24.11.1933
Neðri deild: 18. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 577 í D-deild Alþingistíðinda. (1574)

58. mál, launakjör

Fors.- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):

Ég mun ekki hafa langt mál um þessa till. En það hefir komið fram í umr., að stj. hafi á síðasta þingi tekið á mót till. um að lækka laun starfsmanna ríkisins. Það er rétt, að samþ. var á síðasta þingi ályktun til stj. um, að hún léti endurskoða launalöggjöfina, samræma launakjör starfsmanna ríkisins og þessháttar.

En strax upp úr kosningunum varð stj. það ljóst, að hún væri eigi svo föst í sessi, að vert væri, að hún undirbyggi undir næsta reglulegt Alþ. svo stórt og umfangsmikið mál sem hér er um að ræða. Og ein höfuðkrafan, sem barst frá Sjálfstfl. og Alþfl., var sú, að öll stærri mál væru látin bíða fram yfir kosningarnar til reglulegs Alþ. Þess vegna hefir hv. tillögumaður ekki tilefni til að áfellast stj. fyrir, að hún leggur ekki fyrir þetta þing till. um stórar breytingar. Stj. ætlast einmitt til, að sú stj., sem undirbýr mál undir næsta reglulegt Alþ., hver sem hún verður, skipi menn til að athuga þetta mál og gera till. til úrlausnar. Nú hefir komið fram till. um að setja fimm manna n. í þessu skyni, og get ég fallizt á, að það sé rétt og fullt svo gott, að þingið sjálft eða flokkarnir skipi hana, en ekki stj.

Að fengnum þessum upplýsingum hygg ég, að hv. flm. skilji, hvers vegna stj. skipaði ekki að svo stöddu n. til að fjalla um launamálin. Enda er nægur tími til stefnu, þar sem útlit er fyrir, að reglulegt Alþ. komi ekki saman fyrr en í september næsta ár. Fer það þó nokkuð eftir úrslitum kosninganna. Vil ég beina til þeirra manna, sem ekki hafa viljað, að þetta þing tæki til meðferðar önnur mál en þau, sem af stjskr.breyt. leiðir, að þeir láti þetta mál bíða hins nýkosna þings, sem ráða á málum þjóðarinnar um næstu fjögur ár. Það er ekki eðlilegt, að nú séu til nokkurra mánaða gerðar ráðstafanir til breyt. á þeim reglum, sem gilt hafa án verulegra breyt. í 14 til 15 ár. Sjálfstflmenn veit ég, að muni skilja þetta, þar sem það er samkv. kröfu, sem fyrst kom fram frá Sjálfstfl.

Út af því, sem sagt var um tilmæli frá forsrh., sem vikju í öfuga átt við hina réttu stefnu, en þar mun átt við till. mína um að framlengja dýrtíðaruppbót embættis- og starfsmanna ríkisins a. m. k. fram yfir reglulegt Alþ., þá vil ég benda hv. aðalflm. á, að sú till. mín er í fullu samræmi við vilja allra fulltrúa Sjálfstfl. í Ed. í fyrra. Sýnir það, að ég er a. m. k. í góðum hóp í því efni. Nú er ekki tilgangur minn að halda því fram, að ég sé í góðu samræmi við Sjálfstfl. yfirleitt, en þegar ég er ásakaður fyrir það af sjálfstæðismanni, að till. mín um dýrtíðaruppbót gangi í öfuga átt við „hina réttu stefnu“, og einnig fyrir það, að ég tel rétt að leggja ekki fyrir þetta þing neinar mikilsverðar ákvarðanir um launamálin, þá finnst mér rétt að benda á, að um þessi atriði bæði er ég í samræmi við það, sem frá Sjálfstfl. hefir komið fram um þetta efni.

Ég mun svo ekki fara lengra út í þessa sálma. En mér kom á óvart að heyra talað um „nýríka“ launamenn meðal starfsmanna ríkisins. Ég þekki engan, sem safnað hefir fé af launum sínum, svo hann geti kallazt nýríkur. Að vísu er það svo, að þeir, sem föst laun hafa, hafa margir sætt öðrum og betri kjörum síðustu árin heldur en þeir, sem lifa af framleiðslu. En það mun alltaf verða svo að vera, að föst laun séu ofan við lágmark afurðaverðs og neðan við hámark þess.

Mér heyrist á barsmíðunum í borðin að það muni vera fullmikils krafizt að ætlazt til, að menn geymi sér fram yfir kosningar þau mál, sem menn vilja helzt nota fyrir kosningarnar.