27.11.1933
Efri deild: 20. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 597 í D-deild Alþingistíðinda. (1613)

55. mál, meðgjöf með fávitum

Flm. (Guðrún Lárusdóttir):

Um málefni fávita hefir verið rætt á þremur undanförnum þingum, og þótt þær umr. hafi ekki borið þann árangur, sem ég hefði óskað, þá skal ekki sakazt um það nú, og sízt, ef þessi till. mín nær fram að ganga, því ég tel, að heimild sú, sem hún fer fram á, sé spor í rétta átt. Það er nú komið svo, að það er að rísa af grunni hús, þar sem fávitum er fyrirhuguð víst. Það og fleira þessu viðvíkjandi er tekið fram í grg. till., og munu fáir mæla, að þetta sé óþörf stofnun. Fávitar eru fullmargir á landi voru, og alstaðar byrði heimila sinna. Ég veit það, að öll þau heimili, sem hafa slíka aumingja, mundu kjósa þeim dvalarstað þar, sem þeim gæti liðið vel og allt væri sniðið við þarfir þeirra. Mér verður það minnisstætt, að ég gisti einu sinni á efnuðu sveitaheimili. Áður en ég gekk til svefns, sagði húsmóðirin mér, að ég skyldi ekki láta mér verða illa við, þó að ég heyrði óviðfelldin hljóð fram eftir nóttunni, því að þar væri aumingi, sem hefði það til að fara að hljóða, þegar aðrir væru gengnir til náða. Það er augljósara en frá þurfi að segja, hvað æskilegt er að hægt sé að koma slíkum aumingjum þar fyrir, sem þeir angra enga með óróaköstum sínum, og þar sem þannig er að þeim búið, að hið ömurlega ástand þeirra valdi sem minnstum truflunum bæði fyrir sjálfa þá og þá, sem með þeim dveljast. En slíkt getur tæplega orðið nema í hælum, þar sem allt er sniðið og öllu er hagað við þeirra hæfi og að þeirra þörfum.

Ég kom að Sólheimum í sumar sem leið. Þá var verið að enda við að byggja fávitahælið, og ég verð að segja það, að mér fannst það merkisstund í lífi mínu, að standa þarna hjá því húsi, sem var ætlað þessum vesalingum, sem ég hafði verið að reyna til að bera fram hér á Alþingi. Ég tók með mér frá Sólheimum nokkrar myndir af barnahælinu þar, ef hv. þm. hefðu gaman af að líta á þær.

Þegar ég stóð þarna hjá þessu húsi, varð mér á að hugsa til þeirra mörgu, sem ég þóttist vita, að ættu örðugt með að njóta dvalar þar sökum kostnaðarins. Meðlagið verður 80 til 100 kr. á mann á man., eftir því hvernig ásigkomulag þeirra er. Þeir eru mjög misjafnlega erfiðir viðfangs.

Húsið, sem þeir eiga að búa í, er tvílyft, og eiga að verða í því tvær deildir og hvor þeirra út af fyrir sig. Önnur er ætluð fyrir pilta, en þó ekki eldri en 15 ára, og hin deildin á að vera fyrir stúlkur á öllum aldri. Það er ekki ætlazt til, að nokkur samgangur sé á milli deildanna.

Ég geri ráð fyrir því, að vinnustofa verði höfð þarna fyrir þá, sem geta numið einhverja handavinnu, því að í öllum stofnunum fyrir fólk eins og þetta, hvar sem er í heiminum, er lögð rík áherzla á vinnu. Vinnan er álitin heppilegasta menningarmeðalið fyrir þetta fólk, og sérstök áherzla er lögð á handavinnu og garðrækt. Annað nám kemur tæplega til greina. Nú vill svo vel til, að á Sólheimum eru mjög góð skilyrði til garðræktar. Þar eru heitir hverir, og er hverskyns garðrækt mjög auðveld þar. Undanfarin sumur hefir fólkið á Sólheimum neytt grænmetis á hverjum degi frá því mjög snemma sumars. Fyrir utan venjulegar grænmetistegundir er hægt að rækta þar kál af öllum tegundum. Það þarf ekki að lýsa því, hve þessi fæða er holl öllum, ekki sízt börnum, og rannsóknir hafa leitt það í ljós, að grænmeti er sérstaklega holl fæða fyrir fávita, og miklu hollari en kjöt og annar þungur matur. Það leiðir því af sjálfu sér, að þessi staður, sem er svona vel fallinn til garðræktar, er mjög heppilegur fyrir þetta fólk, sem þar að auki er hugsað til, að hafi garðyrkju með höndum.

Landrými er gott í Sólheimum og þar er mjög grösugt. Má því hafa þar allmikinn heyskap og reka búskap með alifuglarækt, kúm og kindum, og að öllu þessu má láta þá fávita starfa eitthvað, undir góðri stjórn og eftirliti, sem eru ekki á allra lakasta stigi. Því hefir verið veitt eftirtekt með þetta fólk, sem hefir mjög takmarkaða greind á öllum sviðum, að það virðist hafa það sameiginlegt að vera mjög gott við dýr. — Með þessum orðum mínum hefi ég viljað mæla með Sólheimum sem mjög heppilegum stað til þessarar starfsemi.

Eins og áður er tekið fram, þá er alstaðar á fávitahælum lögð mikil áherzla á vinnu og tilsögn í handavinnu. Það er beinlínis undravert, hve snotur handavinna þeirra getur verið. Ég gæti sýnt hv. þdm. sýnishorn af handavinnu frá nokkrum hælum í nágrannalöndum okkar, einkum Svíþjóð. Hún sýnir það, að þessum aumingjum er ekki alls varnað og að þeir geta haft laglegt handbragð, ef við þá er lögð rækt. Þessi handavinna verður til sýnis í einum glugga Vöruhússins nú einhvern næstu daga. Mér finnst það vel við eigandi; að mönnum gefist kostur á að sjá vinnu þessa fólks um sama leyti og mál þeirra er horið fram hér á löggjafarþingi þjóðarinnar.

Ég verð að segja það, að eins og mér þótti mikilsvert að sjá þetta fyrsta fávitahæli rísa hér af grunni, þá hlaut ég jafnhliða að hugsa til þess, að sjálfsagt yrðu þeir of margir, aumingjarnir, sem sökum efnaskorts yrðu útilokaðir frá að njóta þar dvalar. Opinberar skýrslur telja fávita um 200 á öllu landinu, en óvíst er, að öll kurl komi þar til grafar. Talið er í skýrslunum, að flestum af þessum fávitum líði sæmilega, þó með 1 til 2 undantekningum. Með leyfi hæstv. forseta ætla ég að lesa hér upp úr heilbrigðistíðindum landlæknis fyrir 1931. Þar segir svo um þessa menn:

„Hér var læknum gert að skrá þá, sem væru svo fávita frá fæðingu, að þeir væru líklegir til að verða sífelldlega lítt eða ekki sjálfbjarga. Fram eru taldir 83, þar af 31 barn innan 15 ára aldurs (14 drengir og 17 stúlkur), en af öllum framtöldum fávitum voru 47 karlkyns, en 36 kvenkyns.

Fávitar í landinu eru samkvæmt þessu tæplega innan við 200, og sennilega 70-80 á barnsaldri.

Í manntalinu 1920 eru fávitar taldir 101, en það er alkunna, að við almenn manntöl er slíkt illa tíundað, og hliðra foreldrar sér hjá í lengstu lög að jata fyrir sjálfum sér og öðrum þetta ástand barna sinna.

Aðbúnaður þessara vesalinga er ýmist talinn góður eða viðunandi (með tveimur undantekningum þó), en hér á hað enn frekar við en um geðveiku sjúklingana, að víst fávita á heimilum er þyngri kross fyrir heimilin en þá sjálfa.“

Eftir þessari skýrslu að dæma, þá er hér á landi töluverður hópur barna, sem elzt upp í þessu ástandi, og það út af fyrir sig er mikilvægt umhugsunarefni, hvort ekki er hægt að koma þessum börnum til verulegrar hjálpar. Það hefir sýnt sig, að það eru ekki fá börn, sem hefir verið bjargað, að meira eða minna leyti frá algerðu bjargarleysi, með því að taka þau ung og kenna þeim, og þá sérstaklega til handanna.

Hvað viðvíkur dvalarkostnaði á fávitahælinu á Sólheimum, þá má fullyrða, að heimilin eru yfirleitt ekki betur stödd efnalega en það, að þeim væri mörgum alveg ókleift, hjálparlaust, að bæta við framfærslukostnað sinn mánaðarlegum útgjöldum, 80–100 kr. Sama má segja um hreppsfélögin, að þau berjast í bökkum og hlífast við útgjöldum í lengstu lög. Væri nú farin þessi leið, sem þáltill. fer fram á, að heimild væri fyrir ríkisstj. til að standa straum af verulegum hluta þess kostnaðar, þannig, að ríkið borgaði 500 kr. með hverjum þessara manna á ári, þá hygg ég, að sú hjálp mundi verða mjög góður liður í því að hjálpa heimilunum til að losna við þessar byrðar sínar og útvega aumingjunum betri aðbúnað en víða hefir verið kostur á.

Ég vona, að hv. þdm. séu sammála um, að það sé ekki síður ástæða til að greiða götu þessa fólks heldur en geðveikra sjúklinga, sem fá styrk frá ríkinu. Blindir og mállausir eru líka styrktir af ríkinu, og ég hygg, að þeir, sem hér er verið að biðja um hjálp fyrir, séu ekkert betur staddir en annað örkumlafólk og því sé í fyllsta máta tímabært að styðja þá með því fjárframlagi, sem þáltill. felur í sér, á meðan málum þeirra er ekki lengra komið með þjóð vorri en nú er raun á.