22.11.1933
Neðri deild: 16. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 153 í B-deild Alþingistíðinda. (159)

2. mál, kosningar til Alþingis

Forseti (JörB):

Áður en gengið verður til atkv. vil ég svara fyrirspurn hv. 2. þm. N.-M. út af ákvæðum 1. gr. c. í frv. til stjórnarskipunarlaga, þar sem stendur: „... Heimilt er flokkum að hafa landslista í kjöri við almennar kosningar, enda greiði þá kjósendur atkvæði annaðhvort frambjóðanda í kjördæmi eða landslista“, og út af ákvæði 115. gr. þess frv., sem hér liggur fyrir til atkvgr., þar sem svo er komizt að orði: „Nú hefir kjósanda orðið það á að kjósa bæði frambjóðanda eða frambjóðendur eða lista flokks og jafnframt landslista hins sama flokks, og skal þá taka seðilinn gildan sem atkvæði greitt frambjóðanda eða frambjóðendum eða í Reykjavík lista kjördæmisins, en landslistann skal þá telja ókosinn“.

Hv. þm. lét í ljós þá skoðun, að nærri stappaði, að 115. gr. kosningalagafrv. bryti í bága við ákvæði 1. gr. c. í frv. til stjórnskipunarlaga. Hv. 2. þm. N.-M. gat þess jafnframt, að ekki væri hægt að vísa þessari grein frá, þar sem frv. til stjórnskipunarlaga hefir enn ekki verið samþ., og þetta ákvæði bryti ekki í bága við núgildandi stjórnskipunarlög. En þar sem vitað er, að þetta frv. verður bráðum að lögum, vildi hann vita, hvort þetta ákvæði bryti ekki í bága við það. Nú hefir frsm. n., hv. þm. Snæf., gert allýtarlega grein fyrir skilningi n. á þessu atriði, og get ég vísað til þess, og eins til þess, er annar hv. nm. sagði um málið.

Mér virðast ákvæði 115. gr. kosningalagafrv. um, að atkvæði, sem kjósandi greiðir bæði frambjóðanda eða lista flokks í kjördæmi og landslista, skuli ekki metið ógilt, heldur kjörseðillinn tekinn gildur sem atkvæði í fyrra tilfellinu, en merkingin við landslistann höfð að engu, ekki ríða í bága við ákvæði c-liðar 1. gr. stjskrfrv., um að kjósendur skuli greiða atkv. annaðhvort frambjóðanda í kjördæmi eða landslista. Úr því að ekki er tekin gild nema önnur atkvæðagreiðslan, þegar slíkt kemur fyrir, virðist mér fullnægt umræddu stjskr.ákvæði, en að á kosningalagaákvæðið beri að líta sem framkvæmdaratriði. Að öðru leyti skírskota ég til skýringa hv. þm. Snæf. og hv. þm. N.-Ísf. á þessu atriði.

Ég vænti þess, að hv. þdm. greiði rösklega atkv., þar sem atkvgr. verður mjög flókin og margar till., sem grípa hver inn í aðra.