27.11.1933
Efri deild: 20. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 605 í D-deild Alþingistíðinda. (1620)

55. mál, meðgjöf með fávitum

Flm. (Guðrún Lárusdóttir):

Ég skal vera stuttorð, en mér heyrðist hv. 4. landsk. vilja draga það dálítið ennþá að hjálpa þessum vesalingum, fávitunum. Það er ekki um annan stað að ræða fyrir fávita hér á landi en þennan, sem hér hefir verið talað um, fyrir utan þeirra eigin heimili, og ef þeir fá ekki hjálp frá því opinbera, þá eru þeir allflestir útilokaðir frá því að komast í hælið. Hversu oft hafa ekki fyrirtæki sem þessi notið styrks af opinberu fé, og hversu oft hafa menn ekki fengið styrk hjá ríkinu til dvalar á „prívatstofnunum“? Ég get ekki séð, að það sé nokkur ástæða til að leggja á móti þessari stofnun, þó að dugleg og áhugasöm kona verði til þess að byggja þá byggingu, sem ég skal játa, að ríkið hefði sjálft átt að byggja.

Þetta er nú í þriðja sinn, sem ég ber þetta mál fram hér á þingi. Fyrst lagði ég til, að holdsveikraspítalinn á Laugarnesi yrki tekinn fyrir fávita og holdsveikum sjúklingum, sem eru orðnir fáir, sem betur fer, yrði séð fyrir öðrum stað. Síðan á næsta þingi mæltist ég til, að stjórnin hlutaðist til um, að reist yrði skýli yfir fávita svo fljótt sem auðið væri. Og nú kem ég í þriðja sinn, þegar hús er risið af grunni fyrir þessa menn, sem ríkið hefir vanrækt ár eftir ár, og fer fram á, að það styrki þá til dvalar þar. Þykir mér ótrúlegt, að hv. þm. vilji hliðra sér hjá að samþ. þá till. mína.

Hv. þm. minntist á hressingarhælið í Kópavogi. Ég veit ekki til, að þar hafi verið sýnt neitt fyrirhyggjuleysi. Því hæli hefir verið vel stjórnað, það hefir komið að góðum notum og jafnan verið fullt af sjúklingum, svo að oft hefir verið ómögulegt að koma sjúkum mönnum har fyrir sökum rúmleysis. Hressingarhælið er því mesta þjóðþrifafyrirtæki. En hvers vegna er þá hv. þm. að kasta steini að því? Er það af því, að það eru konur, sem hafa komið því upp?

Hv. þm. sagði, að ég hefði komið með rök, sem ég ekki gæti mælt á móti, um það, hvort heppilegt væri að hafa saman barnahæli og fávitahæli. Ég minntist hér aðeins á reynslu þeirra manna, sem árum eða áratugum saman hafa fengizt við þessi mál, og hvorki hv. 4. landsk. né aðrir, sem enga reynslu hafa í þessu máli, þurfa að fyrirverða sig fyrir að byggja á reynslu slíkra manna, sem hafa varið tugum ára af æfi sinni til þess að athuga ástand fávita og reyna til að ráða bót á kjörum þeirra. Við megum bæði, ég og hv. 4. landsk., bera það mikla virðingu fyrir slíkum mönnum, að við beygjum okkur fyrir áliti þeirra og tökum fullt tillit til ummæla þeirra.

Ég get fallizt á, að þessi till. fari til fjvn., en ég treysti hví, að löggjafar þjóðarinnar sjái nú aumur á olnbogabörnum þjóðarinnar með því að samþ. till.