09.12.1933
Sameinað þing: 14. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 568 í D-deild Alþingistíðinda. (1550)

84. mál, áfengismálið

Ólafur Thors:

Ég verð að fara fram á það við hæstv. forseta, að hann leyfi mér að gera grein fyrir atkv. mínu. Tel ég sennilegt, að svo muni fara, að fleiri hv. þm. æski þess sama.

Ég mótmæli þeim orðum í till. hv. 1. þm. Reykv., að sú leið, sem við flm. þáltill. viljum fara í þessu máli, sé ófær. Fordæmið, sem gefið er, er það, að þegar þjóðaratkv. hefir gengið um mál, og þegar sýnt er, að Alþingi vinnst ekki tími til að taka þjóðarviljann til greina, þá skori þingið á ríkisstj. að fullnægja þessum þjóðarvilja. Þetta er með öllu hættulaust fordæmi.

En af því að mér er kunnugt um, að ef till. hv. 1. þm. Reykv. verður felld, þá verður dagskrártill. hv. þm. N.-Ísf. samþ., en hana tel ég með öllu ótæka, og till. okkar um afnám bannsins með bráðabirgðalögum þar með felld, þá greiði ég atkv. með till. hv. 1. þm. Reykv., og mér er þetta ljúfara fyrir það, að hv. hm. Borgf. upplýsti við umr. í nótt, að flm. till. um þjóðaratkvæði á síðasta þingi hefðu beinlínis tekið það fram, að þeirra vilji væri sá, að málið kæmi ekki til kasta þingsins fyrr en ríkisstj. hefði undirbúið nýja löggjöf í samræmi við þjóðarviljann og lagt hana fyrir þingið, en þessu skilyrði upphafsmanna þjóðaratkvgr. hefir ekki verið fullnægt.

Með till. hv. 1. þm. Reykv. er fullnægt höfuðatriði þessa máls, að Alþingi viðurkenni skilyriðislaust, að fara beri eftir þjóðarviljanum og afnema bannið. Hvort það er gert nokkrum mánuðum fyrr eða síðar, skiptir að vísu máli, aðallega vegna þess, hversu erfitt mun reynast að halda uppi lögunum, en það skiptir ekki öllu máli. Með þessum formála segi ég já.