24.11.1933
Neðri deild: 18. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 582 í D-deild Alþingistíðinda. (1582)
58. mál, launakjör
Fors.- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):
Hv. þm. Borgf. sagði, að ég hefði blandað saman tveimur till. Ég gerði það vegna þess, að till., sem hér liggur fyrir, um lækkun launa við ríkisstofnanir, er sett í samband við það, að dýrtíðaruppbót embættismanna falli niður frá næstu áramótum. Till. blandar þessu þannig saman sjálf. Ég skal játa, að ef dýrtíðaruppbótin er látin falla niður um næstu aramot, þá skapar það svo mikið ósamræmi milli þeirra, sem laun taka samkv. launalögunum, og hinna, sem laun fá eftir samningi við stofnanirnar, að það væri ótækt. En hitt veit ég líka, að niðurfelling dýrtíðaruppbótar af hinum lægri launum, svo sem launum póstmanna, símamanna, kennara og presta, mundi gera mörgum fjölskyldum í þessum stéttum lífið óbærilegt. Mér virðist, að þegar talað hefir verið um launahæð almennt, þá hafi helzt verið búizt við sparnaði, sem um munaði, við það að geta klipið af launum þessara fjölmennu stétta. Hitt er allt annað mál, eins og hv. þm. A.-Húnv. benti á, að lækka hæstu launin. Það væri mjög einfaldur hlutur að bera fram ákveðna till. um það efni, hott enginn maður hafi gert það þau ár, sem ég hefi setið á þingi. Hér er varla um fleiri en 8 til 12 menn að ræða, bankastjóra og aðra slíka. Því ég get sagt hv. þm. það, að þeir, sem hæstir eru í launalögunum, eru þó svo lágt launaðir, að tæplega er forsvaranlegt að launa ekki mönnum í svo ábyrgðarmiklum stöðum betur. Það væri ofur auðvelt að taka þá fáu menn út úr, sem sitja á „gullhaugnum“, og gera beina till. um að lækka laun þeirra. En slíkar till. hefi ég aldrei séð. Og það er af þessari eðlilegu ástæðu, þó það sé einlægni fyrir sumum, sem eru þessum málum fremur ókunnugir, að mig grunar, að fyrir flestum sé allt þetta launatal fyrst og fremst kosningabeita. Þegar nú tvennar kosningar fara fram með stuttu millibili, er við því að búast, að með meira móti sé um þetta talað. En það verður ávallt minna úr efndunum heldur en gefið er í skyn á þingmálafundum, því möguleikarnir á þessu sviði eru ekki eins miklir eins og þægilegt þykir stundum að gefa hv. kjósendum hugmynd um.
Svona er það, að mörgum hinna lægst launuðu mundi verða það óbærilegt, ef dýrtíðaruppbótin felli niður. Ég get því ekki fallizt á, að það sé lagt til grundvallar launagreiðslum við aðrar stofnanir, því þó einhverjir kveljist, er engu bættara þó aðrir kveljist líka. Ég vil heldur, að einhverjum geti liðið vel, heldur en að allir kveljist. En helzt vil ég, að hvorttveggja sé látið haldast að svo stöddu, laun starfsmanna við ríkisstofnanirnar og dýrtíðaruppbót embættismanna, og skipuð verði n. með fulltrúum allra flokka til að búa málið undir næsta þing. Séu þeir tveir hv. þm., sem hér hafa talað fyrir till., í fullu samræmi við vilja síns flokks, býst ég við, að svo duglegir menn hafi góð skilyrði til að komast í þá n. og ráða stefnu síns flokks í málinu. Slík n., sem athugaði þessa hluti gaumgæfilega, getur komizt að einhverri niðurstöðu, sem vit er í. Það er ómótmælanlegt, að þegar á að skipa slíka n., þá eiga menn að láta sér nægja að bíða þangað til þeim störfum er lokið, og sérstaklega þegar kosningar standa fyrir dyrum, sem eiga að ráða úrslitum um öll stærri mál.
Það var misskilningur á mínum orðum, að um þetta væri samkomulag milli Framsfl. og Sjálfstfl. Ég sagði, að um hað ætti að vera samkomulag allra flokka að fresta launamálunum. En samkomulagið hefir ekki verið betra en það í þessu efni, að margir mínir flokksmenn í Ed. fylgdu málinu á síðasta þingi á líkan hátt og hv. þm. A.-Húnv. hefir gert nú. Vegna þessara launalækkunarkrafna hefði því ekki þurft að verða þingmannaskipti í kjördæminu. Annaðhvort er hér um kosningamál að ræða, sem menn vilja ógjarnan missa af á þessum viðkvæmu tímum, þegar allt nötrar og skelfur, eða þá að menn geti sætt sig við biðina þar til rannsókn er lokið.