07.12.1933
Sameinað þing: 11. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 514 í D-deild Alþingistíðinda. (1453)
57. mál, varalögregla
Jóhann Jósefsson:
Það er rétt svo, að maður nennir að vera að segja nokkuð í þessu máli lengur. Það er búið að tala svo mikið í því. Hv. 2. þm. Reykv. hafði verið að tala eitthvað um það hér áðan, aður en ég kom á fund, að ég væri nazisti. Hv. þm. er víst örlátur maður, og á þessum fundi er hann búinn að gefa nazistum tvo þm., ekki þó úr sínum flokki, heldur úr Sjálfstfl. En ég vil beina því til þm., að vilji hann gefa öðrum flokkum þingmenn, t. d. nazistum, þá gefi hann úr sínum eigin flokki. Þeir munu hafa mesta þörf fyrir slíka primsigningu. Það er staðhæfing út í bláinn, sem þm. hélt hér fram, að ég sé yfirlýstur nazisti. Það eina, sem hann veit um mig í því efni, er, að ég tók hér ofurlítið svari þjóðernissinna í umr. um þetta mál, þegar mér þótti ósanngjarnlega á þá ráðizt. Og hvað snertir umtal hans um makk mitt við nazista í Þýzkalandi, þá er honum það kunnugt sem utanríkismálanefndarmanni, í hverju þetta „makk“ hefir verið fólgið. Og ef maður er að „makka“, þegar maður fer fyrir ríkisstj. hönd, þá hefði mátt segja, að ég hefði verið að „makka“ við sócíalistana og miðflokksmenn 1931, þegar ég fór í sömu erindum út af ísfisksölunni til Þýzkalands. Annars er það svo, að maður verður að tala við þau stjórnarvöld, sem þar eru fyrir, og ég býst við, að það geti orðið erfitt, jafnvel fyrir hv. 2. þm. Reykv., að tala nú sem stendur við stjórnarvöldin í Þýzkalandi án þess að eiga tal við nazista. Annars fer hann með einkennilegum hætti í þessu máli. Hann fullyrti á seinasta þingi með miklum fjálgleik, að það, sem hefði gert óróann 9. nóv., hefði verið þegar „það undarlega skeði“ ( sbr. ummæli hans í útvarpsumræðum í fyrra), að lögreglustjórinn hefði skyndilega gefið skipun um að ryðja salinn. Nú vill hann bendla allt aðra við þetta mál. En að öðru leyti hafði ræða hv. þm. verið mjög ljúfleg og salti krydduð, og löghlýðnin og ástin á lýðræðinu hafði skinið út úr hverju orði, en það hefir nú ekki alltaf verið hjá þessum hv. þm., hvorki á þingi eða utan þings. Mér eru í minni ýms atvik, sem hér hafa komið fyrir og staðið hafa í nánu sambandi við hv. 2. þm. Reykv. Það var t. d. atvinnubann, sem lagt var á Keflavík hér um árið, atvinnubann, sem lagt var á ákveðinn mann í Bolungavík og var látið ná svo langt, að bátur, sem hann átti eða félagi hans, var eltur norður á Akureyri og stöðvaður þar. Og svo er um mörg atvik, sem hafa komið fyrir. Maður var rekinn úr atvinnu á Siglufirði, sem ekki hafði annað fyrir sér gert en að hafa einhverntíma verið í varalögreglunni. Bílstjóri var stöðvaður við vinnu sína hér fyrir það eitt, að hann tilheyrði varalögreglunni. Öllum þessum atvikum mun hv. 2. þm. Reykv. vera mjög kunnugur, og sá flokkur, sem hann hefir mest völdin í, stendur að þessum verkum. Hvað sem um þau má segja, þá er það ábyggilegt, að það er ekkert lýðræði, sem hér liggur á bak við, eða löghlýðni. En nú er hv. 2. hm. Reykv., að því er hann telur, á annari skoðun.
Ég vil minna á það, að á þinginu 1932 var flutt frv. til laga um, að bændum væri leyfilegt að vinna að útskipun á framleiðsluvörum sínum, fyrir það kaup, sem þeim kæmi saman um. Frv. varð ekki að lögum. En í umr. um málið hafði hv. 2. þm. Reykv. þau orð um frv., að þó það yrði samþ. á þinginu, þá „skyldi þeim lögum aldrei verða hlýtt“. Ég hefi aldrei heyrt nokkurn þm. kveða svo að orði, að lögum frá Alþingi skyldi ekki verða hlýtt, nema hv. 2. þm. Reykv. En nú flytur þessi sami hv. þm. svo hjartnæmar ræður um lýðræði og mænir tárvotum augum yfir hafið til sócíalistastjónar Norðmanna og Dana, og nú á að vinna að öllu í anda lýðræðisins framvegis. Það er sannarlega ástæða til þess fyrir andstæðinga þessa hv. þm. að fagna yfir þeim mikilsverðu sinnaskiptum, sem hann hefir tekið. Maður minnist ósjálfrátt dæmisögunnar um glataða soninn, sem vek frá villu síns vegar og hvarf aftur heim til föðurhúsanna. Hv. 2. þm. Reykv. er fæddur og alinn upp undir lýðræðisþjóðskipulagi, en virðist hafa tilhneigingu til stjórnlítillar frekju, þegar hann vill koma sínu fram.
Ég fyrir mitt leyti er nú enn svo löghlýðinn og hlynntur lýðræði, að mér finnst ástæða til þess fyrir alla, sem unna lögum og rétti í þessu landi, að fagna því, að hv. 2. þm. Reykv. skuli vera farinn að hallast að því, að lýðræðið sé latið gilda í þessu landi og að lögunum sé hlýtt. Bara að þetta haldist hjá hv. þm.
Ég vil ekki fara langt út í ræður einstakra þdm. um varalögregluna. En af því að hv. þm. Ísaf. talaði með svo miklum fjálgleik um það, að varalögreglan yrði aðeins til þess að auka ofrið í landinu, þá vil ég benda honum á þá staðreynd, að enginn ófriður eða uppþot hafa átt sér stað hér í Rvík síðan varalögreglan var stofnuð í fyrrahaust, nema þessi lítilshattar aðsúgur, sem gerður var 9. nóv. síðastl. að samkunduhúsi Alþfl. og að líkindum hefir verið stofnað til af kommúnistum, en þangað var lögreglan kvödd það kvöld, eftir óskum jafnaðarmanna, til þess að skakka leikinn. (FJ: Þetta er ósatt, það er margbúið að leiðrétta þetta og lýsa yfir því, að lögreglan hafi ekki verið kvödd til þess að skakka neinn leik). Ég held, að það sé áreiðanlega búið að sanna það, að hv. jafnaðarmenn hafi þá kallað á lögregluna í dauðans angist sér til liðs. Og ég vil taka það skýrt fram, að ég held það sé ekki hægt að benda á, að þessir hröktu og hrjáðu varalögreglumenn hafi hikað við að gera skyldu sína og hjálpa sócíalistum til að fá fundarfrið, eins og líka rétt var. Þeir þakka það verr en skyldi, hinir hv. þm. sócíalista, þegar þeim er hjálpað. Ég þekki þá menn ekkert persónulega, sem eru í varalögreglunni, eða hvaða stjórnmálaflokkum þeir fylgja. En hv. jafnaðarmenn þykjast vita, hverjum þeir tilheyra. Og þá er heldur ekki forsomað að grafast vendilega fyrir um það, ef einhver af þeim mönnum, sem eru í varalögreglunni, hafi einhverntíma brotið eitthvað á móti lögunum. Hv. þm. Ísaf. var að hampa því, að einhver af þessum varalögreglumönnum hefði eitt sinn verið dæmdur fyrir eitthvert lagabrot. Mér finnst þetta vera hreint og beint ósæmilegt, út af fyrir sig, að vera í opinberum umr. að gera einkalíf þeirra, sem hafa tekið að sér þetta starf, að umtalsefni. Það er að sínu leyti af sömu rótum runnið eins og þegar verkalýðsfélagar hafa verið að elta varalögreglumennina á röndum, ef einhver þeirra hefir komizt að atvinnu við að stýra bíl eða ráðið sig í síldarvinnu hjá Ingvari Guðjónssyni eða öðrum norður á Siglufirði.
Þetta ber ljósastan vott um það, hversu afskaplega lágar hvatir liggja hér til grundvallar hjá heim mönnum, sem berjast með hnúum og hnefum gegn því hér á þingi, að hæfilegt lögregluvald sé til í landinu til að halda uppi lögum og rétti.