06.12.1933
Neðri deild: 27. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 209 í D-deild Alþingistíðinda. (1576)
35. mál, sundhöll í Reykjavík
Jón Pálmason:
Ég játa að þetta sé þýðingarmikið mál, en eftir þeim upplýsingum, sem ég hefi fengið, þá er það byggt á skökkum grundvelli.
Hv. þm. Str. sagði, að það yrði bæði að endurbæta gömlu laugina og fullgera sundhöllina. Það má vel vera, að þetta væri það æskilegasta, en það má því aðeins gera það, að það hafi ekki í för með sér óhæfilegan kostnað fyrir bæjarfélagið og ríkissjóð.
Það var ráðgert upphaflega, að ríkið legði fram helming kostnaðar, sem atti að vera 100 þús. kr., og sundhöllin átti að vera fullgerð 1930. Nú er komið að árslokum 1933, og ríkið hefir ekki enn lagt fram þessar 100 þús., en aftur á móti hefir bærinn lagt fram 280 þús. Nú veltur mest á því, hvort þetta fyrirtæki er reist á heilbrigðum grunni. Ef svo er, þá er ekki áhorfsmál að greiða þessar 100 þús., en þar sem ég álít, eftir þeim upplýsingum, sem ég hefi fengið, að svo sé ekki, þá get ég ekki talið rétt að samþ. till.
Það er alveg rétt, sem hv. 2. þm. N.-M tók fram, að hér eru allar aðstæður betri en út um land. Hér er saman komið svo mikið fjölmenni og fjármagn, að það er ekki rétt að heimta sömu hlutföll í framlögum ríkissjóðs hér eins og úti um land. Það, sem hér er um að ræða, er þetta: Er ekki betra að verja þessum 100 þús. til endurbóta á lauginni, þessari sjálfgerðu sundhöll, heldur en að kasta þeim í fyrirtæki, sem er efasamt? Hv. þm. Str. segir, að það eigi að gera hvorttveggja, endurbæta sundlaugina og veita 200 þús. til sundhallarinnar. En hvað kostar það mikið? Hann hefir engar upplýsingar gefið um það, hversu mikilla umbóta sundlaugarnar þurfa við til þess að fullnægja kröfunum, og ég er svo ófróður, að ég veit það ekki.
Ég hefi svo ekki fleiri orð um þetta, en eins og þessi till. liggur nú fyrir get ég ekki léð henni mitt atkv.