07.12.1933
Efri deild: 28. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 181 í D-deild Alþingistíðinda. (1470)

96. mál, kartöflusýki

Flm. (Eiríkur Einarsson):

Það þótti gæfulegt og til þjóðþrifa, þegar Íslendingar urðu til þess fyrir og eftir aldamótin 1800 að efla sjálfir með þekkingu og áhuga jarðepla- og garðrækt á Íslandi. Og síðan það hófst fyrir alvöru fyrir áeggjan þeirra manna, sem framkvæmdasamastir voru á þessu sviði, þá hefir þessi ræktun aukizt mjög hér á landi, svo að nú á 20. öldinni er jarðeplaræktin orðin öruggasta og bezta landbúnaðarstarfið, næst túnræktinni og öðru, er hefir bætt heyaflann, er auðvitað verður að teljast fyrst.

Það er því ekki að ástæðulausu, þegar stefnir í voða um slíkt bjargræði sem karftöflurnar eru Íslendingum, að leitað sé allra úrræða til að bæta úr því, sem nú horfir til eyðileggingar á slíkri björg í búi landsmanna. Hér á ég við það, sem till. hljóðar um, en það er kartöflusýkin, sem hefir útbreiðzt um landið, sérstaklega suðvesturhluta þess, og er nú það útbreidd, að hún er orðin hrein plága. Hér er því nauðsyn á að leita einhverra úrræða; fyrst að afla fullrar þekkingar á eðli sjúkdómsins og síðan að reyna að útrýma honum.

Sem dæmi þess, hve mikinn skaða þessi sýki gerir nú orðið, skal ég nefna ástandið í 2 sjávarþorpum austanfjalls, Eyrarbakka og Stokkseyri. Það mun láta nærri, að í hvoru þorpi hafi árlega verið framleitt um 3 þús. tunnur af kartöflum nú síðari árin, og ef maður verðleggur hverja tunnu á 15 kr., þá er það milli 40 og 50 hús. kr., sem íbúar þessara kauptúna, hvors um sig, eiga á hættu, ef þessi framleiðsla eyðileggst. En nú hefir kartöflusýkin breiðzt þar svo mjög út, að ef hún eykst eins mikið á næstu árum hlutfallslega og orðið hefir síðustu ár, þá verður öll uppskera þessara manna gereyðilögð nú á næstu árum. Er illt til þess að vita, og því nauðsynlegt að ráða bót á, ef hægt er.

En þá er eftir að vita, hvort kunnáttumenn geta fundið orsökina til þessarar sýki og ráð til að stemma stigu fyrir henni, og svarið hjá þeim, er þekkinguna þykjast hafa, er ekki eitt og hið sama. Till. mín gengur því út á, að það verði þrautrannsakað. Við erum svo heppnir að eiga ágæt tæki til að rannsaka allar meinsemdir landbúnaðarins. Það eru þau tæki, sem þýzka ríkið gaf okkur á alþingishátíðinni, og ekki er ómögulegt, að kunnáttumenn geti með hjálp þessara ágætu tækja fundið eitthvert ráð til að stemma stigu þessa vágests. Hér má einskis láta ofreistað. Ég álít tiltækilegt, ef til þyrfti að taka og álitið væri nauðsynlegt, að leita til erlendra sér fræðinga um þetta efni; þá verður að gera það, hvað sem sérstökum fjárveitingum líður. Þar verður nauðsynin að ráða, og ekkert annað. Ég skal verða fyrstur manna til að fordæma það, ef landslög; eru ekki virt, ef um fjárveitingar er að ræða umfram heimildir, þar sem fresta má aðgerðum, en ég vil ekki láta það hefta hinar bráðustu nauðsynjar, að engin fjárveiting sé heimiluð til þeirra í það eða það skiptið.

Það er um mig eins og ég hygg, að sé um fleiri þm., að máli þessu fylgir engin sér þekking af minni hálfu, heldur skilningur á því, að mikið er í húfi, og vilji til að ýta undir að rannsaka málið og hefta sýkina, ef mögulegt er. Mér virðist því sjálfsagt, að d. sinni þessu máli og samþ. till., svo að stj. sjái, að Ed. álítur skylt að gefa því gaum. Og því meiri nauðsyn er til að bæta úr þessu, að hér er að ræða um þá framleiðslu, sem helzt er lífsbjörg fátækari manna landsins, því að segja má, að því fátækari sem heimilin eru, því meiri not hafa þau af þessari framleiðslu, og við vitum það, að í mörgum kauptúnunum er þessi uppskera höfuðbjörg hinna fátækari. Vænti ég því, að hæstv. landsstj. geri það, sem í hennar valdi stendur, til að stemma stigu fyrir kartöflusýkinni hér á landi, nú að þessari till. samþykktri.