21.11.1933
Neðri deild: 15. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 125 í B-deild Alþingistíðinda. (145)
2. mál, kosningar til Alþingis
Frsm. (Eysteinn Jónsson):
Mál þetta hefir nú verið mikið rætt, svo hætt fer að verða við endurtekningum. Ég mun þó reyna að forðast þær svo sem unnt er, enda hafa meðflm. mínir drepið á ýms atriði, er svara þurfti. Ég skal því ekki þreyta hv. deild með langri ræðu.
Ég verð að minnast á brtt. frá meiri hl. stjskrn., enda þótt hv. þm. N.-Ísf. hafi að nokkru tekið af mér ómakið. — Hv. þm. Snæf. taldi, að starf utankjörfundarstjóra væri meira trúnaðarstarf en kjörfundarstjórn. En slíkt er ekki rétt. Á kjörfundi er t. d. veitt aðstoð, sem ekki er leyfilegt við utankjörfundarkosningu. Er því enn meira atriði, að allir flokkar eigi fulltrúa þar, sem slík aðstoð er veitt.
Út af því, sem hæstv. dómsmrh. sagði, vil ég segja það, að í þá hreppstjóra eða sýslumenn, sem ekki yrðu valdir í kjörstjórnir af flokksmönnum sínum, hlýtur að vera lítið varið og þá lítil eftirsjá að því, þótt þeir komist ekki í kjörstjórnir. Annars er það alls ekki meiningin að útiloka þá frá því að eiga sæti í kjörstjórnum, heldur aðeins að á þá verði að eyða atkv. sem aðra þá, er í kjörstjórn verða valdir. — Þetta læt ég nægja um þessi atriði. Um gerð kjörseðils læt ég nægja að vísa til rökfærslu hv. þm. Barð.
Þá er það heimildin um að hafa tvo kjördaga. Hv. þm. Snæf. sagði, að þinginu hefði engin áskorun borizt um það efni. Þótt svo sé ekki, þá er þó mörgum kunnugt, að menn hafa lagt hina mestu áherzlu á, að fólki í dreifbýli væri kjörsókn sem allra auðveldust. Ég hefi fengið mörg bréf, þar sem þessa er krafizt. Og svo langt hefir jafnvel verið gengið, að gerðar hafa verið till. um það, að kjörstjórn ferðist um og veiti kjósendum kost á að greiða atkv. heima hjá sér. Þó ég sé ekki að mæla með þeirri aðferð, þá sýnir þó þetta, hversu opin augu menn hafa fyrir þeirri ósk, að kjósendum sé gert sem hægast fyrir um að neyta kosningarréttarins. Ég get því ekki skilið í því, hver útlát það eru fyrir löggjafann að veita þessa heimild. Hún gengur á einskis manns rétt, og engin hætta er á því, að hún verði notuð úr hófi fram, aðeins þar sem þörfin væri brýn, en hvorki þar, sem litlar kjördeildir eru, eða þar, sem hægt er að koma bílnum við.
Ég verð að leiðrétta misskilning, sem fram kom hjá hæstv. dómsmrh. um það, hvaða kauptún hefðu rétt til að ákveða 2 kjördaga. Það eru aðeins kauptún, sem hafa haft 300 íbúa eða fleiri. Eru þau höfð með vegna þess, að þeim fylgir víða uppland, þar sem erfitt er um kjörsókn til kauptúnsins. Ég þekki einmitt dæmi þessa, og er því ekki vert að loka heimildinni fyrir þeim.
Hv. þm. Snæf. sagði, að ekkert stæði um það í brtt., hvernig kosningin á aukakjördegi skuli fara fram. Í brtt. eru þó tekin fram mörg ákvæði, er sýna það. Og enn ljósar skýrist það við það, hvernig það er fellt inn í frv. í brtt. er sagt til um það, hvenær aukakjörfundur skuli byrja, hvenær enda, hvernig gengið skuli frá kjörgögnum milli funda og hvernig kjörfundur hefst síðari daginn. Að öðru leyti er það ljóst, að sömu reglur gilda um báða kjörfundina. Og þótt aðfinnsla hv. þm. væri að einhverju litlu leyti réttmæt, sem ég hygg þó, að ekki sé, þá væri auðvitað auðvelt að bæta úr því. Þá er hv. þm. Snæf. hræddur um, að þessi heimild myndi leiða til þess, að farið yrði með ofsókn á hendur kjósendum. — Þessi heimild yrði vitanlega hvergi notuð nema þar, sem allra erfiðast er um kjörsókn. Get ég ómögulega séð, að það gæti nokkru breytt á þeim stöðum, og vitanlega engu annarsstaðar. Hin pólitíska agitation fer aðallega fram þar, sem þéttbýlið er. Og þótt þessi hv. þm. tali digurbarkalega um þetta, þá er það einmitt hans flokkur, sem slíku beitir mest, og það svo, að stundum gengur nærri hreinni þvingun.
Sný ég mér þá að brtt. á þskj. 86. — Hv. þm. V.-Húnv. talaði um, að það væri óviðkunnanlegt, að miðstjórnir flokkanna réðu því, hverjir kæmust á landslista, og réðu þar með uppbótarþm. Ég hefi áður tekið fram, að svo er ekki, og sýnt fram á það, að kjósendur fengju um það fullan íhlutunarrétt. En til miðlunar get ég gengið inn á till. hv. þm. V.-Sk. — En út frá þessu vil ég benda á það, að samkv. till. hv. þm. V.-Húnv. er ráð fyrir því gert, að miðstjórnir flokkanna tilnefni menn á lista sína eftir þörfum, ef eigi hafa verið nógu mörg nöfn á þeim. Og það skal gert eftir á, svo kjósendur vita ekki einu sinni, um hverja þeir eiga að kjósa, er þeir greiða atkv. Ég álít því, að setja þurfi ákvæði um lágmarkstölu á lista, ef þessi till. verður samþ.
Þá mun ég víkja að ummælum hv. 2. þm. N.-M. um lista utanflokkamanna. Ummæli hv. þm. um flokkana eiga að litlu leyti heima, þegar talað er um þetta frv., því að í stjskr. er búið að gefa þeim sérréttindi. Hér er eingöngu verið að hagræða ákvæðum kosningalaganna þannig, að þau komi ekki í bág við stjskr. En ef utanflokkakjósendur hópast saman og hafa sérstakan landslista og fylgjast þannig að til kosninga, þá hafa þeir flokksréttindi.
Um úrskurð á kjörseðlum, hvenær þeir skuli teljast ógildir, get ég ekki fremur en áður verið hv. þm. sammála, því að ég álít, að hér sé ekki um neitt gáfnapróf að ræða. Ég tel það t. d. ekkert gáfnapróf, hvort kjósandi veit, hvort á að krossa fyrir framan eða aftan nafn. Hafi kjósandi kannske lítil tök á að kynna sér kosningalögin, þá veit hann ef til vill, að kosning fer fram með þeim hætti, að krossað er við nafn þess, sem kosinn er, en veit ekki, hvar krossinn á að vera. Þetta er því algert þekkingaratriði, en þessu tvennu má ekki blanda saman, gáfnaprófi og þekkingarprófi.
Það hefir áður verið rætt um það hér, hvort það sé brot á stjskr., ef atkv. er tekið gilt, ef merkt er við nafn frambjóðanda og einnig landslista sama flokks. Þar við vil ég aðeins bæta því, að það sýnist hart að ógilda atkv. kjósanda, þegar það er auðséð, hvaða flokk hann hefir kosið. Þetta ákvæði er því til þess, að menn verði ekki beittir ósanngirni, þó að þeim verði þetta á.
Þá vil ég fara nokkrum orðum um brtt. á þskj. 69, sem er flutt af hv. þm. A.-Húnv. og hv. 2. þm. Skagf. Ég vil segja það, að þó að ég gruni þessa hv. þm. yfirleitt ekki um græsku, þá sýnist mér þessi till. bera það með sér, að það sé ætlazt til, að hún verði drepin hér í d., því að svo illa er hún úr garði gerð, að þótt hún yrði samþ., þá næði hún alls ekki tilgangi sínum. Tilgangurinn á víst að vera sá, að koma í veg fyrir, að þingmaður noti þingmannsaðstöðu sína til að snapa sér einhverja stöðu, en til þess er ákvæði slíkt sem þetta alls ekki nóg. Menn geta nefnilega notað pólitíska aðstöðu sína til að ná í margar aðrar stöður en þær, sem ríkisstjórnin hefir beinlínis ráð á, t. d. stöðu við ýms fyrirtæki og stofnanir, svo sem banka, eimskipafélög og önnur slík fyrirtæki, sem hið opinbera hefir mikla íhlutun um, og jafnvel einkafyrirtæki. En eigi að útiloka alla slíka möguleika, þá verður till. að vera miklu víðtækari. Ef á að koma þannig í veg fyrir, að menn noti pólitíska aðstöðu sína til að ná sér í embætti, þá verður hver þm. að segja af sér þingmennsku í hvert skipti sem hann skiptir um stöðu, og leita þá kosningar á ný, en slíkt verð ég að telja mjög ranglátt og óheppilegt.
Þá vil ég ennfremur benda á það, að þótt menn noti ekki pólitíska aðstöðu sína til að fá fasta stöðu, þá geta þeir þó snapað eftir því, sem kallað er bitlingar, en fyrir það er ekki tekið með þessari till., því að þar er svo kveðið að orði, að þetta ákvæði taki ekki til þess, ef þm. um stundarsakir tekur að sér starf, sem hann sökum sérfræðiþekkingar er öðrum færari til að vinna. Undir þetta má svo auðvitað heimfæra allt mögulegt. Þessi till. fyrirbyggir því ekki það, sem þessir hv. þm. ætlast til, og út af fyrir sig finnst mér það vafasöm stefna, sem taka á með þessu, sem sé að skylda alla þm. til að segja af sér, ef þeir skipta um starf. Ég mun því greiða atkv. móti þessari till. Ég skal ekki segja, hvað ég gerði, ef þetta væri útfært þannig, að öllum yrði gert jafnt undir höfði, en eins og till. er nú, þá tel ég hana vera smákosninga„bombu“, sem eigi að nota í vor, ef með þarf.