru aður búnir að segja, að kommúnistar skyldu verða einir um ofbeldið, þeir skyldu brennimerkja sig með því að fara í handalögmál, en Alþfl.menn mundu fara að dæmi bræðra sinna í Danmörku og stofna ekki til óeirða, heldur kveða niður óeirðir af hálfu kommúnista. En ástæðan til þess, að svo fór sem fór, var kapphlaupið á milli kommúnista og sócíalista um alþýðuna. Sócíalistar höfðu séð, að níðhöggur, sem nagar að neðan, er sterkari en sá, sem vill hlúa að og annast gróður, sem á að vaxa. Kommúnistar standa að því leyti vel að vígi, að þeir eru ekki enn komnir inn í þingið, og finna því ekki til þeirrar ábyrgðar, sem Alþfl.menn finna, þegar þeir tala um, að þeir ætli að vera borgaralega sinnaðir og séu frábitnir því að hafa ofbeldi í frammi. En Alþfl.menn sjá, að almenningur er gjarn á að fylgja þeim, sem tala hæst og lofa mestu, þótt þeir geti ekki efnt loforð sín. Og í fyrra, þegar atburðirnir gerðust 9. nóv., þá stóð ekki vel á hjá mörgum alþýðumönnum hér í bænum, og kommúnistar voru þess albúnir að nota hvert tækifæri til að leggja gerðir bæjarstj. út á versta veg. Þegar jafnaðarmenn sáu, að kommúnistar mundu fylkja liði, þá álitu þeir, að þeir yrðu að gera það líka. Þetta varð, og allir vissu það fyrr eða síðar, sem kom berlega í ljós á þessum fundi, að sjálfur foringi sócíalista í bæjarstjórn, hv. 2. þm. Reykv., gekk fram fyrir skjöldu og barðist á móti lögreglunni og lögunum.
Spurningin, sem hér liggur fyrir, er sú, hvort lögreglan í Rvík hefir verið nægilega mannmörg og sterk í fyrra og hvort hún er orðin það nú. Virðist þar reynslan vera ólygnust, og hún varð sú, að lögreglan var ekki nógu öflug. Það er ómögulegt að skýra öðruvísi það fyrirbrigði, að hún var barin og marin af nokkrum æstum afbrotamönnum og varð undir að öllu leyti, heldur en að hún hafi ekki haft nægum liðsafla á að skipa á þeim vettvangi. Ef hún hinsvegar var nægileg, þá er ekki til önnur skýring en sú, að lögreglustjóri hefir vanrækt skyldu sína til þess að segja fyrir verkum og láta einskis ófrestað til að efla friðinn. Ég þykist vita, að um þetta tvennt hafi verið að ræða, eða ef til vill hvorttveggja. Þarna var múgur og margmenni, 4000 manns, eftir því, sem hv. þm. segir; þar eru bæði taldir þeir, sem í kröfugöngu voru, og eins sá fólksfjöldi, sem alltaf skipast í hópa við slík tækifæri, sér til gamans og án þess að hafa í huga nokkurt ofbeldi, En þegar lögreglan brýzt fram, þá er um tvennt að velja, forða sér eða taka á móti, og ef siðari leiðin er valin, þá er sjálfsagt, að menn verða fyrir barðinu á lögreglunni. Allir löghlýðnir og góðir borgarar vita, að þeim er skylt að forða sér þegar svona stendur á. Öðru máli gegnir þegar mikill fjöldi manna gerir tilraun til þess að ráðast á lögregluna. Ég býst við, að hún sé nú ekki nógu mannmörg eða vel skipulögð til þess að sundra mannfjölda, sem með bareflum og öðrum vopnum ætlar sér að herja á hana.
Hv. 2. þm. Reykv. hefir nú sagt, að til þessa upphlaups hafi verið stofnað af ásettu ráði. Hann segir, að ýmsir í bæjarstj. hafi fyllilega átt meiðsli skilin, og að mannfjöldinn hafi verið samankominn í þeim tilgangi að meiða þá. Þetta sagði hann og þetta er orðrétt upp tekið. Ég held, að það þurfi ekki framar vitnanna við, að lögreglan var ekki nægileg. Það hefir verið játað af Alþfl., að ef til óeirða kemur hér í bæ, er lögreglan ekki fullnægjandi, og ekki einu sinni þó að varalögreglan væri alveg í toppi. Þá er tóm vitleysa að tala um, að allt fari fram með friði og spekt, bara ef lögreglan er lítilfjörleg eða engin, og með þessari játningu er úti um hjal þeirra um, að ekki þurfi að bæta við Og auka vald lögreglunnar, þegar sýnt er, að hún getur ekki staðizt áhlaup, þó að það væri aðeins gert á einum stað. Ég geri ekki mikið úr þeirri hættu, sem af kommúnistum stafar. Þetta fólk, sem kallar sig kommúnista hér, eru ungir menn, sem eru til í að gera „sprell“, þegar foringjar þeirra hafa talað þá upp, en síðan eru þeir sem höfuðlaus hér, því að þessir foringjar hafa alltaf skotizt á bak við hina og skýlt sér, þegar til höggorustu kom. Menn af því tægi álít ég ekki hættulega. En orðbragð Alþfl.mannanna hefir vakið grun um það, hvaða hætta er hér á ferðum í raun og veru. Það sú hætta, sem getur verið og hlýtur að vera til staðar, er Alþfl.m. og kommúnistar rugla saman reytum sínum að því er til ofbeldis kemur. Ég veit, að Alþfl. er allfjölmennur, og þó að í honum sé yfirleitt friðlatt fólk, sem ekki má vamm sitt vita, þá er hægt að fá það út í ólæti og spellvirki. Svo augljóst er, að ef Alþfl. og kommúnistar, sem eru, eftir því er hv. 2. þm. Reykv. heldur fram, einskonar sérkredduflokkur, skipa sér saman til lögbrota, þá þarf að styrkja lögregluliðið, ef það á að vera fært um að undiroka allt þetta lið í einu. Það er vitað frá fornu og nýju, að sócíalistar eru ekki eins hreinir í þessum málum og þeir vilja vera láta. Í hverju þeirra orði skín í gegn, að þeir hafa fullan hug á að taka þátt í óeirðum með kommúnistum. Einn af fyrrv. foringjum þeirra, Ólafur Friðriksson, vinur okkar allra, gat þess á prenti, að ef þeirra stefna og skoðanir næðu eigi framgangi, hlyti að reka að því, að þeir notuðu handaflið. Þessum ummælum hefir aldrei verið hnekkt af skoðanabræðrum hans. Síðan hafa komið fram fjölmargar játanir; hv. 2. þm. Reykv., vonbiðill Framsóknar, hefir talað um, að stjórnað myndi án löggjafar, ef þeir jafnaðarmenn kæmust til valda. Þá er enn framkoma þessa hm. 9. nóv. í fyrra, sem er sönnuð fyrir rétti; í þriðja lagi er það, að fyrirfram var ákveðið, að bæjarfulltrúarnir skyldu hljóta meiðsl þá um kvöldið, og enn er það, að hv. þm. kallar kommúnista sérkredduflokk eingöngu. Þá má og ekki gleyma, að jafngóður maður og gæflegur sem hv. þm. Seyðf. talaði mjög hátt um, að ætlun sín væri að granda þjóðskipulaginu. Þetta má e. t. v. leggja svo út, að það hafi verið mælt af monti, en ekki að þar hafi byltingarhugur fylgt máli og að hann hafi þá átt við að granda því á löglegan hátt, en þá er þetta ekki rétt orðað og er þm. til áfellis, þar til það verður fært í lag. Það er vitað, að lögregla er aldrei næg, ef til upphlaups kemur; þess vegna eiga allir góðir og löghlýðnir borgarar að vera undir það búnir að verja líf sitt og eignir. Það er mikill hópur manna, sem ekki vilja fylla flokk alþýðu, en vilja hafa frið; svo að þótt Alþfl. stofnaði til ófriðar, færi ekki hjá því, að borgarar bæjarins heldu uppi vörnum. Hvert barn veit, að þetta er engin fjarstæða, að borgarar þurfi að vera við slíku búnir. Því er ekkert athugavert við það, að menn komi saman til líkamsæfinga og jafnvel þótt þær hefðu nokkurn svip af lögregluliðsæfngum, til þess að vera færari til að verja sig og eignir sínar. Enginn bannar þetta, enda er það sjálfsögð ráðstöfun. Hv. 2. þm. Reykv. hefir sjálfur stofnað árasarlið innan Alþfl., en það fór reyndar út um þúfur, því að menn sáu, að það var til einskis að búa sig undir að veita vel búinni lögreglusveit áras. Alþfl.fulltrúarnir hafa ekki haft aðrar mótbárur gegn lögreglunni almennt en að henni eigi að beita til þess að vekja úlfúð og flokkadrætti og að henni sé stefnt gegn alþýðu.
Í fyrra fullyrtu þessir menn stöðugt, að þessari lögreglu ætti að beita í vinnudeilum, og var hamrað á þessu í blöðum og á mannfundum. En þegar til kom, var það lýðum ljóst, að um þetta gat ekki verið að ræða, því að það er beint tekið fram í 4. gr. laganna, að lögreglan skuli ekki hafa önnur afskipti af kaupdeilum en að halda uppi friði. Af þessu má gerla sjá, að varalögreglan á sízt að gera annað eða meira en lögregla almennt, hvort sem hún hefir leyfisbréf til þess eða ekki. Vitanlega er það og skylda lögreglu að starfa ekki frekar fyrir einn flokk en annan, og ég vil því spyrja hv. 2. þm. Reykv., því að hann mun þeim hnútum kunnugastur, hvort hann viti til þess, að lögreglan hafi gert sér mannamun og hvort hann geti sannað það og þar með réttlætt þessa hróplegu aðdróttun. Ég vil fá að vita, hvort þetta er tilhæfulaus fullyrðing hjá hv. þm., og það er heldur ekki einskisvert fyrir lögregluna, lögreglustjóra og borgara bæjarins yfirleitt, hvort hægt er að sanna þetta eða ekki. Allir vita, að ekki er hægt að koma því svo fyrir, að lögreglunni sé beint gegn einum flokki frekar en öðrum, því að enginn veit það fyrirfram, hverjir verða við völd. Alþfl. hefir sagzt muni taka bæinn og fá meiri hl. í bæjarstjórn. Það var líka sagt, þó það hafi kannske verið í gríni, að þeir vildu komast í ríkisstjórn; þá hefði hv. 2. þm. Reykv. sjálfsagt orðið dómsmrh., og hann er þegar búinn að lýsa því, hvernig þeim stjórnarháttum verður hagað. Með öllu þessu hefir hann bara gefið til kynna, hvernig hann vill nota varalögregluna. Hann ætlar að hafa þetta óhlutdræga vald til þess að siga því á borgarana. Þá má hann auðvitað vera feginn því, að lögreglan er tilbúin, þegar hann kemst í ráðherrastólinn. En lítum á það, sem hann hefir sagt; geti hann sannað, að lögreglunni hafi verið beitt til þess að kúga alþýðu og efla til ófriðar og flokkadrátta, þá verður hann að standa við það annarsstaðar en í friðhelgi Alþingis. Þá er sú spurning, hvort hliðstæð dæmi þessu eru til í þingræðislöndum. Nei, þar sem hér er hún eingöngu notuð til þess að bæla niður flokkadrætti, ofbeldi og hverskonar óeirðir, hver sem í hlut á, enda er oft svo, að ekki er vitað, hvaða flokkur á upptökin að lögbrotunum. En það er eins og þessir hv. þm., 2. þm. Reykv. og þm. Seyðf., séu gagnteknir af ótta við, að andstæðingar þeirra verði eilífir í stjórnum ríkis og bæjar, og enn að það geti komið til, að þeir verði taldir afbrotamenn og lögreglunni því heitt gegn þeim. En það leiðir af sjálfu sér, að ef þeir gerast sekir um lögbrot, mun lögreglan koma á vettvang og taka þá til meðferðar. Ég býst og við, að ótti þeirra nái lengra og sé sprottinn af því, að þeir eiga von á, að Sjálfstæðisfl. magnist svo mjög, að þeir sjálfir fái ekki að vaða uppi, en lúti í lægra haldi, ekki vegna lögregluvaldsins, heldur af því, að þeir hafa eftir lýðræðisreglunni ekki vald til að ráða hér ríkjum. En ef þeir af þessum ástæðum þurfa að grípa til handaflsins, eins og Ólafur Friðriksson hótaði, þá er eðlileg ósk þeirra, að lögreglan sé sem veikust fyrir. Svo eru þeir líka hálfhræddir við kommúnista og óttast, að þessi „sérkredduflokkur“ taki þeim fram. Á Akureyri eru kommúnistar einna fastastir fyrir, og þar hefir líka lögreglan verið undirokuð. Þess vegna er það ekki nema hlægileg firra að halda því fram, að þar þurfi enga lögreglu, því har sé allt með kyrrum kjörum. Þessar háværu „röksemdafærslur“ sócíalista eru langt frá fullnægjandi. Frá almennu sjónarmiði er það á engan hátt gilt, að lögreglan eigi að vera engin eða sáralítil, að henni sé beint gegn sérstökum flokkum eða til að stofna til ófriðar, og að friður og spekt sé mest og bezt, ef engin lögregla væri til. Þessar og þvílíkar fullyrðingar ná ekki nokkurri átt og munu aldrei geta staðizt. Bæði hefi ég og aðrir sýnt fram á það, að óhjákvæmilegt er að auka lögregluliðið í Rvík og öðrum bæjum, enda verður það áreiðanlega gert, þar sem nú er lagaheimild fyrir því. Nú vil ég spyrja hv. þingmeirihluta, hvað það er, sem hefir breytzt síðan í fyrra, er lögin voru sett. Þau voru þá sett með samkomulagi milli tveggja flokka, og það samkomulag þótti svo gott, að ýmsir óttuðust, að það væri of gott og að lögunum yrði spillt. En þau fengust þó góðu heilli. Nú hleypur upp til handa og fóta minnsti flokkur þingsins, sem virðist þó vera ofan á, eftir forseta Sþ. að dæma, og segir, að allt sé nú breytt. Vill hann fyrst, að lögreglan sé niður lögð í Rvík, og síðan gera lögin að engu, með því að banna að framfylgja þeim um lögreglu í öðrum kaupstöðum. Ég vil fá að vita, hvað það er, sem hefir breytzt, því að hér er farið fram á að nema lögin úr gildi. Nú vita þeir, að þeir geta ekki numið lögin úr gildi með þessari þáltill. Ætlast þeir til þess, að till. verði samþ., þegar það er alveg til ónýtis? Enda trúi ég því ekki, að nokkur maður ljái þessari vitleysu fylgi sitt, þegar þeir skilja, að samkv. lögunum ekki aðeins má, heldur á að stofna varalögreglu undir vissum kringumstæðum; ráðherrann er beinlínis skyldur til þess, er skilyrði 1. gr. eru uppfyllt. Í 6. gr. 1. segir, að ríkisstj. sé heimilt að bæta við varalogreglu, þótt í bæjum sé, „allt að tveimur lögregluþjónum á hverja 100 íbúa“. Á þessum orðum „allt að tveimur“ o. s. frv. hafa margir spreytt sig, bæði lærðir og ólærðir, og gefið margar skýringar. Þarna er nefnt hámark, lengra þarf ekki að fara en að því. Nú geri ég ráð fyrir, að flestir séu sammála um, að „allt að“ þýði ekki, að endilega þurfi að vera að því nefnda marki komið, heldur megi vera þar fyrir neðan. En þótt undarlegt virðist, vilja sumir hv. þm. ekki heyra þetta nefnt. Hv. 2. þm. S.-M. reis hér upp og sagðist hafa flutt þetta í fyrra, en aðrir samið það fyrir hann. Það má vera jafngott, ef ætla má, að semjendur hafi skýrt þetta fyrir honum. En þess er að gæta, að er lög á að skýra eftir að þau eru sett, þá er ekki nóg, að menn hafi meint annað en í þeim felst, ef þeir sögðu ekki frá því strax. Nú halda þeir því fram, að „allt að“ þýði „að minnsta kosti“, eða þvert á móti því, sem hefir verið málvenja hér í margar aldir. Fyrir þessa málvillu verður hv. 2. þm. S.-M. ekki tekinn alvarlega, og ekki tekinn fram yfir þá menn, sem lagt hafa stund á og alizt upp við lögskýringar. Þetta minnir einna helzt á, að einhverju sinni kom það fyrir, að þm. stóð upp og sagði: ég er löggjafinn og því færastur um að skýra lögin. Það var hlegið að þessu þá, og mun svo fara nú, því að það vita allir, að enginn einn þm. er löggjafinn, heldur er það Alþingi í heild. Svo þegar af þeirri ástæðu verður þessi skýring hegómamál, sem engan stað á í löggjöfinni; svo fáránleg, að eftir ákvæðum l. og hljóðun málsins er hún hreinasta villa. Hæstv. dómsmrh. hefir nú tekið vel í þetta. Hann hefir fallizt á að taka fullt tillit til þessa lagastafs. Það má vera nóg, hvernig sem málinu annars reiðir af. Ég tel víst, að hvaða stjórn sem er framkvæmi l. og yrði að skýra þau svo, að stofna beri varalögreglu, þegar nauðsyn ber til og fullnægt er skilyrðum 1. gr. l.
Þessi till. er því í bezta falli alveg tilgangslaus, og fyrir þá ástæðu eina réttlaus. En í annan stað stappar svo nærri, að hún sé í fullri andstöðu við l., að ekki tekur tali, að taka beri eins mikið mark á henni eins og venja er til um þáltill. Er hún því hreinasta markleysa, á hvern veg sem hún er skoðuð. Hitt er á ábyrgð hæstv. forseta, að halda uppi málþófi dag eftir dag um slíka till., sem hann og er meðflm. að, og tefja þar með afgreiðslu annara mála, — till., sem að efni og formi er algerlega ólögmæt. — Viðaukatill. gerir um þetta engan mun. Það er hið sama, að verið er að skora á ráðh. að skjóta sér undan því að uppfylla lagaboð. Viðaukatill. er auk þess svo orðuð, auðsjáanlega samin í flaustri, að Alþ. getur ekki samþ. eða tekið til meðferðar slíkar málvillur, ef það vill sjá sóma sínum borgið.