04.12.1933
Efri deild: 25. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 185 í D-deild Alþingistíðinda. (1492)

76. mál, blindir menn og afnot af útvarpi

Magnús Jónsson:

Ég vil aðeins þakka n. fyrir afgreiðslu þessa máls. Breyt. sú, sem n. vill gera á till., er með þeim hætti, að ég get alveg eins unað till. í því formi, sem n. vill hafa á henni. Á hinn bóginn vill n. koma með þá breyt., að atvmrn. geti sett reglugerð um þetta. — Ég hefi svo ekkert meira að segja nema óska, að d. geti afgr. þessa till. svo fljótt, að við getum haft von um, að hún komist nú gegnum þingið, því að þetta er áreiðanlega gott mál, þó að það sé að vísu smámál.