05.12.1933
Neðri deild: 26. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 595 í D-deild Alþingistíðinda. (1601)

58. mál, launakjör

Jón Pálmason:

Ég vænti þess, að hæstv. forseti verði þolinmóður, þó að ég segi nokkur orð, þar sem ég er 1. flm. þessarar till. (Forseti: Aðeins til að bera af sér sakir). Ekki er nú um sakirnar að ræða. En fáein orð þurfti ég að segja við hæstv. fors.- og fjmrh., og það fyrst, að hann vék ofurlítið til ræðu minni. Hann kvað mig hafa talið upp vissa launamenn og kallað hálaunamenn og slegið föstu, að á öllum slíkum væri hægt að lækka. Þetta gerði ég ekki. Hann hélt fram, að 10 þús. kr. væru hálaun, og ennfremur, að hálaunamenn við bankastjórn og ríkisstofnanir sen ekki nema tíu eða tólf. Ég hygg, að það sé nú hægt að lækka á öllum slíkum hálaunamönnum að talsverðum mun. Það kann að vera, að ekki sé unnt að lækka á dómsforseta hæstaréttar, en á hæstaréttardómara minntist ég heldur ekki einu orði.

Þá gekk hæstv. ráðh. inn á, á rétt væri, að skrifstofustjóri í stjórnarráðinu hefði þús. kr. hærri laun en lög standa til. Taldi hann það sanngjarnt, af því að hann var í hærra embætti áður, sem hann var latinn geyma fyrir annan mann.

Viðvíkjandi forstjóra tóbakseinkasölunnar tók hann fram, að ekki væri hægt að fá jafnhæfan mann fyrir lægri laun en hann hefir, sem eru a. m. k. 12 þús. kr. Þó að ég þekki ekki, hvílíkur afburðamaður forstjórinn kann að vera, þá verð ég að segja, að mér þykir þetta vera undarleg staðhæfing.

Mitt atkv. lagði ég á móti till. um að athuga launakjör hjá bönkunum eingöngu af þeirri ástæðu, að ég lít svo á, að það felist í till. þeirri, sem samþ. var á þinginu, og að það sé innan verkahrings viðkomandi nefndar að athuga launakjör hjá bönkunum, sem að sjálfsögðu er þörf á.

Ég gerði þá fyrirspurn um daginn og ítrekaði þá, og vil enn gera hér með, að hve miklu leyti samningar eru því til fyrirstöðu, að hér sé hægt að gera breytingar á. Það er það stóra atriði í sambandi við þessa till., að að svo miklu leyti sem samningar eru til fyrirstöðu, að segja þeim upp, svo að þeir verði ekki til hömlunar eitt árið enn. Og sú n., sem gert er ráð fyrir að kjósa, þarf að hafa lokið störfum fyrir næsta þing, sem síðan gengi að því að setja nýtt kerfi.

Ég býst við, að hæstv. forseta muni þykja nóg komið. Aðeins vil ég taka fram út af orðum hv. frsm., að till. væri naumast þörf, þar sem ekki er nema um hluta úr ári að ræða, að ég vil láta það koma fram, hvort það sé vilji þingsins, að lagfært verði á þessu sviði það, sem unnt er að lagfæra án nýrrar loggjafar. Mér sýnast horfur á því, að næsta lítill sé vilji hæstv. fjmrh. til þessara endurbóta, ef ekki koma áskoranir frá Alþingi sjálfu.