21.11.1933
Neðri deild: 15. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 134 í B-deild Alþingistíðinda. (148)

2. mál, kosningar til Alþingis

Héðinn Valdimarsson:

Hv. þm. V.-Húnv. heldur fram, að ekkert samkomulag hafi verið um það milli flokka á Alþingi í fyrra, að löglegt skyldi vera fyrir flokkana sjálfa að stilla eða raða á landslista. Ég var í stjskrn. á síðasta þingi, og þykir mér því rétt að skýra nánar frá tildrögum brtt. þeirrar, sem samþ. var um þetta efni og er á þskj. 789 í A-deild Alþt. 1933. Hún var frá stjskrn., og á fundi n. þegar hún var samþ. voru allir mættir nema hv. þm. Barð. Á þeim fundi komu fulltrúar framsóknarmanna, hv. þm. Str. og hv. þm. Mýr., með þá till., að hvert sæti á landslista skyldi skipað frambjóðendum utan Rvíkur. Um þetta urðu svo töluverðar deilur þann stutta tíma, sem fundurinn stóð. Ég hélt fram, að það væri nokkuð mikilsvarðandi atriði, að flokkarnir gætu sjálfir raðað á listana nokkuð óbundnir og stillt mönnum úr Rvík eða utan af landi, sem ekki væru frambjóðendur í kjördæmi, ef þeim sýndist svo. Á móti þessu voru till. framsóknarmannanna í n. Hinsvegar var mikil áherzla á það lögð á meðal sjálfstæðismanna og framsóknarmanna í n., að samkomulag næðist innan n. um afgreiðslu stjskr. Ég lýsti því yfir fyrir hönd Alþfl., að ég vildi ekki fallast á brtt. framsóknarmannanna eins og hún var lögð fram í fyrstu. Samþ. fulltrúar Framsfl. þá til málamiðlunar, að annaðhvert sæti á landslista skyldi vera skipað frambjóðendum utan Rvíkur. Á þennan hátt var gert fyrir því, að flokkarnir gætu sjálfir raðað á landslista sína. Ef nú á að koma í veg fyrir það með ákvæðum kosningalaganna, þá álít ég, að með því sé brugðið þeim loforðum, sem með samkomulaginu milli flokkanna voru gefin. Ég hefi minnzt á þetta við hv. þm. Str., og hann kannaðist við þetta, og þó ég hafi ekki talað við hv. þm. Mýr., geri ég ráð fyrir, að eins standi á um hann. Vænti ég því fastlega, að flokkarnir standi við það samkomulag, er þeir gerðu á þessum grundvelli með samþykkt stjskr. Það er að vísu rétt, að í orðalagi brtt. kemur ekki eins skýrt fram og skyldi, hver var tilgangurinn með henni, en ég hefi nú lýst tildrögunum að því, að hún var borin fram, og ég held því fastlega fram, að Alþfl. hafi með umræddu samkomulagi innan stjskrn. fengið rétt til þess að raða sjálfur á landslista sinn.