08.12.1933
Sameinað þing: 13. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 564 í D-deild Alþingistíðinda. (1503)

84. mál, áfengismálið

Forseti (JBald):

Það er rétt hjá hv. þm. V.-Ísf., að það er ekki venja þeirra, sem bera fram kröfu um að slita umr., að heimta slíkt tafarlaust, heldur að þeir fái að tala, sem á mælendaskrá eru. En þessa kröfu, sem er fram komin, sé ég mér ekki fært annað en bera þannig upp, að tafarlaust sé slitið umr. Hv. þm. verða þá að skera úr með atkv. sínu.