08.12.1933
Sameinað þing: 13. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 555 í D-deild Alþingistíðinda. (1495)

84. mál, áfengismálið

Halldór Stefánsson:

Ég hefi ekki kvatt mér hljóðs til þess að lengja þessar umr. með malþófi, eins og sýnist vera háttur manna nú, enda er dauflegt að tala hér yfir tómum stólunum.

Það hefir verið haft meira við þetta mál en önnur mál, þótt mikilsverð séu, har sem því var vísað til úrskurðar þjóðarinnar til atkvgr. Sú atkvgr. hefir farið löglega fram, og tjáir ekki um það að tala, hvort atkvgr. hefir verið vel eða illa sótt; úrskurður þjóðarinnar er fallinn í málinu á þá leið, að meiri hl. þeirra, sem atkv. greiddu, vill, að þau slitur, sem eftir eru af hinum upphaflegu bannlögum, verði afnumin, og tel ég þinginu skylt að hlíta þeirri atkvgr.

Ég hefði getað fallizt á fyrir mitt leyti, að frv. það um rýmkun undanþágunnar frá áfengislöggjöfinni, sem borið var fram í Ed., hefði fengið afgreiðslu þessa þings, þótt ég játi hinsvegar fullkomlega, að það verður að athuga vandlega, hvernig haga á löggjöfinni í þessu efni til langframa. Ég hefði getað fallizt á þetta sem bráðabirgðalausn í málinu, sem hlíta mætti við til næsta þings.

Nú hefir hinsvegar verið horfið frá því að láta málið ganga afram, og er ástæðan ef til vill sú, að frv. hafði ekki skilyrði til að ná samþykki Ed., og er þessi þáltill. borin fram í staðinn af þeim, sem vilja leysa þetta mál umfram allt sem fyrst, en hafa ekki þreyju til að bíða næsta þings. En þótt ég sé þeirrar skoðunar, að afnema eigi það slitur, sem eftir er af bannlögunum, og að þinginu sé skylt að hlíta þjóðaratkvgr., get ég samt ekki fallizt á þessa þáltill., af ástæðum, sem aðrir hv. þm. hafa tekið hér fram í löngu og miklu máli og eru þær, að ég tel óhæfilegt, að þing, sem situr á rökstólum, fari að samþ. áskorun til stj. um að gefa út bráðabirgðalög, Slíkt væri hneyksli, sem ekki má koma fyrir, og af þeim ástæðum mun ég ekki geta léð þessari afgreiðslu málsins atkv. mitt. (JJós: Það eru fordæmi fyrir þessu). Ég hefi heyrt talað um þessi fordæmi, en enda þótt fordæmi kunni að vera um þetta, þá eru það fordæmi til að varast, en ekki til eftirbreytni, og er ég þó a. m. k. ekki bundinn við að fallast á þau fordæmi. Að mínu áliti er aðeins um tvennt að velja í þessu máli. Annaðhvort að Alþingi gefi sér tíma til að afnema bannið með þinglegum hætti og setji þar um lög með vandlegri athugun, eða menn verða að sætta sig við að bíða eftir að málið verði fyrst afgr. á næsta reglulegu þingi. Er þessa og ekki langt að bíða, tæpt ár. Ég hefði hinsvegar talið það eðlilegt, ef fram hefði komið till. um að skora á ríkisstj. að undirbúa nýja áfengislöggjöf undir næsta þing, og ég hygg, að allur þingheimur hefði orðið slíkri till. einróma fylgjandi. Ég hygg, að bannmenn yfirleitt muni ekki telja sér fært að brjóta í bag við atkvgr., a. m. k. hefi ég heyrt einn þm. í Nd., sem er einhver ákveðnasti bannmaðurinn í þinginu, segja það, að hann teldi sér skylt að fylgja vilja meiri hl. þjóðarinnar.

Ég mun fylgja þeirri dagskrártill., sem borin hefir verið fram, eða annari, sem kæmi fram í líka átt.

Mér finnst það mikil yfirsjón af áhugamönnum um þetta mál frá báðum hliðum — sjálfur læt ég mig þetta mál litlu skipta —, að þeir skyldu ekki í upphafi beina til stj. fyrirspurn, svipaðri þeirri, sem hv. 2. þm. S.-M. bar nú fram, en hitti aðeins auða stóla fyrir, um það, hvort stj. mundi yfirleitt taka þessa þáltill. til greina, þótt hún væri samþ. Ef svör stj. við þvílíkri fyrirspurn hefðu orðið á þá leið, að stj. mundi ekki sjá sér fært að taka till. til greina, er augljóst, að till. hefir enga þýðingu í málinu og að þær málalengingar, sem hér hafa verið hafðar og útlit er fyrir, að verði hafðar afram, eru óþarfar, þótt að vísu sé ekki hægt að leiðrétta þau mistök, sem orðin eru.

Ég mun svo ekki fara fleiri orðum um rétta mál. Ég vildi aðeins taka fram þær ástæður, sem valda því, að enda þótt ég telji sjálfsagt að verða við þjóðarviljanum í þessu máli, þá, sé ég mér samt ekki fært að fallast á þá till., sem liggur fyrir.