24.11.1933
Neðri deild: 18. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 579 í D-deild Alþingistíðinda. (1575)
58. mál, launakjör
Thor Thors:
Mér skildist ræða hæstv. fjmrh. eiga við þáltill. á þskj. 116, sem búið er að taka út af dagskrá. En út af orðum hans, þar sem hann var að stæra sig af því að vera í samræmi við Sjálfstfl., vil ég segja það, að ég tel fara vel á því, að þessi hæstv. ráðh. stæri sig af slíku, og óska, að framhald mætti verða á því.
Út af þeirri till., sem hér liggur fyrir á þskj. 105, er það að segja, að mér finnst ekki ná nokkurri átt að greiða atkv. um hana fyrr en víst er orðið, hvernig fer um dýrtíðaruppbótina. Það mál liggur nú fyrir hv. fjhn. þessarar d. þessi till. byggist á því, hvaða meðferð till. um framlenging dýrtíðaruppbótarinnar fær hér á þingi, og greiða menn því atkv. út í loftið, ef hún kemur til atkv. áður en menn vita, hvernig dýrtíðaruppbótinni reiðir af. Vil ég því mælast til þess við hæstv. forseta, að málið verði tekið þegar út af dagskrá og vísað til hv. fjhn., svo hv. þdm. viti, hvernig þessi mál í heild horfa við, áður en til þess kemur, að þeir þurfa að greiða atkv. um þessa till.