21.11.1933
Neðri deild: 15. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 150 í B-deild Alþingistíðinda. (156)
2. mál, kosningar til Alþingis
Frsm. (Eysteinn Jónsson):
Ég er víst búinn að tala mig dauðan í þessu máli, en mig langar þó til þess að gera örstutta aths., vegna þess fítonsanda, sem hleypur í sjálfstæðismenn út af till. minni og tveggja annara hv. þm., sem heimilar að hafa 2 kjördaga.
Ég verð að segja það, að einmitt þessar mótbárur sannfæra mig betur og betur um það, að með þessum till. erum við framsóknarmenn á réttri leið, og þessi sannfæring mín byggist á því, að aldrei hefir komizt fram hér á Alþingi nokkurt mál, sem hefir falið í sér umbætur fyrir sveitirnar, öðruvísi en með andstöðu Íhaldsfl. hér á þingi. Ég vil aðeins benda á í sambandi við umr. um þessa brtt., að það er engin tilviljun, hvernig tekið er í hana af sjálfstæðismönnum. Afstaða þeirra byggist á því, að í mörgum kjördæmum er svo ástatt, að nokkuð er af þorpum og nokkuð af sveitum, og alstaðar er það svo, að Framsfl. á fylgið í sveitunum, en Sjálfstfl. í þorpunum. Þess vegna er það, að þessir hv. þm. eru á móti till. Þeirra einu sigurvonir byggjast á
því, að þeir geti útilokað sveitafólkið frá því að greiða atkvæði. Það er af þessum sökum, sem hv. þm. Snæf. leggur sig fram til þess að finna agnúa á till„ en ekki vegna þess, að hún falli ekki inn í lögin; og ennfremur af því, að hann finnur, að till. er hættuleg hans flokki, þar sem hún veldur betri aðstöðu fyrir sveitafólkið til þess að sækja kjörfund.