06.12.1933
Neðri deild: 27. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 204 í D-deild Alþingistíðinda. (1562)
35. mál, sundhöll í Reykjavík
Jón Pálmason:
Þetta sundhallarmál er að verða eitt af þeim málum hér á þinginu, sem kalla má vandræðamál, og er það vegna þess, að hér hefir verið ráðizt í að framkvæma verk á grundvelli, sem ekki hefir verið réttilega byggður. Upphaflega var gert ráð fyrir, að kostnaðurinn við þessa byggingu myndi verða 200 þús. kr. og að ríkissjóður legði fram helming hans. Nú er það upplýst, að kostnaðurinn er kominn hátt á þriðja hundrað þúsund, og að bæjarsjóður hefir lagt hann allan fram, en ríkisstj. hefir, af þeirri orsök, að verkinu var ekki lokið svo fljótt sem tilskilið var, ekki lagt fram sitt tillag. Eins og sakir standa finnst mér alveg óviðeigandi að afgr. þetta mál á þessu aukaþingi, sem auk þess hefir ekki fjárveitingavald fram yfir það, að skora á stj. að nota heimildir, sem aður hafa verið samþ. á Alþingi.
Ég hefi talað um þetta mál við einn af beztu íþróttamönnum þessa bæjar. Hann áleit, að þó að sundhallarbyggingunni yrði lokið, þá yrði þetta samt mikið vandamál, vegna þess, að rekstrarkostnaðurinn mundi verða svo hár. Taldi hann jafnvel, að kostnaðurinn myndi verða svo hár, að vafasamt yrði, hvort þetta fyrirtæki myndi ná tilgangi sínum. Ég held því, að ef ríkissjóður á að leggja fram þessar 100 þús. kr., sem er skylt og eðlilegt að leggja fram til sundmenntar hér í höfuðstað landsins, þá verði þeim eins vel varið til að endurbæta sundlaugina, sem er fyrir hér í Rvík, eins og að leggja þær í þetta fyrirtæki. Sem sagt lít ég svo á, að þetta mál sé á því stigi, að þar sé ekki fyrir hendi svo ýtarleg rannsókn, að rétt sé að taka fasta ákvörðun um það. Ég mun því við þessa atkvgr. greiða atkv. á móti þessari till. á þeim grundvelli, að hér liggi ekki allt svo ljóst fyrir sem vera þótti, og allra sízt mun ég ljá atkv. mitt með till., sem gerir ráð fyrir hærri fjárhæð en upphaflega var gert ráð fyrir í þeim l., sem um það fjalla.