06.12.1933
Neðri deild: 27. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 203 í D-deild Alþingistíðinda. (1560)
35. mál, sundhöll í Reykjavík
Fors.- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):
Ég var fylgjandi þessari till. eins og hún fyrst var borin fram í Ed. Þá var hún aðeins endurveiting á fjárhæð, sem ekki hafði verið greidd úr ríkissjóði, þó að í rauninni væri skylt að gera það á árinu 1931. Aftur á móti var í Ed. bætt inn í till. nýrri fjárveitingu, án þess að séð væri fyrir tilsvarandi tekjum. Ég legg áherzlu á það, að seinni hluti till. komi ekki til samþ. fyrr en á næsta þingi. Í sjálfu sér hefi ég ekki lagt á móti seinni hluta till. að efninu til, en eingöngu lagt áherzlu á, að þessi útgjöld verði ekki lögð á ríkissjóð án tilsvarandi tekjuaukningar.
Mér hefir verið sagt, að það muni vera hægt að gera sundhöllina vel nothæfa fyrir rúmar 100 hús. kr., þó að hún verði ekki alveg fullgerð fyrir þetta verð. Ég álít þess vegna, að það muni verða til mikils gagns fyrir bæinn, þó að aðeins verði framkvæmt það, sem fyrri hluti till. fer fram á.
Af þeim ástæðum, sem ég hefi nú greint, og sömuleiðis hv. 2. þm. Skagf., þá vildi ég óska þess, að till. yrði borin upp í tvennu lagi.