04.12.1933
Efri deild: 25. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 185 í D-deild Alþingistíðinda. (1500)
76. mál, blindir menn og afnot af útvarpi
Magnús Jónsson:
Ég er alveg sammála hv. 3. landsk. um það, að varhugavert sé að samþ. fjárveitingar á þessu þingi, og það var einmitt þess vegna, að ég tók ekki til greina þá ósk frá Blindravinafél., sem mér fannst þó hliðstæð þessari, að greiða laun kennara, sem félagið vill hafa við blindraskólann. Ég vildi ekki taka það upp, af því að ég vildi ekki, að samþ. væri slík bein fjárveiting á þessu þingi. Þess vegna sneið ég till. Þannig, að útvarpið skyldi kosta þetta. Ég fór fram á það við n., að hún gerði þetta, og það hefir hún líka gert með því að setja það ákvæði, að þessi útgjöld skuli færð inn á fjárhagsáætlun útvarpsins. Þetta kemur auðvitað í sama stað niður, því að útvarpið er rekið með halla, sem verður vitanlega þeim mun meiri, ef þessi till. verður samþ., og hallinn lendir vitanlega á ríkissjóði. En mér finnst samt rétt að hafa þetta form, svo að ekki verði með þessu veitt fordæmi fyrir fjárveitingum úr ríkissjóði á svona aukaþingi. Þess vegna fór ég fram á það við, n., að hún flytti brtt. um þetta, eins og hún hefir nú gert.