24.11.1933
Neðri deild: 18. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 580 í D-deild Alþingistíðinda. (1579)

58. mál, launakjör

Pétur Ottesen:

Hv. þm. Snæf. hefir nú raunar svarað hæstv. fjmrh. því, sem þarf, en af því hæstv. ráðh. fór út úr d. þegar hv. þm. fór að tala, en er nú kominn aftur, því vil ég skjóta því til hans, að það er vorkunnarmál, þó hann blandaði hér algerlega saman þeirri till., sem hér liggur fyrir nú, og þeirri, sem var á dagskrá næst á undan. Í þessari till. felst ekkert annað en það, að hæstv. ríkisstj. noti þá aðstöðu, sem hún hefir, nú upp úr nýárinu til þess að færa laun starfsmannanna við hinar einstöku ríkisstofnanir hér í Rvík til samræmis við laun þeirra manna, sem taka laun eftir launalögunum. Vitanlega er hér um mikinn mismun að ræða á launagreiðslum samkv. launalögunum yfirleitt og launagreiðslum utan þeirra, eins og þær hafa verið ákveðnar í hvert skipti af ríkisstj. á undanförnum árum. Í till. felst ekkert annað en það, að þegar útrunnir eru þeir samningar, sem gilda um þessar launagreiðslur, þá noti stj. tækifærið til að koma á meiru samræmi í þessum hlutum. Að vísu er drepið á það í till., að ósamræmið verði ennþá meira, þar sem lögum samkv. fellur niður dýrtíðaruppbót af launum embættis- og starfsmanna ríkisins um næstu áramót. Ég man ekki, hvort till. um framlengingu á dýrtíðaruppbótinni var komin fram þegar við bárum þessa till. fram. Hún er byggð á því ástandi, sem lög eru nú fyrir, að dýrtíðaruppbótin falli niður; á öðru var ekki hægt að byggja. Þegar það bætist við allt hað ósamræmi, sem fyrir er, verður ósamræmið vitanlega enn meira en áður. hér er eiginlega aðeins um bráðabirgðaráðstöfun að ræða, því ég geri ráð fyrir, að sú till., sem áðan var vísað til fjhn., um að taka launamálin í heild til athugunar, gangi áfram og nái samþ. Okkar till. á að taka til þess millibilsástands, sem verður þar til Alþ. hefir endanlega gengið frá nýrri löggjöf um þetta efni. Hæstv. forsrh. talaði um, að samkomulag væri milli flokka, a. m. k. Sjálfstfl. og Framsfl., um það, að láta dýrtíðaruppbótina, og að mér skildist ástandið í launamálunum yfirleitt, haldast fram yfir næstu kosningar. Þetta er alveg nýtt fyrir mér. Ég hefi ekki heyrt á slíkt minnzt innan míns flokks, og ef um eitthvert samkomulag er að ræða um þetta efni, en því trúi ég ekki að óreyndu, þá er það mér óafvitandi.

Ég hefi nú skýrt nokkuð, hvað þessi þáltill. snýst um. Till., sem á dagskrá var næst á undan, er vitanlega miklu víðtækari.