05.12.1933
Neðri deild: 26. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 588 í D-deild Alþingistíðinda. (1592)

58. mál, launakjör

Fors.- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):

Það liggur í hlutarins eðli, að ef skipuð verður n. til þess að athuga launamál ríkisins og gera till. um breyt. á þeim fyrir næsta þing, sem verður væntanlega kallað saman á síðari helming næsta árs, að stj. mun ekki gera neinar kákbreytingar til bráðabirgða á launakjörum starfsmanna ríkisins. Það hefir verið beðið annan eins tíma og nokkra mánuði eftir úrslitum slíkra mála sem þetta er, eins og þótt beðið verði eftir fullnaðarrannsókn í málinu, og kákbreytingar í þessu efni munu ekki að neinu gagni koma til langframa.