08.12.1933
Sameinað þing: 13. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 557 í D-deild Alþingistíðinda. (1497)

84. mál, áfengismálið

Jakob Möller:

Ég get í sem stytztu máli sagt það, að ég er sammala hv. 2. þm. N-M., sem var að setjast rétt í þessu. Ég tel það ekki vafamál, að þinginu beri að fara að þjóðarviljanum í þessu máli, sem fram kom við atkvgr. fyrsta vetrardag, og ég lít svo á, að það hefði farið vel á því að breyta áfengislögunum á þessu þingi samkv. þeim yfirlýsta þjóðarvilja. Hinsvegar tel ég þá leið til breytinga á löggjöfinni, sem felst í þessari till. og er sú, að skora á stj. að gefa út bráðabirgðalög um þetta efni, svo varhugaverða, að ég get ekki greitt henni atkv. Eins og ég sagði, er þetta ekki af því, að ég telji ekki sjálfsagt að breyta áfengislöggjöfinni, heldur af því, að ég tel þetta brot á þingræðinu og því stjórnarskipulagi, sem við búum við. Get ég um þetta vísað til þeirra forsendna, sem hv. þm. N.-Ísf. hafði fyrir dagskrártill. þeirri, sem hann hefir borið fram. Ef slíkt fordæmi sem þetta er gefið, er þar með opin leið fyrir hvern þann þingmeirihluta á hverjum tíma, sem vildi það við hafa, að skora á stj. með þáltill. í Sþ. að setja bráðabirgðalög um þau atriði, sem deilt væri um og meiri hl. gæti ekki sett lög um eftir hinum lögmæltu leiðum með 3 umr. í báðum d. þingsins. Væru slíkir stjórnarhættir vissulega ekki æskilegir, enda gæti svo bratt komið, ef farið væri út á þessa braut, að landinu væri stjórnað með eintómum bráðabirgðalög um. Að vísu hefir réttilega verið bent á hað, að stj. þurfi að leggja bráðabirgðalög, sem hún gefur út, fyrir næsta þing á eftir, en ef svo stendur á sem ég gerði ráð fyrir í dæminu hér á undan, og engin breyt. yrði á skipun þingsins á milli, mætti eins vel búast við því, að jafnframt því, sem slík bráðabirgðalög væru felld í annarihvorri d. þingsins, gæfi Sþ. út skipun til stj. um að gefa lögin út á ný. Gæti þetta orðið sú svikamylla, sem erfitt er að sjá fyrir endann á, hverjar afleiðingar hefði.

Ég tel það galla á dagskrártill. hv. þm. N.-Ísf., að hún lýsir ekki afstöðu þingsins til málsins sjálfs. Ég tel sjálfsagt, að þingið gefi einmitt yfirlýsingu um það, að það vilji fara eftir þjóðarviljanum í þessu máli. Ég vildi því óska, að þingið fellist á að afgr. málið með annari dagskrártill., sem ég skal leyfa mér að lesa upp og ég hefi orðað sem brtt. við þá dagskrá, sem liggur fyrir. Þessi dagskrártill. mín er svo hljóðandi:

„Sameinað Alþingi ályktar að lýsa yfir því, að það lítur svo á, að þjóðaratkvgr., sem fór fram 1. vetrardag síðastliðinn, skeri úr um það, að áfengislöggjöf landsins beri að breyta samkv. þeim þjóðarvilja, sem þá kom fram, og í trausti þess, að ríkisstj. undirbúi slíka lagasetningu fyrir næsta reglulegt þing, tekur þingið fyrir næsta mál á dagskrá“.