08.12.1933
Sameinað þing: 13. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 565 í D-deild Alþingistíðinda. (1510)

84. mál, áfengismálið

Jakob Möller:

Það er sú furðulegasta kenning um þingsiði og þingsköp, sem hv. þm. N.-Ísf. hefir komið fram með, ef flm. till. getur ekki hvenær sem er gert þá breyt. á sinni till., sem honum sýnist. Þetta er svo föst þingvenja, að það er óskiljanlegt, að hv. þm. skuli leyfa sér að bera annað eins fram. Það er meira að segja föst venja á þingi, að þótt annar maður komi með brtt. við till. þm. og till.maður samþ. brtt., þá er sú breyt. skoðuð sem hans eigin breyting, og alls ekki borin upp sérstaklega. Ég veit, að hæstv. forseti þekkir þetta, og efast þess vegna ekkert um, hvernig hann muni úrskurða. (ÓTh: Þetta var gert þrisvar sinnum í dag!).