30.11.1933
Neðri deild: 23. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 228 í D-deild Alþingistíðinda. (1628)
48. mál, samvinnufélagið
Finnur Jónsson:
Það er ekki rétt hjá hv. þm. Mýr., að ég sé á móti þessari fyrirhuguðu útgerð í Borgarnesi af því ég búist við, að hún muni kollsteypa útgerðinni á Ísafirði, enda býst ég við, að það hafi verið sagt í gamni. Hv. 1. þm. Reykv. dró samvinnuútgerð Ísfirðinga inn í þessar umr. og vildi draga þá ályktun af henni, að samvinnuútgerð reyndist yfirleitt hraklega. Nefndi hann og til tvö önnur samvinnufélög. Þó nú svo væri, að ekki hafi gengið eins vel með þessi þrjú samvinnufélög eins og æskilegt væri og búizt var við, þá er það ekki sönnun þess, að samvinnuútgerð geti ekki borið sig eða verið heppileg. Það vita allir, að öll þessi félög fengu yfir sig þegar í byrjun versta árið, sem komið hefir á landi hér síðan vélbátaútvegurinn hófst. En þó samvinnufélag Ísfirðinga kæmist í örðugleika það ar, þegar allir útgerðarmenn töpuðu, þá voru þeir örðugleikar ekki meiri en það, að ef félagið hefði ekki haft lán sín í útlöndum og fyrir þeim ríkisábyrgð, svo það gat ekki fengið greiðslufrest eins og önnur úgerðarfyrirtæki, þá hefði það ekki þurft að leita neitt til ríkissjóðs. Nú hefir félagið þegar borgað nokkuð af þessari upphæð, og ég vona, ef ekki kemur beinlínis hrun í sjávarútveginn, að félagið standi við sínar skuldbindingar, og þá einnig gagnvart ríkissjóði.
Hv. 1. þm. Reykv. ætlaði hér eins og engin útgerð gengi illa nema samvinnufélagsútgerð. En hvers vegna er það, að verið er að leitast fyrir um ábyrgð handa samvinnufélögum? Það er af því, að einstakra manna útgerð er á slíkri heljarþröm, að hún getur ekki haldið uppi atvinnurekstri.
Hv. 1. þm. Reykv. var að tala um, að framtíð samvinnufélagsins á Ísafirði væri í óvissu. En þessi sama óvissa er um alla aðra útgerð í landinu. En ég verð þó að segja það, eftir minni reynslu, að ef samvinnufélagið á Ísafirði hefði verið búið að lifa tvö sæmileg aflaár í viðbót við þau tvö ár, er það þegar hafði starfað, og svipuð þeim fyrir árið 1931, þá er ég ekki í vafa um, að það hefði lokið öllum sínum skuldbindingum, og það jafnvel á þessum verstu tímum.
Um samvinnufélagið á Akureyri er það að segja, að það henti það, sem marga aðra hefir hent, að kaupa gömul skip, og lenti svo strax á 1. eða 2. ári í því slæma ári, sem ég nefndi áðan, því ári, sem enginn vafi er á, að allir útgerðarmenn á landinu hafa tapað á. Þetta félag hafði enga ríkisábyrgð. — Svo er samvinnufélag í Stykkishólmi. Ég veit ekki, hvort það hefir ríkisábyrgð, en mér er nær að halda, að svo sé ekki.
Að draga þessi samvinnufélög inn í umr. er málinu óviðkomandi, og þegar verið er að tala um, hvað hafi tapazt á ríkisábyrgð, þá er það vitanlegt, að það, sem ennþá hefir tapazt á útgerð, er að mestu leyti á hlutafélögum, og ég býst við, að hv. 1. þm. Reykv. vilji ekki telja það sönnun þess, að hlutafélagsrekstur eigi ekki að eiga sér stað nú.
Ástæðan fyrir því, að ég skrifaði undir nál. með fyrirvara, er ekki sú, eins og ég tók fram aðan, að ég sé á móti ábyrgð til samvinnufélaga, heldur aðeins af því, að ég álít, að Borgarnes hafi ekki eins góð skilyrði og mörg önnur útgerðarpláss hér á landi hafa. Vitanlega þyrfti þegar á næsta ári að leggja fram mikið fé til þess að þarna verði sú aðstaða, sem verður að vera í hverju útgerðarplássi, svo það sé hentugt til útgerðar. Og meðan aðstaðan er slík, að ýmsa veiðistaði úti um land, sem hafa góð skilyrði til útgerðar, vantar fé, finnst mér ekki ástæða til að flytja útgerðina í sveitahéruð.
Við höfum ekki hér í landi neitt, sem heitir lánsstofnun fyrir sjávarútveginn, þar sem menn geti fengið ódýr og hentug lán, ef þeir vilja kaupa skip. Nágrannaþjóðir okkar, bæði Norðmenn, Danir og Svíar, hafa sérstakar lánsstofnanir, sem veita fiskimönnum lán til skipakaupa, þar sem þeir geta fengið svo og svo mikinn hluta af kaupverði skipsins, allt að 4/5 hlutum, að láni til 15 til 20 ára með 31/2% vöxtum. Við höfum enga slíka stofnun hér í þessu landi, nema hv. þm. vilji telja fiskiveiðasjóðinn, sem ennþá er lítils umkominn í þessu efni.
Fiskiskip landsmanna umhverfis allt land eru farin að ganga úr sér , og ekkert kemur í staðinn. Hvað eigum við að gera í þessu efni? Hvað eigum við að gera til þess að halda uppi aðalatvinnuvegi landsmanna, sjávarútveginum? Ég get ekki seð neitt annað ráð hentugra en að ríkið hlaupi undir bagga með því að veita slíkar ábyrgðir og hér er um að ræða, og sem ríkið hefir þegar veitt samvinnufélögunum á Ísafirði og Eskifirði. Það er ekki þar með sagt, að þessi félög geti ekki farið á höfuðið. Það er síður en svo, þau eiga sjálfsagt eftir að reka sig á ýmiskonar agnúa og vandræði. En þó held ég, eftir minni reynslu, þeirri reynslu, sem hv. 1. þm. Reykv. vitnaði til, að þar höfum við fundið heppilega leið í útgerðarmálunum, enda fylgi hæfilegur stuðningur ríkissjóðs.
Það verður, eins og ég sagði áðan, eitthvað að koma í staðinn fyrir þau ódýru fiskiveiðasjóðslán, sem aðrar þjóðir veita sínum fiskimönnum til skipakaupa, og meðan ríkið ekki leggur fram fé til slíks, þá er ekki önnur leið heppilegri en að veita samvinnufélögunum ábyrgð.