06.12.1933
Efri deild: 27. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 609 í D-deild Alþingistíðinda. (1627)
55. mál, meðgjöf með fávitum
Guðrún Lárusdóttir:
Ég tek afsökun hv. frsm. fullkomlega til greina. Mér er kunnugt um, að hv. n. hefir ekki ætlað sér að hefta framgang málsins, en það, sem ég sagði um, að málið gengi seint, stafar sjálfsagt af því, að mér er þetta svo mikið kappsmál og vil flýta því svo sem auðið er, og meir en orðið hefir á undanförnum þingum, þar sem það hefur dagað uppi sitt með hverju mótinu. Annað var það ekki, sem í orðum mínum fólst.