06.12.1933
Efri deild: 27. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 608 í D-deild Alþingistíðinda. (1624)
55. mál, meðgjöf með fávitum
Guðrún Lárusdóttir:
Ég get verið þakklát hv. n. fyrir meðferð hennar á þessu máli, að öllu öðru en því, að mér þykir málið hafa legið óþarflega lengi hjá henni. Sökum þess, að nú er mjög liðið á þingtímann, fer að verða hver síðastur að koma í gegn þessu máli, og þegar í hlut á mál eins og þetta, sem er knýjandi nauðsynjamál, þá er leitt, að það skuli vera tafið þannig fyrir því, að það nái ekki að verða afgr. í báðum d., sem mér virðist allt útlit fyrir, að muni verða, nema tekið verði því kröftuglegar á því úr þessu.
Að öðru leyti þakka ég hv. n. fyrir góðar undirtektir, og ég verð að gera mig ánægða með þessa niðurfærslu, þrátt fyrir það, að ég álít, að ekki hefði veitt af hinni upphæðinni. En eins og hv. frsm. nefndi, þá er þetta allt í byrjun, og enn er ekki seð, hver kostnaðurinn muni verða við rekstur hælisins, og eftir atvikum get ég vel fallizt á niðurstöðu hv. nefndar.
Það kann vel að vera, að einhverjum hv. þdm. finnist þetta svo smávægileg hjálp, að það muni engu, hvort þetta er samþ. eða samþ. ekki. En ég er ekki á þeirri skoðun, því að ég álít, að hvað lítil byrjun sem er, þá sé hún betri en kyrrstaðan. Hér er um að ræða nýja starfsemi, sem ekki hefir þekkzt hér áður, að undantekinni þeirri starfsemi, sem fram hefir farið á þeim heimilum, sem hafa haft við þá óhamingju að stríða að hafa slíka sjúklinga á vegum sínum.
Það er vitað, að í þeim spítölum, sem áður hafa verið stofnaðir hér á landi, er ekkert rúm fyrir fávita. Nú er loks svo komið, að búið er að byggja hús, par sem þessum ólánsömu mönnum er ætlað að dvelja, og ég hygg, eftir því sem allt bendir til, að allur frágangur sé góður, staðurinn er hinn prýðilegasti og hefir til að bera öll þau þægindi, sem leiðir af nægum jarðhita, og vel í sveit komið á rólegum og afviknum stað. Má því ætla, að hér sé búinn góður samastaður þeim mönnum, sem fram að þessu hafa átt við örðug kjör að búa.
Ég hefi á þessu þingi og tveimur undanförnum þingum talað allýtarlega um þetta málefni og bent á nauðsyn þess, enda enginn mælt því gegn, heldur þvert á móti viðurkennt fyllilega nauðsyn þess.
Að svo mæltu vænti ég þess, að hv. d. geri það, sem hún getur, til þess að koma málinu lengra áleiðis, og í þeirri von, að tími gefist til afgreiðslu málsins, þrátt fyrir það, að nú er mjög liðið á þingtímann, þá lýk ég máli mínu, í trausti þess, að íslenzka þjóðin sjái skyldu sína í því að líkna hinum bjargarþurfa olnbogabörnum þjóðfélagsins — fávitunum.