30.11.1933
Neðri deild: 23. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 225 í D-deild Alþingistíðinda. (1621)

48. mál, samvinnufélagið

Bjarni Ásgeirsson:

Ég held, að hv. 1. hm. Reykv. og hv. þm. Ísaf. séu hálfhræddir um, að þetta nýja fyrirtæki í Borgarnesi verði til þess að kollvarpa alveg útgerðinni í Rvík og á Ísafirði. Ég get varla skilið afstöðu þeirra öðruvísi. Annars er það um hv. þm. Ísaf. að segja, að hann hefir þegar tjáð sig meðmæltan þessu máli, og vænti ég, að hann hlaupi ekki frá því, sem hann er búinn að skrifa undir í nál., þó það væri eftir upplýsingum hans sjálfs fremur gert af ást á ábyrgðunum yfirleitt heldur en af ást á því fyrirtæki, sem hér er um að ræða.

Hv. frsm. þessa máls hefir raunar svarað mótbárunum gegn því á fullnægjandi hátt. Það er alls ekki óhugsandi, að Borgnesingar geti með tíð og tíma komið sér upp íshúsi, og það mun ekki vera svo nauðsynlegt til að byrja með, að málið þurfi að stranda á því Auk þess eru þarna til hús, sem standa ónotuð nema 2 til 3 mánuði ársins og eru ágæt til fiskgeymslu og annars, sem útgerðin þarf með, þann tíma sem þau eru ekki notuð til annars.

Hv. 1. hm. Reykv. sagði, að með þessu væri verið að breyta landbúnaðarhéraði í Sjávarpláss. Það þá beinast við að skilja hann þannig, að hann áliti, að Mýramenn og Borgfirðingar allir mundu hverfa að Borgarnesi til þess að stunda sjó á þessum eina línubát. Slíkar fjarstæður ná ekki neinni átt. Hér er aðeins að ræða um eina af þörfum þorps, sem tilheyrir bæði sjávarsíðunni og sveitunum og hefir möguleika á báðar hendur, ef því er veittur þessi litli og sjálfsagði stuðningur.

Ég geng ekki inn á það, að þó ég flytji þetta mál og hafi oft sýnt að með atkv. mínu á þingi, að ég vil styðja sjávarútveginn, þá þurfi það að vera af vantrú á landbúnaðinum. Það lýsir þá a. m. k. ekki síður vantrú á sjávarútveginum hjá hv. þm., að hann lítur svo skökkum augum til þess, að Borgnesingar vilja fylla upp í atvinnulíf sitt með því að gera út einn bát, að hann telur það vera að bæta gat með gati. Hafi ég sýnt vantrú á landbúnaðinum, þá hefir þessi fulltrúi sjávarútvegsins ekki síður sýnt vantrú á útgerðinni. Ég hefi þá trú, að þjóðinni sé bezt í framtíðinni, að þessir tveir aðalatvinnuvegir hennar, landbúnaðurinn. og sjávarútvegurinn, leiðist hönd í hönd og styðji hvor annan. Ég er sannfærður um, að það getur orðið þessu mikla landbúnaðarhéraði styrkur, ef það fær þarna útgerðarstöð, þar sem það getur átt aðgang að ódýrum fiski til heimilisnotkunar. Það hefir verið svo, að Borgfirðingar og Mýramenn hafa ekki átt kost u að fa sér fisk nema endrum og eins frá Reykjavík, og þá miklu dýrari heldur en þyrfti að vera, ef hann fengist nær. Á hinn bóginn gæti það orðið þessu fyrirtæki mikill styrkur að fá markað fyrir fisk í héraðinu upp frá þorpinu, og þannig yrði þetta báðum aðilum til hjálpar.

Hv. þm. vildi sömuleiðis gera það tortryggilegt, að hér væri ýtt og vandað skip til sölu með góðum kjörum. Hann benti á, að örðugt mundi vera að láta þetta skip bera sig þar, sem aðstaðan væri ekki betri en í Borgarnesi, úr því það væri svona á boðstólum. Mér er skýrt svo frá ástæðunni fyrir því, að þetta skip er á boðstólum, að félagið, sem stóð að byggingu þess og annars skips til og ætlaði þau til fiskveiða við Grænland, hafi ekki verið sterkara en það fjárhagslega, að það hafi farið á höfuðið aður en að veiðiskapurinn byrjaði og bankinn hafi orðið að taka skipin til sin með þeim skuldum, sem á þeim hvíldu. Þess vegna standa mönnum þessi skip til boða, en ekki af því, að þau séu ónothæf eða það hafi sýnt sig, að útgerð þeirra geti ekki borið sig.

Þetta um Biskupstungurnar tek ég ekki alvarlega og mun bíða með að ræða það mál þangað til búið er að stofna skipafélag til fiskveiða í Hvítá.

Hv. þm. talaði um, hver reynsla væri fengin um rekstur samvinnuútgerðar. Hélt hann m. a. fram, að samvinnuútgerðin í Stykkishólmi hefði gengið mjög illa. Það er rétt, að fyrsta árið, sem var eitt hið versta ár, sem yfir sjávarútveginn hefir komið, stoð félagið völtum fótum. En síðan hefir því gengið vel, og ber öllum, sem til þekkja, saman um, að það hafi orðið til stórmikils gagns fyrir kauptúnið, og vænta menn mikils af starfsemi þess eftirleiðis.

Hitt er rétt, að útgerðarsamvinnufélagið á Akureyri varð gjaldþrota, en það hafa nú svo mörg fyrirtæki orðið gjaldþrota á síðustu tímum, að ef menn ætluðu alltaf að hræðast ný fyrirtæki, ef hægt væri að benda á, að annað fyrirtæki sama eðlis hefði einhverntíma farið á höfuðið, þá mundi lítið verða um framkvæmdir. Alstaðar hafa orðið einhver mistök. Og ekkert réttlætir þá skoðun, að öll fyrirtæki, þó af sömu rótum séu runnin, þurfi að fara sömu leið og þau, sem verst hefir tekizt til um. Hitt er aðalatriðið, að dæma í hverju einstöku tilfelli út frá þeim kringumstæðum, sem fyrir hendi eru. Fyrir þá, sem vilja líta á þetta mál með skilningi og réttsýni, er ekki síður ástæða til að vænta góðs af þessu fyrirtæki heldur en af útgerðarfyrirtækjum á öðrum stöðum við Faxaflóa. Það er kunnugt, að útgerðin á Akranesi hefir borið sig prýðilega, og ég sé ekki, að það sé mikill munur á aðstöðu Borgarness til útgerðar, eins og nú er komið.

Hinu mótmæli ég einnig, að þó Alþ. samþ. þessa ábyrgðarheimild, taki það um leið á sig skyldu til að samþ. ríkisábyrgð fyrir hvert einasta útgerðarsamvinnufélag, sem mönnum kann að detta í hug að stofna á landinu. Það verður í hvert skipti að athuga, hvað miklar líkur eru fyrir, að það fyrirtæki, sem um er að ræða, sé á viti byggt, og sú athugun á að raða atkv. þm., en ekki nein allsherjarregla. Ég held, að það sé þá ekki fleira, sem ég þarf að taka fram um þetta mál, enda býst ég ekki við, að það skýrist mikið við langar umr.