21.11.1933
Neðri deild: 15. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 145 í B-deild Alþingistíðinda. (154)
2. mál, kosningar til Alþingis
Vilmundur Jónsson:
Ég vil aðeins árétta og skýra nokkru nánar en hv. þm. Snæf. gerði það atriði, að ákvæði 115. gr. kosningalagafrv. komi ekki í bága við fyrirmæli stjskr. Ég hygg, að hv. 2. þm. N.-M. flaski á því að telja, að hvert það merki, sem kjósandi setur á kjörseðil, hljóti æfinlega að vera kjörmerki, er eigi að sýna, hvern hann vilji kjósa. En hér getur verið um tvennt að ræða, þó að oftast fari þetta saman. Samkvæmt fyrirmælum stjskr. má kjósandinn ekki kjósa bæði frambjóðanda eða frambjóðendur kjördæmisins og landslista. En hvernig á hann svo að kjósa? Hafi hann aðeins merkt við landslista einan, þá telst listinn kosinn og listanum atkvæðið. En hafi kjósandinn merkt við frambjóðanda á kjörseðli kjördæmisins og einnig sett merki á landslistann, þá telst hið síðara merkið ekki kjörmerki, heldur ógilt krot, jafnt og þó hann hefði krossað á borðið, sem hann kýs við, eða á þilið í kjörklefanum. Merkið við frambjóðandann er aftur á móti kjörmerki og hefir eitt gildi. (HStef: Seðillinn á þá að metast ógildur). Hann á að metast ógildur sem landskjörseðill, en fullgildur sem kjörseðill kjördæmisins, þannig að frambjóðandinn, sem merkt er við, telst kosinn og fær atkvæðið. Landslistinn telst aftur á móti ókosinn og er enginn blekktur, því að hver kjósandi á að vita þetta fyrirfram.
Ég hefi ekki getað sannfærzt af rökum hv. þm. Snæf. um, að sjálfsagt sé að hafa hreppstjóra og sýslumenn sjálfkjörna í kjörstjórn, auk þess sem mér þykir hann víkja þar frá sínum lýðræðiskenningum. Ef það er svo nauðsynlegt sem hv. þm. heldur fram, hvernig er þá hægt að komast af án þess í þeim kjördeildum og kjördæmum, þar sem ekki er völ á hreppstj., sýslumanni eða bæjarfógeta? Það hefir verið sagt, að ef hreppstjórar og sýslumenn væru ekki kosnir í kjörstjórnir af hlutaðeigandi aðilum, heldur sjálfkjörnir sem embættismenn, þá væri fengin trygging fyrir því, að þeir störfuðu óhlutdrægt og óháðir pólitískum flokkum. En á það má benda, að þeir hafa ekkert ríkari skyldu til þess en aðrir, sem skipaðir eru í kjörstjórnir. Kjörstjórnarmenn eiga allir að gæta slíkrar embættisskyldu, að viðlagðri refsingu, sem við það er miðuð. Hreppstjórar og sýslumenn hafa þar enga sérstöðu.
Og hvað hefir svo reynslan sýnt í þessum efnum? Það eru alkunn ýms dæmi þess, að hreppstjórar og sýslumenn hafa ekki reynzt hæfari né óhlutdrægari en aðrir í kjörstjórnarstörfum. Mig minnir, að hreppstjóri væri fyrir fáum missirum dæmdur í fangelsi fyrir þá verstu klæki, sem hér hafa verið framdir í sambandi við kosningar. Og hins er þó skemmra að minnast, að fyrir þessu þingi liggur kæra á hendur einum oddvita kjörstjórnar. Það er bæjarfógetinn í Hafnarfirði. Honum hefir orðið ýmislegt ólöglegt á við síðustu kosningar þar, sem ekki má henda kjörstjórnir, og eru allir þingflokkar sammála um það. — Þau dæmi hafa verið sögð til gamans, að reynzt hafi mjög erfitt að sannfæra einn virðulegan sýslumann og oddvita í yfirkjörstjórn, þegar atkvæðakassa skyldi senda til undirkjörstjórnar, að hann gæti ekki gert tvennt í senn, lokað lykilinn niður í kassann og sent hann með kassanum í umslagi fyrir undirkjörstjórnina til að opna með kassann. Í öðru lagi er það kunnugt, að einn valinkunnur hreppstjóri lánaði óviðkomandi manni öll utankjörfundarkjörgögn kjördeildar sinnar, og sá maður fór með þau út um hvippinn og hvappinn í atkvæðasmölun brjótandi allar reglur, sem um kosningar gilda. (PO: Hver var það? Það er réttast að nefna nöfnin). Mér er vel kunnugt um, að þetta átti sér stað, og ef hv. þm. er þægð í því, þá skal ég nefna honum nafnið einslega. Að lokum og enn á ný vil ég leggja áherzlu á að allir meðlimir yfir- og undirkjörstjórna verði kosnir með hlutfallskosningu.