08.12.1933
Sameinað þing: 13. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 558 í D-deild Alþingistíðinda. (1498)

84. mál, áfengismálið

Bergur Jónsson [óyfirl.]:

Till. sú, sem hér liggur fyrir, er að því leyti einstæð, hv e hún er borin fram af mörgum þm. En því undarlegri er sú meðferð, sem till. hefir fengið. Þrátt fyrir óskir 14 þm. um að taka till. á dagskra til umr., hefir þetta þó ekki fengizt, heldur hefir hæstv. forseti æfinlega hnoðað till. á eftir öðrum till., sem vitanlegt var um, að um mundi standa miklar og endalausar umr., eins og líka hefir komið á daginn. Sýnir þessi meðferð á till. það greinilega, að þeir menn, sem ekki vilja, að till. gangi fram, hafa ætlað sér að koma henni fyrir kattarnef með þeim hæga hætti að svæfa till.

Því hefir verið haldið fram, að þessi till. væri óþingleg, með því að með henni væri farið fram á að setja löggjafarvaldið í hendur stj. En mér er spurn: Er það fremur að setja löggjafarvaldið í hendur stj., þegar vísað er til úrskurðar þjóðarinnar og stj. þannig settur rammi um það, sem hún á að gera, heldur en þegar Alþingi felur stj. að setja reglugerðir um það, hvernig framkvæma skuli ein eða önnur mikilsvarðandi lög? Reglugerðir geta oft verið svo umfangsmiklar og þýðingarmiklar, að þær séu ekki síður varðandi en sjálf lagasetningin. — Þjóðin hefir verið að því spurð, hvort hún vilji afnema bannlögin, og hún gaf játandi svar við þeirri spurningu. Og ég vil benda hv. þm. á það, að vilji þeir ekki fara að vilja þjóðarinnar í þessum efnum, er ég hræddur um, að okkur öllum, sem halda eigum uppi lögum í landinu, gangi erfiðlega að halda þessum lögum í gildi, sem þjóðin hefir úrskurðað, að hún vilji ekki hlíta.

Hv. hm. N: Ísf. hélt hér mikla og hvassa ræðu, þar sem hann reyndi að sýna fram a, að þessi till. væri óhæf. M. a. færði hann það til, að málið vantaði meiri hl. í annari d. þingsins a. m. k. Það er að vísu rétt, að í Ed. hefir komið fram frv. um afnám bannsins, en endanleg atkvgr. hefir engin farið fram um það enn. Málinu var visað til n., n. klofnaði í því, og hafa báðir nefndarhlutarnir gefið út nál., og vill annar nefndarhlutinn fella frv., en hinn nefndarhlutinn leggur til, að frv. verði samþ. Eins og ég sagði, hefir engin endanleg atkvgr. farið fram um málið, svo að um hana verður ekkert sagt til né fra. Það má vel vera, að hv. þm. N.-Ísf. vísi til þess, að meiri hl. þings muni greiða atkv. á móti þessari till. okkar, sem sýni, að meiri hl. þingsins sé andvígur afnámi bannsins, en það er engin sönnun þess, að meiri hl. þings vilji ekki afnema bannið, þótt hann geti ef til vill ekki fallizt á að fara þessa leið að því marki. Þetta er því engin sönnun hjá hv. hm. N.-Ísf., heldur getsakir einar.

Hv. þm. N.-Ísf. sagði, að það væri engin ástæða fyrir þm. að fara að breyta sannfæringu sinni eftir þjóðarviljanum. Til hvers greiddi þá hv. þm. atkv. með því, að málið yrði lagt í dóm þjóðarinnar með þjóðaratkvgr.? (VJ: Ég greiddi alls ekki atkv.). Það kann að vera, að það sé rétt, að hv. þm. hafi ekki greitt atkv., en ég veit ekki betur en að mikill meiri hl. þings hafi greitt þessu atkv., og ef hv. þm. sat hjá við atkvgr., telst hann einmitt með meiri hl. — Til hvers var þingið að vísa þessu máli til þjóðaratkvæðis? Var það til þess að leita eftir nýjum rökum í málinu? Nei, það var til þess að fá fram vilja þjóðarinnar í málinu. Við hefðum varla farið að narra fleiri þús. manna á kjörstað, ef við ætluðum okkur ekki að taka fullt tillit til þess, sem fólkið segði. Ef við töldum okkur ekki bundna af úrslitum atkvgr., áttum við ekki að samþ. hana. Ef við töldum, að við ættum sjálfir að gera út um málið, þá átti m. a. hv. þm. N.-Ísf. að greiða atkv. um frv. okkar á síðasta þingi um afnám bannsins, en ekki að sitja hjá við atkvgr. Þjóðaratkvgr. var meiningarlaus, ef hún atti ekki að úrskurða um það, hvað Alþingi á að gera í málinu.

Hv. þm. N.-Ísf. talaði mikið um rétt minni hl., og þótti mér einkennilegt að heyra slíkt af munni hans. En hver er réttur minni hl., þar sem aðeins er um ja eða nei að ræða? — Hv. þm. viðurkenndi, að meiri hl. hefði verið með afnámi, en sagði jafnframt, að það væri ókunnugt, hver væri afstaða kjósendanna til afgreiðslu malsins. Þessu er því til að svara, að það er ekki sök kjósendanna, heldur þeirra, sem bjuggu út kjörseðilinn, ef atkvgr. er ekki nægilega skýr. Og svo mikið er þó vist og óvéfengjanlegt, að meiri hl. kjósendanna lýsti sig með því að afnema þetta slitur, sem enn er eftir af bannlögunum.

Þá talaði hv. þm. N.-Ísf. um það, að hér væri um flausturslega aðferð að ræða. Getur verið, að rétt se. En hverjum er um að kenna, ef svo er? — Í þingbyrjun var lagt fyrir Ed. frv. um afnám bannsins, en d. hefir legið á því frv. allt fram á síðustu daga, að nál. hefir loks birzt um það, svo að það er ekki okkur að kenna, sem flytjum þessa till., þótt aðferðin þyki ef til vilj nokkuð flaustursleg, heldur fyrst og fremst Ed., sem dregið hefir þannig að gefa úrskurð sinn í málinu, þangað til það er orðið um seinan. Það er meining okkar, að fyrir næsta þing verði undirbúin vandlega ný löggjöf um áfengismálin í heild sinni, en við álitum það hinsvegar skyldu þingsins að hlíta strax þeirri niðurstöðu, sem þjóðaratkvgr. gaf. Við viljum, að farið sé að þjóðarviljanum í þessu máli þegar í stað, og viljum því fela stj. að afnema bannið eftir nýárið með bráðabirgðalögum, í því trausti, að stj. gengi svo frá þessu, að við megi hlíta til næsta þings, en við ætluðumst til, að stj. undirbúi jafnframt vel og samvizkusamlega nýja heildarlöggjöf um þessi efni, sem lögð sé fyrir næsta þing og afgr. af því.

Hv. þm. N.-Ísf. las hér yfir þingheimi heila kafla úr úreltri stjórnlagafræði eftir Lárus H. Bjarnason, þar sem m. a. var kveðið svo á, að bráðabirgðalög mætti því aðeins gefa út, að brýna nauðsyn bæði til. Rétt er nú það. Stjskr. kveður svo á. En hvað er brýn nauðsyn, ef ekki það, sem þjóðarvilji og þingvilji er á bak við? Hv. þm. las eitthvað um drepsóttir og hættur, sem yfirvofandi væru, og lagði svo út af þeim texta með þeim bókstaflega skilningi, sem þeim mönnum er gefinn, sem ekki eru lögfræðingar. Held ég, að hv. hm. N.-Ísf. væri hollast að hætta sér ekki út í stjórnlagafræðilegar umr. hér í þingsalnum. (TT: Heyr). Hv. þm. vitnar hér í gamlar og úreltar lögskýringar, og ber með því sjálfum sér vitni um það, að hann ætti helzt ekki að tala svo digurbarkalega um þessi mál. Hann talaði í þessu sambandi um að afsala þingræðinu í hendur bráðabirgðastjórnar. Fyrst og fremst veit hann ekkert, hvort hún verður bráðabirgðastj. t. d. eftir nýarið eða ekki. Hún getur verið þingræðisstjórn þá. En enda þótt hún sé bráðabirgðastj., það sem stundum er kallað „fungerandi“ stjórn, þá get ég ekki séð, að það skipti neinu máli; hún er jafnskyld til að fullnægja þingvilja og þjóðarvilja fyrir hvi.

Þá er þetta einlæga tal hv. 2. þm. S.-JÍ. og annara bannmanna um, að það sé verið að setja hættulegt fordæmi. Ég vil spyrja hv. þm. um það: Hvernig getur þingið eiginlega sett hættulegt fordæmi ? Hvenær er það, sem hægt er að banna þingi að gera samþ., sem það vill gera: Ég skil ekki, að næsta þing eða næstu þing séu skuldbundin til að fylgja því, sem fyrri þing hafa gert í einhverjum og einhverjum málum. Það er bara vitleysa að halda fram nokkru fordæmi í löggjöfinni. Löggjafinn getur alltaf gert hvaða firrur sem hann vill, bara ef meiri hl. er með, annaðhvort í sameinuðu þingi eða í deildunum. Ég efast ekki um, að ef við rannsökum löggjöfina frá undanförnum árum, þá sjáum við, að þingið hefir sett öll möguleg fordæmi, sem er mjög hættulegt að fylgja, — sjálfsagt miklu skaðlegri og vitlausari fordæmi en þetta er. Það, sem hvert þing á að gera, er að dæma um, hvað því þykir rétt eða rangt, hvað svo sem fyrri þing hafa gert, — það kemur engu máli við. Og ég er stórhissa á því, að eins glöggur maður og hv. hm. Borgf. skuli vera að reyna að nota svo barnalegar og úreltar röksemdjr eins og þetta.

Hv. 2. þm. S.-M. sagði, að yfirleitt hefðu sveitirnar verið með banni, en Reykjavík á móti, af því að þar væri ástandið verst. Ég get þá bent hv. þm. á það, að alla leið frá Öræfum til Borgarfjarðarsýslu eru andbanningar í yfirgnæfandi meiri hl. Ég neita ekki, að meiri hl. var með banni í mínu kjördæmi, en ég held samt fram, að bannið beri að afnema. (VJ: því beygir þm. sig ekki fyrir meiri hl. þar?). Af því að ég er búinn að samþ., að það fari fram þjóðaratkvgr. um málið, og ég hlíti dómi meiri hl. á öllu landinu, en ekki í einu kjördæmi. Ég held því ekki fram, að hv. þm. N.-Ísf. sé að stritast við að vera í samræmi við kjósendur sína, því að hann var þessarar sömu skoðunar áður en hann bauð sig fram í vor, en hann má heldur ekki nú láta afstöðu þeirra hafa nein áhrif á sig. Það eru úrslit þjóðaratkvgr., sem skipta máli.

Hv. ?. þm. S.-M. var afaramasamur yfir því, þegar ég henti á, að það væri meiri hl. móti banni, líklega vegna Suður-Múlasýslu. En kunnugir menn segja mér, að þar fljóti allt í allskonar áfengum drykkjum. (ÓTh: Er þetta þá í sjálfri Suður-Múlasýslu!). Þess vegna tel ég lítinn skaða að hætta að vernda hina súru framleiðslu í Suður-Múlasýslu fyrir innflutningi heilbrigðari áfengra drykkja. (IF: ég held þingmaðurinn fengi ekki annað en kannske skýrsleikju þar!).

Hv. 2. þm. S.-M. spurði, hvort stj. sæi sér fært að framfylgja þál. Ég skal ekkert segja um það. En a. m. k. þykir mér einkennilegt sjónarmið jafnaðarmanna, sem hafa þing eftir þing haldið fram, að þingið ætti að vera í einni málstofu, þegar þeir halda fram, að þetta mál eigi að binda við úrslit samkv. deildaskipun, þar sem vitað er, að 18 menn í Nd. og 7 menn í Ed. eru samþykkir afnáminu. Það eru einkennilegar hugmyndir um þingræði, ef ekki er álitið, að stj. sé skyld til að framfylgja þeirri samþykkt, sem sameinað Alþingi gerir, — sérstaklega þegar þeir sömu menn eru fylgjandi því að hafa eina málstofu. Um skoðun hv. 2. hm. S.-M. á þessu atriði veit ég ekki, en býst við, að hann standi þar nærri jafnaðarmönnum. Mér finnst a. m. k. sjálfsagt, að stj., hvort sem hún er „fungerandi“ stj. eða þingræðisstjórn, sé skyld til að fylgja þeirri ályktun, sem meiri hl. Alþingis gerir, og meira að segja skyldugri til að fylgja slíku heldur en þó að merðist einhver meiri hl. í tveimur deildum.

Hv. 1. þm. Reykv. þar fram nýja dagskrártill. Ég get ekki gengið inn á hana, vegna þess, að hún er sýnilega gerð í þeim tilgangi einungis að drepa niður hann tilgang og vilja, sem var í okkar till. Þessi till. miðar að því að draga skipun áfengismalanna til næsta þings, en framkvæma ekki þjóðarviljann. Það er eðlilegt, að góðtemplarar vilji þetta, þó að ég sé hissa á, að þessi hv. þm. beri slíkt fram. Ég bjóst við því, að hann sem fulltrúi þess kjördæmis, þar sem yfirgnæfandi meiri hl. var með afnáminu, mundi ekki vilja ganga á undan öðrum í þrjózkunni gegn vilja þjóðarinnar, og þá sérstaklega vilja sinna kjósenda.

Þessi hv. þm. talaði mikið um fordæmi. Hann talaði um svikamyllu. Ég álít barnahjal að tala um fordæmi af okkar hálfu. hað, sem við gerum, það gerum við af því, að við álitum það á þeirri stundu rétt, hvort sem það var áður gert eða ekki. — Ég get þess vegna ekki greitt dagskrártill. hv. 1. þm. Reykv. atkv., og vonast til, að hann verði til þess að taka hana aftur eða greiða atkv. á móti henni.

Ég tek enn fram að lokum, að ég álít hvergi hættulegra að biðja stj. að setja bráðabirgðalög í samræmi við þjóðarvilja og þingvilja heldur en ef við bæðum hana að setja reglugerð í samræmi við lög, sem við hefðum samþ.