07.12.1933
Sameinað þing: 11. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 499 í D-deild Alþingistíðinda. (1446)
57. mál, varalögregla
Flm. (Héðinn Valdimarsson):
Það voru tvö atriði í ræðu hv. 1. þm. Reykv., sem hann reyndi að árétta. Annað er viðvíkjandi fé því, sem bærinn fékk hjá ríkisstj. loforð um 9. nóv., sem við Alþýðufl.menn og forsrh. höldum fram, að ekki hafi verið beðið um áður. Ég hefi það eftir Stefáni Jóh. Stefánssyni bæjarráðsmanni, og ég hefi skírskotað til hæstv. ráðherra um það, og hefir enginn þeirra mótmælt. Og víst er það, að um kvöldið þegar ráðh. gaf loforðið, þá kvað hann það vera framkvæmdaatriði, hvort þetta yrði dregið frá næsta árs fjárveitingu eða ekki. Það er því ljóst af þessu, að það komu ekki þau atriði fram, sem ekki lágu fyrir áður, og að launalækkunina átti ekki að framkvæma af þeim ástæðum, sem meiri hl. bæjarstj. vill nú vera láta, — að ómögulegt hafi verið að ná í fé, heldur af allt öðrum ástæðum, til að ná almennri kauplækkun.
Hitt atriðið var, að hann kvað aðalóeirðirnar ekki hafa orðið út af sinni ræðu. Þessu mótmæli ég algerlega. Að vísu var smávegis upppot áður. En fyrst þegar hann talaði — eins og hann líka ávarpaði verkalýðinn, sem heyrði allt í kring í hátölurum — þá var það, að nokkrir af þeim, sem voru fyrir utan grindurnar, þustu inn fyrir þær og hleyptu fundinum upp. (JJós: Annað sagði þm. á síðasta þingi. Þá stafaði þetta af fyrirskipun lögreglustjóra!). hér er ég að ræða um, að hleypt var upp bæjarstjórnarfundinum; við það urðu engin slagsmál. Þau urðu löngu eftir að fundi var slitið, er salurinn var ruddur af lögreglunni eftir skipun lögreglustjóra.
Þá er enn eitt atriði. Það er ekki hægt að segja á neinn hátt, að óeirðirnar, sem urðu á eftir, hafi orðið vegna þess, að lögreglan var of fámenn. Þau barsmíð, sem þarna áttu sér stað, urðu ekki fyrr en fundi hafði verið slitið — fyrir utan hjá nokkrum mönnum við dyrnar — og allir bæjarfulltrúarnir voru komnir burt ómeiddir (sumir að vísu hræddir), að undanteknum 1–2, enda var engin tilraun gerð til að meiða þá. Svo að þau meiðsl, sem urðu á eftir, hefðu ekki orðið, ef lögreglan hefði ekki verið þarna látin grípa inn í á þann hátt, sem hún gerði. Lögreglan gat farið burt á friðsamlegan hátt, og þá hefðu engar óeirðir orðið. Það er því alls ekki hægt að taka þetta sem tilefni til þeirrar varalögreglu, sem síðan var stofnuð. Til þess getur ekki verið önnur ástæða en sú, sem við höfum haldið fram og liggur öllum í augum uppi, að íhaldið hefir viljað hafa nægan kraft á bak við til þess að geta komið fram því, sem þarna var aðaltilgangurinn, nefnilega launalækkun, hvenær sem þeir vildu. Þeir vildu geta barið niður hvaða mótstöðu sem væri.
Dómsmrh. og einhverjir fleiri hafa viljað halda því fram, að þessi mikli kostnaður við varalögregluna hafi orðið vegna þess, að verklýðsfélagar hafi ekki viljað vinna með þessum mönnum. Nú var vikið úr verkalýðsfél. — eftir því sem ég man — alls 13 mönnum af þessum ástæðum. Þó að þeim hafi verið varnað vinnu, þá gat ekki komið til mála að gjalda öllum þessum 100 mönnum fullt kaup þess vegna. Enda er mér kunnugt um, að margir þessara manna höfðu fulla atvinnu jafnframt fullu kaupi í varalögreglunni, 210 kr. frá ríkissjóði. T. d. veit ég um tvo bílstjóra, sem alltaf óku bifreiðum norður í land í allt sumar í einkaferðum með leigubifreiðar eins og ekkert væri, og unnu ekkert fyrir ríkissjóð, en fengu 210 kr. kaup á mánuði hjá ríkissjóði. Þetta sýnir, hve óhæfilega er farið með fé landsmanna.
Þá vatt hv. þm. V.-Sk. sér að mér. Ég veit nú ekki mikið um þennan 11. des., sem hann sagði að væri fæðingardagur fjandans, annað en það, að Lögfræðingafélag Íslands mun hafa afmæli sitt á þeim degi. (PHalld: Og hagfræðingar líka!). Hagfræðingar eru ekki í lögfræðingafélaginu. En ég trúi því, sem hv. hm. V.- Sk. segir um þennan hlut.
Þá vildi hann hafa vitnisburð minn um það, hvenær lögregla yfirleitt væri notuð til að ráða á alþýðuna. Yfirleitt gekk öll ræðan út á það, að við Alþfl.menn berðumst á móti lögreglu. Það að höfum við aldrei gert, og sýnir þetta, hve lítið hv. þm. fylgist með málum. Við berjumst á móti varalögreglu, en ekki á móti því að hafa nægilega lögreglu í kaupstöðum landsins. Við segjum, að þessi varalögregla sé í sérstöku augnamiði stofnuð, eins og sest af öllum ákvörðunum og undirbúningi í bæjarstj. Reykjavíkur. En venjulegt lögreglulið kemur þessu máli bókstaflega ekkert við.
En viðvíkjandi samanburði á okkur við nágrannalöndin vil ég segja það, að íhaldsflokkar nágrannalandanna eru ekki á sama stigi og Sjálfstfl. hér. Mér er ekki kunnugt um annað en að þeir vilji fylgja lýðræðisstefnu; en hér í Sjálfstfl. er fullt af mönnum, sem telja sig „nazista“. Hv. þm. V.-Sk. er yfirlýstur „nazisti“ og sömuleiðis hv. þm. Vestm., og hað veit enginn, hve margir þeir eru í Sjálfstfl. Og hver veit, hvenær þessir menn nota þessa lögreglu á ramm-„fascistiskan“ hátt, ef Sjálfstfl. kemst að völdum.