21.11.1933
Neðri deild: 15. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 137 í B-deild Alþingistíðinda. (152)

2. mál, kosningar til Alþingis

Frsm. (Thor Thors):

Það eru ýms atriði í ræðum hv. þm., sem ég þarf að svara nokkrum orðum.

Ég hefi í raun og veru fáu einu að svara hv. þm. N.-Ísf. Hann var að reyna að gjalda mér líku líkt með því að halda fram, að við sjálfstæðismennirnir í stjskrn. hefðum eigi gætt þess að gera allar gr. kosningalagafrv. í samræmi við till. okkar. Vildi hann tilnefna 51. gr., að hún yrði ekki samkv. okkar till. í samræmi við aðrar gr. frv., sem fjalla um gerð kjörseðilsins. Þetta er ekki rétt. Við getum þess í brtt., að hæð neðri hluta kjörseðilsins skuli fara eftir áætlaðri tölu landslista, og þá liggur í hlutarins eðli, að það á einnig að taka tillit til þess ákvæðis kosningalaganna, að jafnan skuli vera nokkurt autt bil neðst á seðlinum. Hér er því um útúrsnúning einn að ræða, en ekki rök í málinu.

Þá fór hv. þm. nokkrum orðum um þá nauðsyn, sem hann vildi telja á þeirri breyt., að allar kjörstjórnirnar skuli vera kosnar hlutfallskosningu, en engin sjálfkjörinn í þær. En ég sá ekki, að hann kæmi fram með rök fyrir skoðun sinni, sem máli skipta. Helzt vildi hann bera því við, að ósmekklegt væri, að einn maður væri sjálfkjörinn í kjörstjórn einnar kjördeildar innan hvers hrepps, en allar kjörstjórnir hinna kjördeildanna kosnar. Ég sé ekki, að þetta skipti nokkru máli, og slík röksemd ætti að sýna hv. þm. N.-Ísf. og þeim, sem eru á sömu skoðun, hvað það getur verið nauðaþýðingarlítið atriði, þó einn maður eigi að vera sjálfkjörinn í kjörstjórn.

En það var ræða hv. þm. Barð., sem gefur mér tilefni til ýmsra aths. Áður en ég sný mér beint að máli hans vil ég geta þess, að fyrsta brtt., sem hann er viðriðinn og stendur á þskj. 76, er algerlega þýðingarlaus, því samkv. frv. eins og það liggur fyrir eiga kjörskrárnar að öðlast gildi 1. júlí. Það þýðir, að hin nýja kjörskrá gengur í gildi kl. 12 á miðnætti milli hins 30. júní og 1. júlí. Er þannig séð fyrir því, að nýja kjörskráin er ætið komin í gildi þegar kjörfundur hefst. Þetta er því alveg tilefnislaus brtt., eins og raunar flestar till. á þessu sama þskj.

Hv. þm. Barð. drap réttilega á það, og var það hið eina réttmæta í ræðu hans, að munur væri á aðstöðu kjósenda í landinu til þess að nota atkvæðisrétt sinn. Það er vissulega mikill munur á aðstöðu kjósenda, en sá munur verður aldrei afnuminn, nema þessi hv. þm. vilji þá beita sér fyrir því, að allir kjósendur landsins flytjist til kaupstaðanna og hinna stærri kauptúna. Það er ekki hægt með neinum löggjafarákvæðum að útrýma þeim landfræðilega mismun, sem hlýtur að hafa áhrif á aðstöðu kjósenda til þess að neyta atkvæðisréttar síns.

Þá vildi þessi hv. þm., og einnig meðflm. hans, gera litið úr þeirri staðhæfingu minni, að þessar brtt. þeirra væru ekki í samræmi við önnur ákvæði kosningalagafrv., að þær væru eins og gripnar úr lausu lofti og ekki gerð tilraun til að fella þær við önnur ákvæði frv. Því geta þeir þó ekki neitað, að það felst ekki ein einasta regla í þessum till. þeirra um það, hvernig aukakjörfundirnir eiga að fara fram. Séu brtt. samþ. eins og þær liggja fyrir og frv. ekki breytt að öðru leyti, verða menn að geta í eyðurnar. En til að sýna ósamræmið, sem fram kæmi, vil ég með leyfi hæstv. forseta lesa upp t. d. 97. gr. frv.: „Áður en fyrsti kjósandi lætur seðil í kassann, skal kjörstjórnin og frambjóðendur eða umboðsmenn gæta þess, að kassinn sé tómur og síðan læsa honum“. Nú er vitanlegt, að kassinn getur ekki verið tómur þegar aðalkjörfundur hefst, hafi verið aukakjörfundur daginn áður. Í 99. gr. er sagt, að ef kjósandi, sem greitt hefir atkv. utan kjörfundar vegna þess, að hann býst ekki við að vera viðstaddur þegar kjörfundur fer fram, er samt sem áður staddur innan kjördeildar meðan kjörfundur stendur yfir, þá sé hann skyldur til að tilkynna nærveru sína. Nú vil ég spyrja hv. flm. brtt.: Ef kjósandi, sem neytt hefir atkvæðisréttar síns utan kjörfundar, er staddur á kjörstað aukakjörfundardag, en ekki aðalkjördaginn, er hann þá skyldur til að tilkynna nærveru sína, og er atkvæðaseðill hans ógildur, ef nærvera hans sannast? Um þetta er ekkert ákveðið í brtt., en það þarf að ákveða. Slíkt ósamræmi milli gr. frv. getur valdið deilum og misskilningi. Eða ákvæði 107. gr„ þar sem lagt er svo fyrir, að þegar kjörfundi er lokið, skuli vafaseðlar látnir í sérstök umslög og þeim svo lokað. Nú vil ég spyrja: á að loka þessum umslögum að loknum aukakjörfundi, eða eiga þau að standa opin yfir nóttina til aðalkjörfundar? Þetta þarf einnig að ákveða um.

Ég hefi nú bent á ósamræmið milli þessara brtt. og nokkurra gr. frv., og ég hefi á sama hátt bent á, að þessi ákvæði geta orðið til þess að tefla öryggi kosninganna í tvísýnu, en það er alls ekki tilvinnandi fyrir þann lítilfjörlega aukna rétt, sem einstaka kjósanda kann að vera gefinn með þessari heimild til aukakjörfundar.

Hv. þm. Barð. var að fárast yfir því, að kjósendur í kaupstöðum væru stundum reknir eins og fé á kjörstaðinn. Mér virðist, að með þessum brtt. séu hv. flm. að stefna að því, að í sveitunum einnig verði menn reknir eins og fé á kjörstaðinn síðari kjördaginn.

Hv. þm. vildi byggja nauðsyn þessarar heimildar á því, að í þremur hreppum Barðastrandarsýslu væri svo erfitt um sókn á kjörstaði. Ég vil benda honum á, að skv. hans eigin till. þarf skriflega yfirlýsingu 1/3 kjósenda í viðkomandi hreppi til þess að hafa megi tvo kjördaga. Yrði nú ekki erfitt að ná til 1/3 hluta kjósenda til þess að láta þá skrifa undir? Ég held, að röksemdir hv. þm. rekist hver á aðra. Það mætti byrja með löngum fyrirvara, skýtur hv. þm. fram í. Já, hann virðist vilja hafa „smölunina“ sem lengsta. (BJ: Til undirskriftanna). Ætli það yrði nú ekki „agiterað“ um leið. Ég get fallizt á, að rétt sé að greiða fyrir kjósendunum, sem í strjálbýlinu búa, eftir því sem unnt er án þess að öryggi kosninganna stafi hætta af. Það höfum við líka gert með því að setja inn í 1., að það megi vera allt að fjórum kjördeildum í sama hreppi, og lengja kjörfundartímann upp í minnst 8 stundir. Þetta ætla ég, að nægi til þess að öllum, sem á annað borð eru svo heilir heilsu, að þeir geti sótt kjörfund, gefist tími til þess.

Hv. þm. talaði um, að menn í sveitum óskuðu eftir því að hafa tvo kjördaga. Það hafa engar óskir borizt þinginu um þetta. Það getur verið, að hvíslað hafi verið að sumum hv. þm. eða þeir fengið bréf þessa efnis, en þá væntanlega eftir pöntun. Ég hefi átt tal um þetta við marga, m. a. úr mínu kjördæmi. Og það hefir enginn talið nauðsyn á að taka upp þessa skipun, en flestir talið það töluvert hættulegt.

Ég vil nú spyrja hv. þm.: Ef þess er almennt krafizt, að hafðir verði tveir kjördagar, því hafa þeir hv. fhn. þá heimildina til þess svona þrönga? Því eru þeir að gera nauðsynlega skriflega yfirlýsingu 1/3 kjósenda? Því eru þeir að hafa nokkra heimild, því gera þeir það ekki að skyldu að hafa kjördagana tvo? Hv. þm. Barð. var að tala um, að við sjálfstæðismenn værum á móti þessu af því, að við vissum, að við hefðum ekki eins mikið fylgi í sveitunum eins og Framsfl. Ég mótmæli þessu sem gersamlegri staðleysu. Ég vil minna á, að við síðustu kosningar fékk Sjálfstfl. eins mörg atkv. í sveitakjördæmunum eins og Framsfl. á öllu landinu, og það mun einnig sýna sig við næstu kosningar, að hann hefir miklu fleiri atkv. í sveitunum. Sami hv. þm. var að tala um, að Framsfl. hefði tapað kjörfylgi vegna samvinnu við Sjálfstfl. Ég verð að segja það, að það kemur úr hörðustu átt, þegar þessi hv. þm. er að halda því fram, að Framsfl. hafi tapað kjörfylgi við síðustu kosningar vegna samvinnunnar við Sjálfstfl. um stjórn landsins. Kjörfylgi hans sjálfs í kjördæminu hefði þó ekki átt að þverra svo mjög sem raun varð á vegna sambræðslu hans við Sjálfstfl., því að hann hefir alla sína tíð frá upphafi hneigzt að jafnaðarmönnum; þó tapaði hv. þm. Barð. meira fylgi í kosningunum en nokkur annar frambjóðandi. Það munu því vissulega aðrar ástæður hafa verið fyrir hendi. Það mun vera æði erfitt að leiða rök að því, að Framsfl. hafi tapað svo við síðustu kosningar á því að vera í samvinnu við Sjálfstfl., einkum þar sem hin töpuðu atkv. Framsóknar fóru aðallega yfir til Sjálfstfl. Nei, ég er ákaflega hræddur um, að hér hafi verið önnur öfl að verki. Þessi staðhæfing hv. þm. Barð. kemur illa heim við þá staðreynd, að fyrrv. 2. þm. Rang., sem ekki var mjög litaður af sambræðslunni, féll í kosningunum fyrir sjálfst.manni. Í Dalasýslu tapaði frambjóðandi Framsfl., enda þótt fyrrv. þm. kjördæmisins teldi sig ekki í tengslum við Sjálfstfl. Sama má segja um kosningaúrslitin í Skagafirði, og fleiri dæmi mætti nefna, sem sýna, að þessi ályktun hv. þm. er fleipur eitt, sem hefir ekki við nokkur rök að styðjast.

Þessi hv. þm., sem talaði eins og hann væri staddur á kjósendafundi í Barðastrandarsýslu, án þess að búast við, að ræða hans yrði gagnrýnd, hélt því fram, að við sjálfst.menn værum að gera tilraun til að brjóta niður bændavaldið í landinu með andstöðu okkar gegn þessari brtt. á þskj. 76, og væri það í fullu samræmi við alla framkomu okkar í kjördæmamálinu frá upphafi. Ég verð nú að segja það þessum hv. þm. til hróss, að ég hygg, að hann hafi í sínum flokki stutt einna mest þetta skipulag, sem felst í hinni nýju stjskr., einkanlega framan af, þó hann tali svona digurbarkalega nú um niðurbrot á bændavaldinu. Hann hefði átt að sjá þetta fyrr og mæla þá þessum hreystiorðum. En hv. þm. getur ekki með rökum sýnt fram á, að í þessari brtt. felist nokkur réttarbót fyrir sveitirnar. Enda held ég, að það, sem fyrir hv. flm. vaki, sé aðeins það, að varpa fram kosningabombu, sem þeir halda að springi með þeim hvelli, að það rugli hugi kjósendanna. En ég get nú sagt hv. þm. það, að ég er ekki svo taugaveiklaður, að ég verði sérstaklega hræddur, þó að slíkar bombur springi. Enda er þessi bomba gerð úr hræsni og hégómaskap, og springur því varla með háum hvelli. En þó hún springi, þá mun hún helzt granda tilræðismönnunum sjálfum. Það er sannfæring mín, að hér sé um einberan hégómaskap að ræða; ég greiði því hiklaust atkv. á móti þessari brtt.

Ég þarf ekki að beina mörgum orðum til hv. 2. þm. N.-M.; það hefir af öðrum verið leitazt við að benda honum á, að hann fer algerlega villur vegar í kenningum sínum og till. Þessi mikli flokkur óháðra og óflokksbundinna kjósenda, sem hann virðist bera fyrir brjósti, verður ekkert verr settur um þátttöku í landslistakjöri til að ná uppbótarsætum en aðrir kjósendur í landinu, ef um raunverulegan flokk er að ræða. Hitt nær vitanlega ekki nokkurri átt hjá hv. þm., að telja alla þá kjósendur, sem kunna að vera óflokksbundnir, saman í einum flokki; þeir eru venjulega sinn af hverju sauðahúsi. Ákvörðun um skipun uppbótarsæta er ekki gerð til þess að koma utanflokkamönnum inn í þingið. Það stendur í stjskr., að með uppbótarsætum skuli jafna misræmið á milli þingflokkanna, þannig að þeir fái þingfulltrúa í hlutfalli við kjósendatölu sína við kosningar. Hv. þm. talaði mikið um, að það væri sízt æskilegt að láta flokksböndin binda sannfæringu manna heljartökum, og er ég honum sammála um það og hygg, að það sé bezt að fylgja sannfæringu sinni, þó að flokksböndin þrýsti að. Enda hefi ég það álit á hv. 2. þm. N.-M., að hann sé einn af þeim þm„ er sé annast um að fylgja sannfæringu sinni. En hinu má ekki gleyma, að þingræðisskipulagið er byggt á flokkum. Við sjáum það, að í Bretlandi, þar sem flokkaskipunin er ákveðnust og flokksböndin traustust, þar stendur þingræðið ákaflega föstum fótum. En í ýmsum öðrum löndum, þar sem flokkaskipunin hefir verið ógreinilegri og lausari, er þingræðið komið í ógöngur. Má þar t. d. nefna bæði Ítalíu og Þýzkaland, þar sem flokkaskipunin var losaraleg og ótraust áður en núv. einræðisstjórnir náðu þar völdum. í Frakklandi eru margir stjórnmálaflokkar, og ýmsir af þeim smáir. Stjórnin verður því jafnan að styðjast við fleiri flokka, sem eru að ýmsu leyti ósamstæðir; en það er aðalorsök þess, hvað stjórnarskipti eru þar tíð. Á Spáni er talið, að 93 flokkar keppi um þingsætin í þeim kosningum, sem nú standa yfir. Það er reynsla fyrir því, að þingræðinu stafar ætið hætta af, að þingflokkar séu margir. Þess vegna var það engin goðgá, þó að síðasta þing vildi láta kveða skýrt á um það, hvað væru flokkar, og þó það sé einnig talið nauðsynlegt að treysta skipulag þeirra og ákveða það það svo sem unnt er með þessum kosningalögum. Lýðræðið má hinsvegar fullkomlega tryggja með frjálslegu skipulagi innan flokkanna. Þó að þingflokkunum sé gefið vald til þess að hafa ákvarðanir um framboð o. fl., þá getur fullkomið lýðræði fengizt á þann hátt, ef flokkarnir eru á annað borð frjálslyndir og ef fullkomið tillit er tekið til óska manna í kjördæmunum um það, hverjir skuli vera þar í framboði.

Hv. 2. þm. N.-M. lét sér mjög annt um að fá, með forsetaleyfi, komið inn í þingtíðindin sönnun fyrir því, að ákvæði hinnar nýju stjskr. og 115. gr. þessa kosningalagafrv. stönguðust innbyrðis. og vék hann því til hæstv. forseta, hvort ekki bæri að víkja þessari gr. frá atkvgr. af þeim sökum. Ég vil nú taka mér sömu heimild og hv. þm. og fá það þingfest í ræðu minni í þingtíð., hvað það er, sem felst í orðum stjskr. og 115. gr. frv. í stjskr. 26. gr. c. segir svo:

„Heimilt er flokkum að hafa landslista í kjöri við almennar kosningar, enda greiði þá kjósendur atkvæði annaðhvort frambjóðanda í kjördæmi eða landslista“.

En í 115. gr. kosningalagafrv. stendur: „Nú hefir kjósanda orðið það á að kjósa bæði frambjóðanda eða frambjóðendur, eða lista flokks og jafnframt landslista hins sama flokks, og skal þá að vísu taka seðilinn gildan sem atkvæði greitt frambjóðanda eða frambjóðendum, eða í Reykjavík lista kjördæmis, en landslistann skal þá telja ókosinn.

Sama gildir, ef kjósandi í tvímenningskjördæmi, er kosið hefir frambjóðendur tveggja flokka, merkir jafnframt við landslista annarshvors flokksins“.

Stjórnarskrárgjafinn ætlast til þess samkv. tilgreindu ákvæði, að kjósendur hafi ekki tvöfaldan kosningarrétt; hann hefir viljað girða fyrir, að hægt væri að kjósa bæði frambjóðanda í héraði og síðan landslista annars flokks. Þetta sama hefir einnig vakað fyrir þeim, sem halda uppi svörum fyrir 115. gr. kosningalagafrv., hún fellur vel saman við ákvæði stjskr. Við þurfum ekki að krækja eftir neinni „lögfræðingasmugu“ til þess að samræma þetta tvennt; þar er vítt op, sem við hv. 2. þm. N.-M. getum báðir komizt í gegnum, meira að segja þó við gengjum hvor öðrum undir hönd.

Ég þarf ekki mörgu að svara hv. 1. þm. S.-M.; ég gerði það að mestu leyti um leið og ég svaraði hv. þm. Barð. En út af því, sem hv. þm. sagði um, að Sjálfstfl. beitti næstum því ofsóknum við kjósendur í kaupstöðunum til þess að leiða þá að kjörborðunum í kosningum, vil ég benda á, að ég sé ekki betur en að hann vilji með brtt. sinni um 2 kjördaga í sveitum beina þessum ofsóknum að kjósendum í sveitunum, þar sem ætlazt er til, að kjörfundur standi 2 daga í sveitum, en aðeins 1 dag í kaupstöðum. Að öðru leyti er þarflaust að svara glósum hv. þm. um, að Sjálfstfl. gangi rösklegar fram í því en aðrir flokkar að smala kjósendum við kosningar. Ég hygg, að allir stjórnmálaflokkar reyni að gera það, sem þeir geta, til þess að fá kjósendur sína til að mæta við kjörborðin. Ég get a. m. k. sagt hv. þm. það, að hans eigin flokkur (Framsfl.) gekk rösklegast fram í kjósendasmölun við kosningarnar á Snæfellsnesi í sumar, því að flokksmenn hans fengu bifreið úr Rvík til þess að flytja þar kjósendur sína á kjörstað.

Hv. þm. A.-Húnv. þarf ég engu að svara. Í hjarta mínu er ég samþykkur brtt. hans, en tel, að hún komi óréttlátlega niður, þar sem hún bitnar misjafnlega á þingmönnum, og nær því ekki fyllilega tilgangi sínum.