08.12.1933
Sameinað þing: 13. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 546 í D-deild Alþingistíðinda. (1484)
84. mál, áfengismálið
Ólafur Thors:
Ég vil skýra fyrir hæstv. forseta, að meining okkar, sem skrifuðum undir áskorunina, var sú, að umr. yrðu skornar niður þegar í stað. Ef það er vilji hæstv. forseta að girða fyrir, að málið komi til úrskurðar Alþ., þá get ég skilið, að hann ætli að bera till. upp þannig, að umr. yrðu þá fyrst skornar niður, þegar 14 málþófsmenn væru búnir að ljúka máli sínu. En ef það er vilji hæstv. forseta að gefa Alþ. færi á að segja sitt álit um það, hvort fara beri eftir þjóðarviljanum eða ekki, þá á hann að bera till. upp eins og hún er orðuð.