21.11.1933
Neðri deild: 15. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 135 í B-deild Alþingistíðinda. (149)

2. mál, kosningar til Alþingis

Hannes Jónsson [óyfirl.]:

Hv. 2. þm. Reykv. vill halda fram, að samningur sé milli flokka um afgreiðslu kosningalaganna. En það er ekki rétt, því samkomulagið, sem hann ræddi um, var aðeins um stjskr.málið sjálft. Hann vitnaði í hv. þm. Str., að hann hefði viðurkennt, að samkomulagið næði til kosningalaganna. En það er alveg gagnstætt því, sem fram kom í ræðu hjá hv. þm. Str. í fyrra því þar segir hann, að það atriði, sem hér er um að ræða, sé eitt af þeim mörgu atriðum, sem setja þurfi löggjöf um á næsta þingi. Enda liggur í augum uppi, að ómögulegt var að gera samning um þetta gagnvart kosningalögunum, því þeim er hægt að breyta hvenær sem er, ef fylgi fæst til þess. Stjskr. er aftur á móti ekki hægt að breyta nema bera það undir þjóðina aftur. Það er skiljanlegt, að hv. 2. þm. Reykv. vildi koma þessu inn í stjskr. sjálfa, því þaðan er erfitt að koma því út aftur, en þó það kæmist inn í kosningalögin nú, er ekki loku fyrir skotið, að næsta þing tæki það út. Um þetta atriði gátu ekki farið fram samningar í fyrra; þá var aðeins samið um stjskrfrv. sjálft, en ekki þá löggjöf, sem hlaut að koma sem afleiðing af því, sem sé kosningalögin.

Ég vildi aðeins skjóta þessu fram. Þó hv. 2. þm. Reykv. vitni í hv. þm. Str. nú, tel ég ekki síður í gildi það, sem fram kom í ræðum hans á þingi í fyrra, meðan honum ætti að hafa verið í fersku minni samningarnir milli flokka um þessi efni.