18.11.1933
Efri deild: 13. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 194 í D-deild Alþingistíðinda. (1542)

35. mál, sundhöll í Reykjavík

Jónas Jónsson:

Ég vildi þá fyrst beina fyrirspurn til hv. 1. landsk., sem er form. þeirrar n., sem hefir haft þetta mál til meðferðar, og sem einnig er form. þess flokks, sem var nokkuð tregur til að styðja þetta mál, þegar það fyrst var borið fram. En ég vildi aðeins benda á það, að sá grundvöllur, sem málið var byggt 1928, var, að það þótti sanngirnismál, — líka af þeim flokki, sem ekki hafði mikið fylgi hér í Reykjavík —, að íþróttaskilyrði og heilsuskilyrði í sambandi við þessa byggingu yrðu notuð hér ekki síður en annarsstaðar. Nú var treglega tekið í þetta af ýmsum mönnum í flokki hv. 1. landsk. og okkur legið á hálsi í blöðum flokksins, að við fulltrúar sveitanna værum að leggja óþarfa byrði á landið vegna Rvíkur. Ég minnist nú ekki á þetta til þess að ýfa upp gamlar væringar, heldur af því, að frá sjónarmiði okkar, sem viljum, að málið gangi fram, þá er ég ekki viss um nema þessi till. frá n., sem eitt og annað mælir með, verði til þess, að málið strandi í Nd. Þess vegna vildi ég spyrja hv. 1. landsk., hvort hann geti tryggt það, að till. nái fram að ganga í Nd., ef þessi hækkun verður samþ. Till. er að formi til nokkuð nýtt í málinu, þar sem aftur á móti, eins og hæstv. ráðh. tók fram, till. um 100 þús. kr. framlagið er aðeins endurveiting og áframhald af því, sem ein fyrrv. stjórn gekk inn á.

Ég skil það vel, að hæstv. forsrh. líti öðruvísi á þetta eftir að til greina kemur aukning í þessu efni. En ég ætla þó ekki að fara sér staklega út í það, heldur aðeins skýra lítilsháttar frá því, að þegar þetta mál kom fyrst fram, þá var ekki til sú áætlun og teikning, sem að lokum var samþ. Þá var þetta álitinn mjög heiðarlegur styrkur til Rvíkur, þessar 100 þús. kr. En þá kom fram krafa frá íþróttamönnum bæjarins um það, að hafa þessa byggingu veglegri en upphaflega hafði verið hugsað. Þess vegna er ekkert, að ég hygg, um þetta ákveðið nema það, sem lögin segja. Landið leggur til þetta framlag með vissum skilyrðum, en bærinn á verkið og byggir sundhöllina, og það er á ýmsan hátt komið undir bænum, hvernig gengið er frá akkorðum og mörgu þesskonar, sem ég ætla ekki að fara neitt út í hér. Þess vegna held ég, að það sé ekki hægt, eins og hv. frsm. n. gerði, að halda því fram, að í raun og veru séu ráð gamlar skyldur frá 1928, sem bindi þingið nú. En á hinn bóginn ætla ég að greiða atkv. með þessari till., ef ég hefi von um, að það sé gott fyrir málið í sjálfu sér , og þá atkvgr. byggi ég á því, að það sé í sjálfu sér ekkert við það að athuga, þó Rvík fái hækkun í þessa byggingu eins og hvert annað kjördæmi á landinu. En ég álit, að n. hafi gert rétt í því að hald, ekki fram ýtrustu kröfu um helmingsframlag, af því að Rvík er auðugasta bæjarfélagið á landinu.

Ég lít svo á, að fyrir fjármálastjórn landsins sé þessi till. ekki svo hættuleg, af því að það er sennilegt, að verkið gangi ekki eins fljótt og búizt hafði verið við, og þess vegna kæmi þetta til að ná yfir lengri tíma. Það væri t. d. hægt að lengja frestinn um eitt ár. En þar sem borgarstjóri hefir upplýst, að til þessa verks séu farnar 300 þús. kr. og byggingin er undir skemmdum, þá finnst mér það æti að vera metnaðarmál fyrir bæinn og landið, að lokið sé við rétta verk eins fljótt og unnt er.

Að lokum vildi ég beina þeirri fyrirspurn til borgarstjórans, hv. 1. landsk., hvort hann vildi ekki, ef það gengi betur að loka málinu áfram, gera skriflega brtt. um, að í staðinn fyrir eitt ar komi 2 ár, ef fjármálastjórn landsins líkaði það betur.