27.11.1933
Efri deild: 20. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 602 í D-deild Alþingistíðinda. (1616)

55. mál, meðgjöf með fávitum

Flm. (Guðrún Lárusdóttir):

Ég hefi líklega ekki tekið það fram áðan, þegar ég talaði um þetta mál, að ríkisstj. getur vitanlega sett hvaða skilyrði sem er fyrir þessari fjárveitingu, viðvíkjandi heilbrigðishliðinni í þessu efni. Hvort landlæknir hefir verið hafður í ráðum um byggingu fávitahælis, skal ég ekkert um segja; mér er ekki svo kunnugt um það, þessi stofnun er byggð aðallega fyrir lánsfé, og ríkið hefir sjálft lagt þar til fé, þar sem í fjárl. yfirstandandi árs voru áætlaðar 5000 kr. til þessarar byggingar. Ég býst við, að það hafi verið gert vegna þess, að þinginu hafi verið ljós sú nauðsyn, sem var á því að hjálpa upp á sakirnar í þessu efni.

Hv. 4. landsk. var að spyrja um, hvort þetta hæli ætti að vera fyrir fávita eða heilbrigð börn í framtíðinni. Ég skildi ekki vel, hvað hv. þm. átti við, en ég hygg, að fyrir forstöðukonu hælisins vaki að hafa þar hvorttveggja, barnahælið, sem nú starfar þar, og bæta við fávitahæli. Ég verð nú að segja það, að mér fellur ekki reglulega vel, að barnahæli og fávitahæli sé haft mjög nálægt hvort öðru. Ég hefi talað um þetta við forstöðukonuna, frk. Sesselju Sigmundsdóttur, og hún hefir sagt mér, að erlendis ryki hað engin frágangssök, þó að svo sé. Sumir uppeldisfræðingar hafa meira að segja látið í ljós þá skoðun, að börnin geti að sumu leyti haft gott af að vera í nábýli við og sjá andlega lömuð börn. Þeir álíta, að börnin muni, við samanburð á sínu eigin ástandi og þessara sjúku barna vakna til þakklátssemi við gjafarann allra góðra hluta, og einnig muni vakna hjá þeim vorkunnsemi og góðsemi við þessi olnbogabörn lífsins.

Viðvíkjandi því, að hv. 4. landsk. þótti meðgjöfin með fávitunum nokkuð há, þá vil ég taka það fram, að hún er miðuð við það meðlag, sem hreppsnefndum er gert að greiða með ómögum á Kleppi, en það eru 45 kr. á mánuði. Þetta er þó ekki nema rúmlega 41 kr. á mánuði. Við þennan samanburð virðist mér það, sem farið er fram á hér, ekki ósanngjarnt.

Þá verður hv. 4. landsk. tíðrætt um Elliheimilið í sambandi við þetta mál. Honum er það þyrnir í augum, að það var byggt hér í Rvík; hann vildi láta byggja ráð á Reykjum í Ölfusi, eins og margt annað, sem hann vill láta byggja. Hann hefir að sumu leyti nokkuð til síns máls, vegna þess að það er að vissu leyti dýrara að búa hér í Rvík, en að mörgu leyti er það líka betra. Ég er ekki viss um, að gamla fólkinu hefði þótt vænt um, ef farið hefði verið að hrekja það burt frá þeim stað, sem það hefir dvalið á síðustu áratugi æfi sinnar, því að flest af gamla fólkinu, sem dvelur á Elliheimilinu, er úr Rvík. Hv. 4. landsk. má vita það, að gamla fólkið er vanafast, og það þætti mjög harkaleg meðferð á gamalmenninu, þegar það er búið að bera hita og þunga dagsins, að hrekja það þá burt frá vinum og kunningjum, þaðan sem það vill helzt vera.

En svo ég víki að fávitahælinu aftur, þá verð ég að segja það, að hv. 4. landsk. hefir haft mjög góða aðstöðu til að koma upp þessu hæli. Hann hefir verið ráðh., og því notaði hann þá ekki aðstöðu sína til þess að hyggja fávitahæli á Reykjum í Ölfusi? Vissulega eru Reykir mjög ákjósanlegur staður til margra hluta, en ég veit sannast að segja ekki, hvort heppilegt væri að dyngja þar saman svo ólíkum stofnunum sem berklahæli, fávitahæli, mjólkurbúum o. s. frv. Þar er líka nú orðinn mjög fjölfarinn staður og að því leyti ekki heppilegur fyrir fávitahæli. Að mínu áliti eru Sólheimar miklu heppilegri og rólegri staður, og rétt að byrja á þessari starfsemi einmitt á afviknum stað. Síðan getur reynslan skorið úr, hvað hentugast verður í framtíðinni.

Ég hefi svo ekki fleira að segja út af ræðu hv. 4. landsk. Ég vil aðeins undirstrika það, að ríkisstj. getur haft hönd í bagga um það, að allt heilbrigðiseftirlit sé fullkomið, jafnframt því sem hún veitir þennan styrk til hælisins, sem auðvitað hér að skoða sem „prívathæli“. Eigendur þess hafa farið þá sömu leið, sem farin hefir verið af ótalmörgum fyrr og síðar, að fá lán til þess að hrinda málinu af stað og treysta síðan á, að allt gangi vel, þannig, að meðlög hrökkvi að miklu leyti upp í kostnað, að viðbættum ríkisstyrk, sem alstaðar hefir þótt sjálfsagður og fúslega látinn í té.